Sameiningin - 01.06.1908, Blaðsíða 6
102
sem sáðjörð. Sé ’liún góð og hrein og vel yrkt, er fyrsta
skilyrði fyrir því fengið, að þar vaxi upp þriflegar korn-
stangir, sem á sínum tíma beri mikla ávexti í axi. Maðr
gæti því sagt: Grjörið heimilið í sjálfu sér gott; þávaxa
þar upp góð börn. Þótt út af bregði reglunni, þá mun
þetta þó nokkurn veginn algildandi lögmál. Að sönnu
afvegaleiðast mörg börn síðar í lífinu, þótt þan sé upp-
alin á góðum heimilum. En miklar líkur eru þó oft til
þess, að þau sjái að sér og betri sig aftr, rétt eins og
glataði sonrinn í dœmisögu frelsarans, þegar hann
minntist þess, hversu gott heimili hann hafði eitt sinn
átt.
Reglur eru margar kenndar fyrir því, hvernig börn
skuli upp alin, en sú er reglan bezt, að heimilið sé reglu-
heimili. Með því einu móti læra börnin hlýðni, að þau
í öllu sjái það fyrir sér, að föstum reglurn er lilýtt á
heimilinu. Það gildir lítið að skipa og skipa, eitt nú og
annað þá. En þar sem allt er reglubundið, verðr það
eðlilegt að hlýða reglugjörðunum sérstöku.
Hér skal vikið lauslega að því ætlunarverki lieimil-
isins, að vera barnaskólunum samverkandi. Skólinn er
mikil og blessuð guðs gjöf. Hann hefir næst heimilinu
mest álirif á börnin og' ræðr lífsstefnu þeirra. En hvor
stofnunin — heimilið og skólinn — má þá ekki spilla fyiúr
liinni. Yill það þó einatt verða, og er lieimilunum oftar
um að kenna. Foreldrar eiga að telja það lieilaga skyldu
sína, að innrœta börnunum virðingu fyrir kennurum
þeirra og láta þau ávallt hlvða þeim. Yfir engum örð-
ugleika kvarta kennarar meir en þeim, að foreldrarnir
spilli börnunum að því er skóla-aga snertir. Foreldrar
taka málstað barnanna, þegar þau verða fyrir ákúrum
í skólanum, og verða óbeinlínis til þess að ala upp í þeim
uppreisnar-liug og liroka. Aldrei ætti barn að heyra
fundið að kennaranum eða kennslunni heima hjá sér.
Þurfi eitthvað að leiðrétta, þá fari foreldrarnir til kenn-
arans sjálfs, eða þeirra, sem yfir skólanum ráða. A
þetta er hér bent af því að vér höfum svo iðulega orðið
þess varir, að foreldrar hafa ekki athugað þetta sem
skyldi. Og þetta getr oft varðað mjög miklu.