Fréttablaðið - 09.04.2011, Blaðsíða 4
9. apríl 2011 LAUGARDAGUR4
UMHVERFISMÁL Verið er að leggja
drög að rannsókn þar sem leit-
að verður að þungmálmum í hári
barna á Ísafirði, í Vestmanna-
eyjum og á Kirkjubæjarklaustri.
Hugmyndin að rannsókninni er
tilkomin vegna mengunar frá
sorpbrennslum í sveitarfélögun-
um þremur.
Þórhallur Ingi Halldórsson,
lektor við heilbrigðisvísinda-
svið HÍ, segir hugmyndina vera
að grennslast fyrir um hvað hafi
hugsanlega gerst hjá þeim sem búa
næst sorpbrennslunum. „Óháð því
hvað kemur út úr rannsókn sótt-
varnalæknis, sem gengur út á að
mæla fullorðna einstaklinga sem
mestar líkur eru á að hafi orðið
fyrir útseytingu, þá viljum við
skoða skólabörn á aldrinum fimm
til tíu ára. Þá myndum við bæði
mæla blý og díoxín. Hugmyndin
gengur út á að allt að þrjátíu börn
yrðu skoðuð á hverjum stað auk
viðmiðunarhóps.“
Þórhallur, sem undirbýr verk-
efnið ásamt Hrönn Jörundsdótt-
ur, verkefnastjóra hjá Matís, segir
verkefnið standa og falla með því
hvort tekst að afla styrkja. Hann
leggur áherslu á að verkefnið snú-
ist ekki um að meta heilsufarslega
vá heldur er verið að afla frekari
vitneskju um það hvort mengun,
sem sannanlega er til staðar frá
sorpbrennslunum, hafi borist í
íbúa á svæðinu. Slík athugun þurfi
að fara fram áður en hægt sé að
fara að velta fyrir sér heilsufari,
sem væri svo næsta skref ef niður-
stöður gæfu tilefni til þess.
„Okkur langar til að skoða hvort
greina megi hækkuð gildi í börn-
um sem búa á þessum stöðum.
Til að átta sig á umfangi málsins
þarf mælingar á tiltölulega mörg-
um einstaklingum. Við vitum að
útseyting fyrir þessum efnum er
frekar lág hér á landi og því er
mikilvægt að skoða hvort nærupp-
spretta eins og sorpbrennsla leiði
til hækkaðra gilda í íbúum þess-
ara staða,“ segir Þórhallur. „Slík-
ar rannsóknir eru yfirleitt settar
af stað þegar áþekk mál koma upp
erlendis til geta metið hvort regl-
ur um viðmiðunarmörk séu raun-
hæfar, með tilliti til almannahags-
muna.“
En af hverju börn á þessum
aldri? „Börn eru mun viðkvæmari
en fullorðnir fyrir þessum efnum
og þau eru meira í snertingu við
ryk og jarðveg utandyra en full-
orðnir,“ segir Þórhallur. „Upptaka
þessara efna er því oft hlutfallslega
meiri hjá börnum en fullorðnum.“
Á svæðum þar sem jarðvegur er
mengaður hafa oft mælst hækkuð
gildi hjá börnum sem rekja má til
mengaðs ryks, þó svo að matvæli
séu ekki menguð. Slík hækkun er
oft afleiðing af upptöku efnanna
yfir mörg ár sökum þess hversu
þrávirk þau eru. „Það er alls óvíst
að slíkt hafi gerst hér en forsendur
eru til staðar og því mikilvægt að
fá úr því skorið,“ segir Þórhallur.
svavar@frettabladid.is
Vilja mæla blý í hári barna
Sérfræðingar hjá Háskóla Íslands og Matís undirbúa rannsókn þar sem leitað verður að þungmálmum í
hári barna. Rannsóknin yrði sjálfstætt framhald af heilsufarsrannsókn á mengun frá sorpbrennslum.
HÁRSÝNI Lítill hárlokkur getur geymt miklar upplýsingar um hvort einstaklingur hafi orðið fyrir mengun. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
26°
21°
14°
13°
18°
22°
10°
10°
20°
18°
24°
15°
32°
12°
21°
15°
8°Á MORGUN
Vaxandi SA-átt og síðan
hvöss SV-átt síðdegis.
MÁNUDAGUR
8-15 m/s.
14
11
10
10
10
10
13
5
8
8
7
13
14
9
8
6
6
7
5
6
15
15
8
8
8
7
7
5
5
2
5
4
BEST NA-LANDS
Það lítur út fyrir
veðurblíðu norðan-
og austanlands í
dag og hitinn ætti
að ná 14-16 stigum
nokkuð víða. Í
öðrum landshlut-
um verður veður
heldur síðra með
strekkingsvindi og
vætu.
Elísabet
Margeirsdóttir
veður-
fréttamaður
GENGIÐ 08.04.2011
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
215,8229
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
112,32 112,86
183,73 184,63
161,81 162,71
21,696 21,822
20,736 20,858
18,022 18,128
1,3165 1,3243
178,83 179,89
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403:
Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is
STJÓRNMÁL Sigmundur Davíð Gunnlaugsson,
formaður Framsóknarflokksins, vék ekki einu
orði að Icesave-málinu í ræðu sinni við setn-
ingu 31. flokksþings Framsóknar í Háskólabíói
í gær.
Skiptar skoðanir eru um Icesave-málið innan
Framsóknarflokksins, líkt og margra annarra
flokka. Þorri þingflokksins greiddi atkvæði
gegn samningnum á þingi, en Guðmundur
Steingrímsson og Siv Friðleifsdóttir hafa lýst
yfir opinberum stuðningi við hann.
Þótt Sigmundur hafi ekki nefnt Icesave á
nafn sagði hann þetta: „Íslendingar hafa oft
staðið frammi fyrir því að þurfa berjast hart
fyrir réttindum sínum en ávallt gert það með
rökum fremur en ofbeldi.“
Þegar framsóknarmenn og sósíalistar hafi
ákveðið að segja upp samningi við Breta frá
1901 sem gerði þeim kleift að veiða við strend-
ur landsins hafi Alþýðuflokkurinn brugðist
ókvæða við og hótað stjórnarslitum. „Rökin
voru þau að ekki mætti ögra alþjóðasamfé-
laginu, mikilvægir markaðir í Bretlandi og
víðar voru í húfi, lánafyrirgreiðsla o.s.frv.
Framsókn fór sínu fram og þjóðin hafði sigur,“
sagði Sigmundur.
Formaðurinn vék einnig að Evrópusam-
bandsumræðunni í ræðu sinni og sagði að
flokksmönnum þætti mörgum að afstaðan til
Evrópusambandsins þyrfti að vera skýrari. Sá
vilji birtist í því málefnastarfi sem fram hefði
farið í aðdraganda flokksþingsins. - sh
Formaður Framsóknarflokksins segir Íslendinga oft hafa þurft að berjast fyrir rétti sínum:
Sigmundur minntist ekkert á Icesave-málið
KEIKUR FORMAÐUR Sigmundur sagði Ísland vera land
framtíðar. Framsókn myndi ryðja bæði ríkisstjórninni
og skuldavanda þjóðarinnar úr vegi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
EFNAHAGSMÁL Líkur eru á að
seðlabankar heimsins hækki
stýrivexti á næstunni. Evrópski
seðlabankinn
ruddi braut-
ina á fimmtu-
dag og hækk-
aði stýrivexti
úr 1,0 prósenti
í 1,25. Camilla
Sutton, sér-
fræðingur
gjaldeyrismála
hjá kanadíska
bankanum
Scotia Captial,
sagði, í samtali við AP-frétta-
stofuna í gær, hækkunina tilraun
til að draga úr verðbólgu. Hún
taldi líkur á að aðrir seðlabank-
ar fylgdu fordæminu fljótlega.
Gengi evrunnar styrkist nokk-
uð eftir vaxtaákvörðunina og
hefur hún ekki verið sterkari
gagnvart Bandaríkjadal síðan í
janúar í fyrra. - jab
Vextir hækka á evrusvæðinu:
Tilraun til að
slá á verðbólgu
JEAN-CLAUDE
TRICHET
LANDBÚNAÐUR Óheimilt er að
gelda grísi, eldri en sjö daga
gamla, án deyfingar. Einnig er
óheimilt að slíta úr þeim eistun
og klippa halann af þeim án
brýnnar nauðsynjar. Kemur
þetta fram í nýútgefinni reglu-
gerð frá sjávarútvegs- og land-
búnaðarráðuneytinu um aðbún-
að og heilbrigði svína.
Dýralæknum er nú einum
heimilt að gelda grísi, eða þeim
sem hafa fengið til þess sérstakt
leyfi frá Matvælastofnun, en
eins og fram hefur komið hefur
verið algengt að svínabændur
geldi dýrin sjálfir. - sv
Nýjar reglur um dýrameðferð:
Bannað að slíta
eistu úr grísum
■ Fyrsta hluta heilsufarsrannsóknar sóttvarnalæknis vegna díoxínmengunar
frá sorpbrennslum á Ísafirði, Kirkjubæjarklaustri og Vestmannaeyjum lauk
fyrir stuttu. Tekin voru blóð- og hársýni auk sýnis af brjóstamjólk.
■ Ákveðið var að taka sýni úr íbúum til að ganga úr skugga um hvort díoxín,
sem greinst hefur í skepnum, afurðum og fóðri í nálægð við sorpbrennsl-
una Funa á Ísafirði, hefði náð til íbúa.
■ Næsta skref er að koma sýnum á rannsóknastofu erlendis til greiningar.
Niðurstaðna er að vænta eftir fimm til sex vikur.
■ Mælingar í útblæstri frá sorpbrennslunum hafa sýnt að þungmálmar eins
og blý hafa verið yfir mörkum eins og díoxín.
■ Það er hagkvæmt og skilvirkt að mæla blý í hári þar sem það er marg-
falt ódýrara en díoxínmælingar. Finnist blý gefur það vísbendingar um að
díoxín sé þar einnig að finna.
■ Umhverfisstofnun mun gera sérstaka rannsókn á jarðvegi í nágrenni við
sorpbrennslurnar, auk annarra svæða þar sem er mengandi starfsemi.
Sýnatakan er áformuð í maí næstkomandi.
Rannsóknir vegna mengandi starfsemi