Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.03.1908, Blaðsíða 20

Sameiningin - 01.03.1908, Blaðsíða 20
i6 skaltu vera með mér í paradís!‘ ‘ Eæninginn trúði því, að Jesús, þótt nú væri liann í þessarri djúpu niðrlæging og sáru píslum, væri þó konungr—Messías liinn fyrirheitni. Og seinna meir, sjálfsagt eftir dauðann, myndi hann birtast í konungdœmi sínu. En Jesús var einnig þá — á krossinum — konungr, var þegar kominn í ríki sínu. Þetta opinberar hann ræningjanum og öllum heimi með því á þessarri stund, negldr á krossinn og svo óendan- lega sárt kvalinn, að tala eins og guð, taka stórsyndara til náðar eins og guð. Beygi þá allir sig í iðran og trú fyrir Jesú, hinum guðlega krossfesta konungi, eins og þessi deyjandi ræn- ingi. Dauði drottins vors Jesú Krists. „Minnst pú, ó, maSr! á minn deyð, minnst þú á mína sáru neyt), minnst þú, aS eg hefi’ einn fyrir þig í dauðajm gefið sjálfan mig.“ Dauði drottins vors Jesú Krists er hið sjálfsagða umhugsunar-efni vor kristinna og lúterskra manna nú á föstunni. Blessuð sé föstutíðin, sem knýr oss alla til að ganga krossferil frelsarans og gráta hjá honum synd vora í Getsemane, á Gabbaþa og Golgata. Ógjarnan vilja þó mennirnir margir þessa götu ganga. „Holdið tekr að mögla og manga“, er um það rœðir, að fasta hjá kvalakrossi lausnarans. Þar við bœtizt það, að nvtízku-kenningarnar margar vilja, að gengið sé fram hjá hinum ömurlega dauðdaga Jesú sem mest. JfanmíJar-lífsspekin svo nefnda vill láta alla áherzlu leggja á líf og kenningu Krists, og þvkist fyrir líf hans fá lifnndi kristindóm. Hún kennir það gömlum kirkjukreddum, að dauði Krists hafi gjörðr verið nð þungamiðju kristindómsins. Lærimeistarar víðsvegar um heim, og nií orðið i sjálfri kirkjunni, flytja mönnum þann boðskar*, að Kristr sé að vísu meistari allra manna og ímynd mannlegrar fullkomn unar. En dauði hans sé fórnardauði að eins á sama hátt sem aðrir menn láta líf sitt fyrir sannfœring sína og styrkja vitnisburð lífs síns með því fúslega að

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.