Sameiningin - 01.06.1908, Blaðsíða 32
128
Naumast minna háværir eru þeir, sem eru að verzla f
meö fugla — dúfur, andir, oft einnig með söngfugl þann,
er bulbul nefnist og er einskonar nætrgali, en lang-helzt
meö dúfur. Kaupendr, sem taka við fuglum þessurn úr
netjunum, geta sjaldnast látiö vera að hugsa um hið hættu-
lega líf veiöimannanna, sem í því skyni með áræði
miklu verða að klifra í hömrum fjallanna, þar sem þeir
ýmist hanga á höndum og fótum framan í berginu, ellegar
síga í körfum lángt niðr í fjallagljúfrin.
Þá eru þeir, sem eru.að kaupa sér ýmiskonar dýr —
asna, hesta, kálfa, sauðkindr, jarmandi kiðlinga, afkára-
lega úlfalda, — allskonar dýr önnur en svín, sem ekki mega
hafa þar landsvist. Slíkir menn birtast innan um þá, sem |
hafa gimsteina og gullskart til sölu, en þessir síðastnefndu
eru séðir náungar, í skarlatslitum og bláum skikkjum, með
feikna-stórum og þungum túrbönum á höfði, og eru þeir
sér þess fyllilega meðvitandi, hvílíkt aðdráttarafl er í
ljómanda silkibandi og skeranda bliki gulls hvort heldr í
armbandi eða hálsmeni, ellegar fingrhring eða nasanisti.
Einnig eru innan um þá, er kornið hafa til dýra- j
kaupa, menn, sem húsgögn hafa á boðstólum, menn,
sem hafa klæðnað til sölu, menn, sem selja smyrsl,
allskonar mangarar, sem • keppast við að koma út
ónauðsynlegum hlutum eigi síðr en nauðsynlegum.
En þeir, sem dýrin eru að kaupa, beita allri orku
við að toga þau áfram með taumböndum og strengj-
um, ýmist organdi, ýmist lokkandi. Allir þeir menn, sem
nú hefir verið bent á, eru þarna, — ekki einn og einn,
heldr í marg-endrteknum útgáfum, — ekki á einum stað,
heldr um allt sölutorgið.
Þá er lesandi hefir snúið sér frá því, er blasir við á
stígnum og hlaðinu, og lítr nú ekki lengr sölumennina og
vörur beirra, er honum nauðsynlegt að gæta næst að gest-
um og kaupendum, sem bezt er að virða fyrir sér utan
borgarhliðanna, þar sem það, er fyrir augun ber, er fullt
eins margbreytilegt og fjörugt; og í sannleika getr reynzt
meira um tilbreytni og fjör þar sökum iþess að nú bœtast
við tjöld, búðir, skálar, meira rúm, meiri fólksþyrping,
i::eira frelsi í framkomu manna, og hið dýrðlega austr- ,
lenzka sólskin, með áhrifum þeim, sem allt þetta hefir á j
áhorfanda. /|\
,,SAMEININGIN“ kemr út mánaðarlega. Hvert númer tvær
arkir heilar. Verð einn dollar um árið. Skrifstofa 118 Emily St.,
Winnipeg, Canada. — Hr. Jón J. Vopni er féhirðir og ráðsmaðr
„Sam.“ — Address: Sameiningin, P. O. Box 689, Winnipeg, Man.