Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.03.1908, Blaðsíða 25

Sameiningin - 01.03.1908, Blaðsíða 25
21 dauða í stað mannanna. Þetta er uppliaf allrar kenn ingar lians og það, sem liann vildi að lærisveinunum aldrei gleymdist. Þetta var það, sem liann talaði um að þeir þá eigi gæti fullkomlega skilið, en seinna rnyndi ]>eir skilja það. Nauðsyn sú, er til þess bar, að Jesús fórnaði lífi sínu til að friðþægja fyrir syndirnar, er komin til af ráðstöfun guðs sjálfs ]>ví viðvíkjandi. Þá ráðstöfun skildi Jesús frá upphafi og liugsa'ði um það eitt að fullnœgja henni. Rit nýja testamentisins: postulasagan, bréf þeirra Pétrs, Jóhannesar og Páls og Hebreabréfið, minnast öll á Krist sem „þjón drott- ins“, er spádómsbók Esajasar lýsir, og einkum lýsa þeir höfundar því, hve hann hafi borið syndir vorar og verið með illræðismönnum talinn. Svo aug’ljóst er, að boðskapinn um friðþægingar-dauða Krists hafa þeir liaft frá Kristi sjálfum. Það er auðkennd rótin af rósinni. Ekki var það auðvelt, að koma lærisveinunum í skilning um þetta. Itrekaðar tilraunir gjörði Jesús til að sannfœra ])á um það, að hann væri einmitt sá, er 53. kapítulinn lijá Esajasi hljóðaði um. En þeir höfðu gjört sér allt aðra hugmynd um Messías, mjög ólíka þeirri liryggðarmynd, sem spámaðrinn liafði dregið upp og Jesús tileinkaði sér. En þegar þeii loks skildu og sannfœrðust, þá hertók sannleiksundr þetta svo hugi þeirra, að frá því var kjarni og' innihald allra kenninga þeirra þetta, sem áðr liafði hneykslað þá. Nú fengu þeir ekki um annað talað en það, sem þeir áðr ekki höfðu þorað að nefna. Því meir sem stundin nálgast, því nákvæmlegar opinberar drottinn lærisveinunum tilgang kvala sinna og dauðans. Dauðinn er ávallt í huga hans á leiðinni upp til Jerúsalem síðasta sinni. Er þeir brœðr Jakob og Jóhannes gefa sig á tal við iiann á leiðinni og vilja fá hann til að samþykkja metnaðarfullar óskir ])eirra, segir liann við þá alvariega: „Getið ])ið drukkið bik- arinn, sem eg drekk, eða skírzt þeirri skírn, er eg skír- ist?4‘ Þar talar liann vitanlega um písiirnar, sem nú biðu lians. Og litlu síðar segir hann við postulana: „Mannins sonr er ekki kominn til ])ess að láta þjóna sér, heldr til þess að þjóna, og til þess aö gefa líf sitt til lausnargjalds fyrir marga.“ Þetta ei sem áfram- hald þess, er hann áðr hafði sagt (Mark. 8, 34): „Hver

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.