Sameiningin - 01.06.1908, Síða 5
IOI
ekki sé þeir frakkaklæddir. Áherzlan skyldi öll á það
lögð, að gera gestunum stundina innilega og hugðnæma.
Kærleiksþelið kristilega ætti að hertaka liugi allra gesta,
er þeir koma á lieimilið. Hversu fátœklega sem veitt er,
þar sem föng eru smá, getr þó sönn gestrisni prýtt lieim-
ilið, sú gestrisni, sem er fólgin í kærleiksríku viðmóti,
góðvild og gleði.
Því meira af saklausri skemmtun sem haft er um
liönd á heimilunum, og því fleiri heimili sem verða tii
þess að iðka keimilis-skemmtanir, því ónauðsynlegra
verðr það, að menn ávallt kaupi skemmtanir sínar á alls-
konar opinberum skemmtistöðum, sem margir hverjir
eru ekki hættulausir, einkum unglingum. Ef fólk vildi
skemmta sér lieima, og á heimilum hvers annars, myndi
til muna minnka vandræðin, sem oft stafa af skemmt-
ana-eftirsókn manna. Þá myndi og fólk betr geta liald-
ið í hemilinn á œskulýðnum. Oft vill það verða, að allt
of lítið tillit er tekið til unglinganna, þegar verið er að
bjóða fólki og skemmta því á lieimilunum. Og argvítug
kredda er það, að stía eigi yngra og eldra fólki hvoru frá
öðru í skemmtunum. Sumir álíta, að ungt og roskið fólk
geti ekki skemmt sér saman. Þess vegna bjóða menn
gestum sínum svo, að þeir í þetta sinn hafa eldra fólkið
í boði, en í annað sinn unga fólkið. Það er óheppilegt.
Yngra fólkinu er þörf á aðhaldi því, er það liefir af eldra
fólkinu, og eldra fólkið þarfnast fjörs og gleði œsk-
unnar. Maðr á aldrei að verða gamall. Aldrei má maðr
verða svo gamall, að maðr geti ekki notið giaðværðar
lífsins. Guð skóp gleðina. Kristinn maðr ætti að vera
glaðastr allra manna. Lífsskoðun kristindómsins er
björt og gleðileg. Og hvergi ætti birta kristindómsins
að vera meiri en einmitt á lieimilinu.
Vandamál öllu stœrst er sá þáttr heimilislífsins, sem
lýtr að uppeldi barna. Hvernig gjöra megi heimilið svo
rir garði, að það sé liœfilegr vermireitr
Heimilið fyrir vorgróðr lífsins, er vandasamasta
og börnin. spurning alls þessa máls. Barnauppeldið
sjálft getr í smágrein þessarri naumast
komið til mála. Það er meira efni en svo. Heimilið er