Sameiningin - 01.06.1908, Page 10
io6
tilheyra. Siðferðislega skyldi maðr ætla, að þeir menn
lilyti að skoða sig til þess knúða, að flytja erindi kristin-
dómsins, samkvæmt trúarjátningu kirkju sinnar, svo lengi
sem þeir ekki segja sig xir lienni. Og hverfi slíkir menn
frá trú kirkjunnar og megin-atriðum kristinnar trúar,
skyldi maðr ætla, að það væri sjálfsögð skylda þeirra að
flytja þann nýja sannleika, er þeir hafa fundið, utan vé-
banda kirkjunnar. Með því er hvorki samvizkufrelsi
einstaklingsins né rétti nokkurs kirkjuflokks misboðið.
En þessi aðferð er ekki við smekk margra „nýju guð-
frœðinganna' ‘. Mætir menn, sem aðhyllast „nýju guð-
frœðina“, og hljóta að gjöra sér grein fyrir því, live al-
gjörlega hún ríðr í bága við hinn sögulega kristindóm,
sem hinar evangelisku kirkjudeildir aðhyllast í játning-
arritum sínum, og þeir sjálfir hafa tekið að sér að flytja,
snúa við blaðinu og nota stöður sínar í kirkjuuni til að
útbreiða kenningar andvígar evangeliskum kristindómi,
án þess að þeir virðist hafa nokkra tilfinningu fyrir því,
að þeir sé ekki að fara sem hreinlegast að. Hvernig víkr
þessu við! Getr það verið nokkrum vafa bundið, að
maðr, sem tekr að sér eitthvert starf fyrir félagskap, er
hann tilheyrir, hefir ekki leyfi til að reka það þvert ofan
í stefnu þess félagskapar! Og gildir þetta ekki eins,
þótt starfið, sem rekið er, sé það að boða kristindóminn?
Samkvæmt gömlu siðfrœðinni væri ekki nema um eitt
svar að rœða upp á þessar spurningar. En nú virðast
margir skoða það harla óþarft að hugleiða annað eins
og þetta. Þeir ganga í þjónustu þessa eða hins kirkju-
félagsins, en virðast þó skoða sig alveg óháða. Þar sem
vér viljum ætla mönnum allt hið bezta, finnst oss, sem
þeir, er þannig koma frarn, hljóti að grundvalla hreytni
sína á einhverri „nýrri siðfrœði“, sem að einhverju
leyti eða á einlivern hátt sé samrímanleg nýju guðfrœð-
inni.
Að viðhafa orð, sem ákveðna og velþekkta merk-
ingu hafa, í nýrri merkingu, án þess að gjöra fullkomna
grein fyrir því, veldr oft miklum ruglingi. Menn taka
orðin í sinni gömlu merkingu, þótt þeir, sem tala þau,
leggi í þau nýja merkingu. Er þetta altítt í sambandi