Sameiningin - 01.01.1915, Síða 27
363
KIRKJULEGAR FRÉTTIR.
DciUl þcssa annast séra Ki'istinn IC. ólafsson.
Margt bendir til, aS björt framtíö sé í vændum fyrir lútersku
kirkjuna í Ameríku. í því sambandi má nefna þau mörgu teikn í
siöustu tí'ö, er benda til aukinnar samheldni og samvinnu milli
kirkjufélaganna og einstaklinga úr kirkjufélögunum. Kunnugt er
um samdrátt lútersku kirkjufélaganna norsku, þeirra þriggja: Sam-
einuöu kirkjunnar, Norsku Sýnódunnar og Hauge Sýnódunnar.
Þegar sú sameining er komin á, veröur um hálf miljón norskra lút-
erstrúarmanna sameinuö undir eitt merki til sóknar og vamar. —
Svo má benda á, hvernig svo aö segja allar deildir kirkjunnar hafa
tekiö saman höndum til aö koma á útgáfu sameiginlegs málgagns
fyrir lútersku kirkjuna í Ameríku. Byrjaöi þaö aö koma út 26. Okt.
í haust sem leiö, og nefnist The Americcm Lutheran Survey. Er
það stór-myndarlegt tímarit, sem hlýtur aö stuöla aö þvi, að draga
lútersku kirkjufélögin nær hvert ööru, gera þeim ljóst hlutverk kirkj-
unnar í heild sinni, og sameina kraftana um það hlutverk. Einnig
hlýtur þaö að vekja athygli á lútersku kirkjunni í amerísku þjóðlífi
fram yfir það, sem verið hefir. — Ejóst tákn tímanna er það, þegar
kennimenn úr General Synod og Missouri Sýnódunni halda meö sér
stefnu, eins og nýlega var í Baltimore, til að auka skilning og sam-
úð sín á milli. Hafa þau kirkjufélög verið talin fjærst hvort öðru
af lútersku kirkjufélögunum í landinu. — Vonandi fá öll þessi tákn
sem fylsta uppfyllingu.
í Bandaríkjunum eru 25 lútersk gamalmennahæli. Um 1,100
gamalmenni eru til heimilis á þeim.
Nýlega var gefin út bók, sem inniheldur stutt æfiágrip allra
norsk-lúterskra presta í Ameríku. Þeir eru um 2,000. Myndir eru
líka í bókinni af öllurn nema 75 af prestunum.
Úr blaðinu ‘‘The East and the West,” sem gefið er út á Eng-
landi, er tilfærð áskorun sú, er hér fer á eftir, til breskrar alþýðu,
að koma til hjálpar trúboðsstarfi Þjóðverja, sem vegna stríðsins er
slitið úr sambandi við heima-kirkjuna. Sá sann-göfugi og sann-
kristilegi andi, sem lýsir sér í þeim ummælum, hlýtur að vera til góðs
öllum þeim, sem hafa fundið til sárrar hrygðar yfir því, hv'ernig
styrjöldin hefir skoriö á bræðraböndin milli þjóða og einstaklinga,
er kristið nafn bera. Elin umrædda áskorun er sem fylgir: — “Hvað
hart sem vér þurfum að leggja að oss til aö halda við v’oru eigin
trúboðsstarfi, getum vér ekki liðið, að striðið, sem geysar milli
kristinna manna heima fyrir, komi á vonarvöl kristnum trúboðum,