Sameiningin - 01.06.1908, Blaðsíða 2
98
því, er farið hefir verið eftir við slík tœkifœri innan liins
lúterska kirkjufélags vors, íslendinga liér, og er form
það fyrir mörgum árum prentað í blaði þessu („Sam.“
V, 1, Marz 1890). Að niðrlagi vígslu-atkafnarinnar var
séra Jóliann af forseta settr inn í kennimannsem-
bættið hjá söfnuðunum, sem kvatt liöfðu hann lijá sér í
þá stöðu. Síðar prédikaði forseti og lagði út af Jóh. 15,
1 o. s. frv. (um vínviðinn og greinarnar). Á eftir þeirri
prédikan ávarpaði liinn nývígði prestr söfnuðinn með
stuttri rœðu út af 1. Pét. 2, 9 („Þér eruð útvalin kynslóð,
konunglegt prestafélag, lieilagr lýðr, (guðs) eigið fólk“
o. s. frv.). Dálítill hópr fólks var við þetta tœkifœri til
altaris með prestinum nýja og frú hans.
Að guðsþjónustunni lokinni var samsæti, sem for-
göngumenn kristindómsmála í Brœðrasöfnuði buðu fólki
til, í skólahúsinu í Lundi hinum megin við Fljótið. Sam-
fara líkamlegum veitingum, sem vel voru úti látnar, fóru
þar fram rœðuhöld út af prestsvígslunni, sem víst má
telja einhvern mesta stórhátíðar-atburð í kirkjusögu
norðrbyggðanna í Nýja íslandi. Það var samkvæmt ein-
dreginni ósk safnaðarforstöðumanna þar nyrðra, að
prestvígsla þessi fór fram innan Brœðrasafnaðar og að
ekki var beðið með þá athöfn þar til á kirkjuþingi eða
um það leyti. Og er vonanda, að hinn hátíðlegi atburðr
hafi orðið og verði með guðs hjálp kristindómslífi safn-
aðalýðsins í því byggðarlagi til nokkurrar glœðingar,
eins og þeir, sem fyrir þessu gengust, ætluðust til.
Þetta er í annað skifti, að lútersk prestsvígsla hefir
farið fram í Nýja Islandi. Hið fyrra skifti var það árið
1880, á pálmasunnudag, 21. Marz, þá er Halldór Briem
var vígðr til hinna sameinuðu safnaða í Nýja Islandi, og
fór sú athöfn fram á Grimli.
Séra Jóh. Bjarnason liefir með f jölskyldu sinni setzt
rað á Hnausum í Breiðuvík, þar sem liann og liefir liafzt
við undanfarin sumur. Þeim var vel tekið þar á staðn-
um, og menn vona hins bezta út af því að hann hefir nfi
til fulls og alls tekið til starfa í söfnuðum þessum.
0-