Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.06.1908, Síða 3

Sameiningin - 01.06.1908, Síða 3
99 H eimi1ið. fFramhald frá síSasta blaöi og niðrlag.J Heimilið hefir tveimr skyldum að gegna: skyldu við sjálft sig og skyldu við almenning. Dyr þess eiga ekki ávallt að standa opnar; ekki heldr Gestrisni á eiga þær æfinlega að vera lokaðar. Hér er Ineimilinu. vandratað mundangshófið. Um fram allt er heimilið heimulegt. Það er friðheilagr staðr, sem eigendr einir ráða. Svo friðheilagt er heim- ilið, að það á að vera undanþegið ummælum og afskift- um annarra rnanna út í frá. Það er syndgað á móti lieimilinu, þegar það er gjört að opinberum stað, og ó- viðkomandi fólk gengr þar út og inn eins og væri það opinbert gistiliús. Sum heimili eru svo fótumtroðin, að blómabeðin þar stórskemmast. Samt sem áðr á heimilið ekki að vera harðlæst hús. Það á miklu fremr að vera sólskinsblettr, þar sem margir fá að koma og verma sig. Gestrisni hefir löngum verið talin með beztu kosturn þjóðar vorrar. En deildar geta verið skoðanir um það, hvað í raun og veru sé sönn gestrisni. Algengust merk- ing þess orðs virðist vera: að aðkomnum mönnum sé borinn mikill og góðr matr á borð, að húsfreyja þjóti í eldhúsið til að setja upp „litla ketilinn“ óðar en gest ber að garði. Holl er saðning svöngum og göngumóðum kaffið kært. En sjaldnast er það þó, að menn heimsœki kunningja sína sökum hungrs og þorsta. Þegar gest- risnin er það eitt, að fylla munn og rnaga, þá er hún naumast teljandi með dýrustu dyggðunum. Miklu meira hlýtr að vera í þetta hugtak spunnið. Skyldi ekki sönn gestrisni vera fyrst og fremst fólgin í vinsamlegu atlæti, ])ýðu viðmóti, einlægri viðleitni að gleðja lund gestsins? Þegar gestr fer burt af heimili, fer ekki á- nœgja hans yfir komunni eftir því, livort líkami lians liefir verið troðfylltr af mat, heldr því, hvort hugr hans hefir fyllzt unaði og hjarta hans fyllzt kærleika. Sú húsmóðir, sem listina þá kann, að skemmta gestum sín- um með hlýlegu viðmóti, uppbyggilegum samrœðum,

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.