Sameiningin - 01.03.1908, Blaðsíða 21
ganga í dauðann fyrir málefni það, er þeir herjast fyr-
ir. Svo kenndn Pelagíarnir um Krist í fornöld. Svo
kenna Únítarar nú á dögum. Og margir frœðimenn
þeir, er nýtízku-guðfrœðinni fylgja, lialda því fram, að
guðspjöllin sjálf leggi enga þá áherzlu á dauða Krists,
sem kirkjan ávallt hefir gjört. Það sé trúfrœði Páls
postula, sem liafi liafið krosá Krists upp yfir fjallrœð-
una hans.
Þar sem nú ])essu er haldið fram svo víða, væri
það sannarlega hyggilegt fyrir kristinn mann að rann-
saka nýja testmentið sitt sjálfr og komast að raun um,
hvað það kennir um dauða drottins vors Jesú Krists
og tilgang hans. Við slíka rannsókn hlýtr hver sann-
sýnn maðr að ganga úr skugga um það, að dauði
Krists er þungamiðja alls þess, sem ritað er í nýja
testamentinu. Plver einasti rithöfundr talar um Krist
sem dáinn og upprisinn, lifandi dýrðlegan drottin, sem
með dauða sínum hafi fullkomnað ætlunarverk það, er
honum var af föðurnum falið. Og þótt það sé postul-
inn Pálh sem allra höfundanna mest hefir hugleitt
dauða Ivrists, þá eru þgð guðspjöllin sjálf, sem full-
komnast lýsa dauða Krists og svo nákvæmlega, að auð-
sætt er, að liöfundar þeirra hafa talið það aðal-atriði
frásagna sinna.
Mestu máli varðar það þó, hverjum augum Kristr
sjálfr leit á dauða sinn. Margir nýtízku-frœðimenn
halda ])ví fram, að Kristr hafi ekki gjört sér grein fyr-
ir örlögum sínum, er hann hóf kenningu sína. Þvert
á móti ætla ])eir, að hann hafi gjört sér framan af
glæsilegustu vonir um frægan sigr; og að það hafi þá
fvrst komið í huga hans, að líf hans myndi hafa ömur-
legan endi, er vonir l>ær fóru að bregðast liver eftir
aðra. Þá fyrst hafi hann farið að sætta sig við þá
hugsun, að hann vrði að láta lífið, þótt hann jafnvel þá
er l)ann baðst fyrir í grasgarðinum hafi langað til að
umflýja dauðann.
Kú virðist þó all-auðvelt að sanna það, að Jesú
hafi verið það full-1 jóst frá upphafi, að leið hans lá
beint út í fórnardauða, að hann átti að vilja föður
síns að láta líf sitt á krossinum fyrir syndir mann-
anna.
Ef vér flettum upp nýja testamentinu, tökum