Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.06.1908, Qupperneq 11

Sameiningin - 01.06.1908, Qupperneq 11
io7 við nýju guðfrœðina. „Nýju guðfrœðingarnir“ viðliafa að mestu sömu trúfrœðilegu orðatiltœkin sem áðr tíðk- uðust. En í þeirra munni merkja flest þeirra allt annað en áðr. Þeir tala um, að „trúa á Krist‘ ‘, og meina ekk- ert meira með því margir hverjir, en það, að þeir telji dœmi hans dýrmætt. Þeir tala um Krist sem guðs son, og þó neita margir þeirra guðdómi hans. Hann er að eins guðs sonr í sömu merkingu sem allir menn eru guðs synir. Þeir tala um boðskap Krists, en meina oft með því að eins siðalærdóm Krists, þótt það sé vitanlega að eins einn þáttr í boðskap Krists. Þannig mætti telja upp þvínær óendanlega. Eitt dœmi enn að eins skal liér nefnt. „Nýja guðfrœðin“ kallar boðskap sinn kristin- dóm, þótt hún gangi oft alveg fram lijá því sérkennilega við kristindóminn sem trúarbrögð, og boði í raun og veru almenna guðstrú. Sýnir þetta, hve langt er farið í því að klæða nýjar villukenningar í meinleysishjúp rétttrúaðra orðatiltœkja. Þetta finnst nú þeim, sem gömlu skoðuninni fylgja, ekki vera rétt að farið. Þeim finnst ekki rétt að reyna að dylja varninginn með um- búðunum, til þess að hann gangi betr út. Þeir vilja, að brœðr þeirra, „nýju guðfrœðingarnir“, flytji boðskap sinn þannig, að öllum geti verið ljóst, hvert þeir eru að stefna. Þannig er t. d. „Nýtt Kirkjublað“ á Íslandi að koma fram í síðustu tíð. Það er að opinbera stefnu sína betr og betr, og teljum vér það ávinning, að stefnan komi fram í réttri mynd, þótt vér hins vegar ekki getum skilið, livernig heiðvirðir menn skoða það rétt af sér að nota stöðu sína í kirkjunni til að útbreiða annan eins boðskap. En að boða hann svo, að öllum geti skilizt, hvert verið er að stefna, finnst oss þó ólíkt hreinlegri að- ferð en að leitast við að leiða fólk inn á landareign „nýju guðfrœðinnar“ gegn um svo dimma þoku, að ekki sé unnt að sjá, hvert verið er að stefna. Enda finnst oss, að til þess að réttlæta annað eins og það muni þörf á nýrri siðfrœði. Og hví vill þessi nýja stefna, sem í raun og veru er æfagömul, réttlæta bað, að hinar fráleitustu skoðanir beri kristilegt nafn? Um það er ekki hér að rœða, að

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.