Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.03.1908, Blaðsíða 17

Sameiningin - 01.03.1908, Blaðsíða 17
!3 arri hörmungaleið með sárri sorg í hjarta út af liinum grimmu örlögum, sem hann liefir nú verið dœmdr til með ]>eim dómi, er ekki framar verðr raskað. Ó, að sjá hann nú eftir öll hin dásamlegu kærleiksverk hans og alla liina dýrðlegu prédikunarstarfsemi hans eiga svona bágt, verða að sæta annarri eins meðferð, hljóta á þennan hryllilega hátt að enda æfi sína, og geta enga minnstu líkn eða björg veitt honum! Allt liefði þær víst viljað gjöra fyrir liann nú; en þær gátu ekkert nema það að gráta yfir honum. Heit kærleikstár, en beisk vonlevsis- tár. Út af þeim tárum tók liann til máls á krossgöng- unni. ..(irátið ekki'-segir liann—„yfir mér, en grátið yfir sjálfum yðr og börnum yðar.“ 0g svo heldr hann prédikan sinni áfram og gjörir þar skýra grein fyrir þessum fyrstu orðum sínum. En af þeirri áskoran til hinna grátandi kvenna er augljóst, að liann sjálfr er þá ekki að hugsa um kvala-örlög sjálfs sín, heldr um liinar hörmungarnar, er á sínum tíma myndi verða liið ólijá- kvæmilega lilutskifti hins blindaða Gyðingalýðs þar í Jerúsalem sem afleiðing þess, að það fólk nú einmitt hafnaði eigin hjálpræði sínu. Hin konunglega tign kærleikans, sem hér birtist í persónu Jesú, ætti ekki að geta dulizt neinum, sem með opnum eyrum heyrir orð hans þá. En svo bendir þetta langt út fyrir sig. Því að þetta er aðal-einkenni á Jesú livar og hve nær sem til hans sést eða heyrist á hinum jarðneska æfiferli hans — það að vera ætíð fvrst og fremst að hugsa um aðra, þeirra lífsþarfir, þeirra vandræði, þeirra gleði og sorg, þeirra frelsan frá öllu illu um tíma og eilífð. Og svo verðr þá líka öll æfisaga hans óslitin, heilög fórnar- gjörð, til þess að bjarga syndföllnu mannkyninu gjör- völlu úr eymd og voða. Þessi opinberan krefst lotn- ingar og tilbeiðslu honum til handa af oss öllum. Allir fá hér liina sterkustu livöt til að gjörast hluttakandi í kærleik hans, ekki að eins í því skyni að fá þaðan huggun í sorgum lífsins og styrk í baráttu sinni út af synd og mótlæti, heldr og í því skyni að læra að elska eins og hann, verða fúsir til að fórna sjálfum sér ann- arra vegna á líkan hátt og hann, eignast það hugrekki, sem til þess útheimtist að fylgja honum eftir á kross- ferli sjálfsafneitunarinnar alla æfina fit. Næst skal bent á smáatriði eitt, eða það, sem í

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.