Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.03.1908, Page 7

Sameiningin - 01.03.1908, Page 7
3 hún hætti aö innhýsa það og gjöri það rœkt af bóka- markaði vorum. Það langar víst engan í „Ólöfu í Ási“ og aðra samskyns fœðu eftir að hann hefir neytt þess, sem bor- ið er á borð í Ben Húr. Þýðingin íslenzka á þeim parti liinnar dýrmætu skáldsögu eftir Wallace, sem birtist í biaði þessu, er eftir ritstjóra ,,Sam.“ og svo vel vönduð sem liann hef- ir vit á. ----o---- Föstuhelgin. Langaföstutíðin hefir göfuga liefðarhelgi hjá oss Islendingum frá því endr fyrir löngu. 1 kaþólskri tíð fastaði almenningr þjóðar vorrar í bókstaflegum skiln- ingi á því tímabili, alveg eins og fólk allra annarra kristinna þjóða. Og þó að sá siðr væri smásaman lagðr niðr eftir reformazíónina, þá liélzt þó liið gamla nafn á þeirri kirkjuárstíð eins fyrir því, og það, sem mest var um vert í föstuhugmyndinni upphaflegu, lifði áfram. En það var vitanlega trúuð endrminning frið- þægingarpísla drottins vors Jesú Krists, sem hann af fúsum og frjálsum kærleiksvilja gekk í gegn um til þess að frelsa syndugt mannkyn. Út af föstuhugmyndinni eins og liún þroskaðist innan hinnar lútersku kristni varð til hjá þjóð vorri dýrmætasta guðsorðabókin, sem hún hefir eignazt — Passíusálmarnir. En hins vegar varð það blessað sálmaverk til þess að auka lielgi langaföstutíðarinnar í meðvitund íslenzkrar alþýðu og setja á hana það sér- staklega alvörumót, sem hún hefir á sér haft allt fram á þennan seinasta mannsaldr. Um fram allt á föstunni hafa heimilisguðsþjónust- ur — húslestrar — tíðkazt meðal Islendinga, og aðal- guðsorðabókin þá æfinlega Passíusálmarnir. Yenju- lega byrjað á þeim sérstöku bœnahöldum á lieimilunum laugardagskvöld næsta á undan sunnudeginum í föstu- inngang, og þá um liönd hafðr fvrsti Passíusálmrinn, síðan einn þeirra sálma á hverjum degi alla föstuna út. Svona var það að minnsta kosti víðastlivar á Islandi á fyrra helmingi síðustu aldar og talsvert iangt fram yfir

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.