Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.03.1908, Blaðsíða 35

Sameiningin - 01.03.1908, Blaðsíða 35
3i stráöar eru beinum dáinna eins og jafn-mörgum skjald- merkjum. Svo eru stígir allir frá einum brunni til annars og frá einum haglendisbletti til annars. Hjarta hins marg- reyndasta arabska ættarhöfSingja tekr aö slá fljótar, j á er hann er kominn út í eitthvert þVílíkt veglaust eyöimerkr- svæöi og veit af sér einum þar. Maör sá, sem nú er sér- staklega fyrir oss um aö hugsa, gat því vissulega ekki verið þangað kominn sem hann var til þess aö leita sér skemmt- unar. Ekki heldr var háttalag hans eins og flóttamanns; hann leit aldrei til baka. Þá er svo stendr á, er ótti og for- vitni þær tilfinningar, sem oftast ber mest á, en hann vai af þeim meö öllu ósnortinn. Þá er leiðindi eru í mönnum út af vví aö vera einmana, veröa þeir fegnir sérhverjum félagskap: hundrinn verör kunnino-i, hestrinn vinr, og engin minnkun verör þaö þá aö klappa þeim og kyssa þá og út- hella yfir þá blíðuorðum. En fyrir engum slíkum vinsemd- ar-atlotum varð úlfaldinn, hvorki í oröi eöa verki. Rétt um hádegi nam úlfaldinn sjálfkrafa staðar og lét til sín heyra hljóð það eða þá hina einkennilega aumkunar- verðu stunu, sem ávallt kemr frá þ'eim skepnum, er þeim þykir kröftum sínum ofboðið, og stundum er svo mikið til- lit tekið til, aö þeim er veitt hvíld. Við það setti reið- maðrinn sig í hreyfing, og var eins og hann vaknaði þá af svefni. Hann brá upp tjaldinu, sem var yfir söðulskrínunni (houdah), leit upp til sólar, renndi augum yfir landið allt um kring og rannsakaði það lengi og vandlega eins og hann væri að átta sig á bletti nokkrum, sem fyrirfram var til- tekinn. Og er hann var ánœgðr meö rannsókn sína, dró hann djúpt andann og kinnkaði kolli eins og hann vildi segia: „Loksins, loksins!“ Undir eins þar á eftir kross- lagði hann hendrnar á brjóst sitt, hneigði höfuðið og baðst fyrir þegjandi. Eftir að hann hafði fullnœgt þessarri guð- rœknisskyldu bjóst hann til að stíga af baki. Úr kverkum hans kom hljóð, og vafalaust hafa uppáhaldsúlfaldar Tobs heyrt samskonar hljóð — ikh! ikh! Það var merki bess, að dýrið skyldi krjúpa niðr. Hœgt og hœgt fór úlfaldinn eftir þeirri hending. Reiðmaðrinn lét fót sinn á hinn rennilega háls úlfaldans og sté niðr á sandinn. ANNAR KAPÍTULI. hrír menn útlendir. Svo var að sjá eftir því, sem þegar var komið í ljós, að líkamsvöxtr ferðamannsins samsvaraði sér ágætlega; en

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.