Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.06.1908, Qupperneq 9

Sameiningin - 01.06.1908, Qupperneq 9
io5 Ný siðfrœði. Eftir séra Kristinn K. Ólafsson. ! Það er oft minnzt á „nýju guðfrœðina' ‘ í seinni tíð, eins og eðlilegt er, þar sem verið er að gjöra all-ítarlega tilraun til að ryðja henni braut víðsvegar um liinn kristna heim. Eitt af því, sem lienni er talið til gildis, er það, hve laus hún sé við allar kenningar-kreddur „gömlu guðfrœðinnar“. Enda er því ekki að neita, að hún sleppir œði-mörgu, sem „gamla guðfrœðin“- liefir mætur á. En maðr á ekki að óttast það neitt, segja þeir, sem „nýju guðfrœðinni“ fylgja, því liún sleppir engu nema trúarkenningum, en um trúarkenningar á manni að vera ósárt samkvæmt nýjustu tízku. Siðfrœði krist- indómsins láti hún óskerta, og’ ætti það að nœg’ja jafnvel þeim íhaldsömustu. 1 þetta sinn ætla eg ekkert á það að minnast, livílík fjarstœða það er að nema úr gildi trú- frœði þá, er Kristr og postularnir kenndu, og halda því samt fram, að kristindómrinn sé óskertr eftir sem áðr; en eg vildi leyfa mér að benda á það, hvernig ný sið- frœði virðist vera að gægjast fram á sjónarsviðið sam- liliða „nýju guðfrœðinni“, ef dœma á eftir því að minnsta kosti, livernig leitazt er við að ryðja henni braut af mörgum þeim, sem hana aðhyllast. Finnst mér þetta vera eftirtektarvert mjög, vegna þess einlægt er verið að fullvissa mann um að „nýja guðfrœðin“ snerti ekkert við gömlu siðfrœðinni. Lesandi getr skorið úr því, livað honum finnst vera rétt í þessu máli. Eg vil að eins benda á nokkuð af því lijá meðlialdsmönnum „nýju guðfrœðinnar“, sem mér finnst benda til, að ný siðfrœði sé á ferðinni. Fjölda-margir þeirra, sem liugfangnir eru orðnir af „nýju guðfrœðinni“ og halda henni fram, eru menn, sem tilheyra einliverri kristinni kirkjudeild, sem ákveðna trú- arjátningu hefir og stefnu. Þar á meðal eru auðvitað margir prestar tillieyrandi evangeliskum kirkjudeildum. Hafa þeir gjörzt kennimenn af frjálsum vilja, og játað sig undir lög og trúarjátningu þeirrar kirkjudeildar, er þeir *

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.