Fréttablaðið - 09.04.2011, Blaðsíða 86
9. apríl 2011 LAUGARDAGUR54
Eruð þið öll búin að læra lengi
á hljóðfæri? „Já, við erum báðar
búnar að æfa á klarinett í langan
tíma,“ segja Áslaug og Jófríður.
„Áslaug spilar líka á fagott og
ég æfi á píanó,“ segir Jófríður.
„Ég kenndi mér sjálfur að spila á
píanó, hef lært á básúnu og harm-
óníku og líka á gítar. Núna er
ég að læra að gera tölvutónlist,“
segir Þórður.
Hvað á maður að gera ef mann
langar til að stofna hljómsveit?
„Maður finnur bara einhverja
góða vini sem eiga hljóðfæri
og byrjar bara að spila. Það
geta allir gert eitthvað á
hljóðfæri.“
Þarf ekki að æfa rosa-
lega mikið fyrir svona
keppni? „Jú, æfingin
skapar meistarann.
Við þurftum að æfa
okkur rosa mikið því
við vildum standa
okkur vel á svið-
inu. Við fórum yfir
það sem betur
mátti fara síðan á
undankvöldinu og
bættum það, sem
skilaði sér svona
líka vel. Það getur
verið erfitt að
þurfa að æfa sig
svona mikið en það
er gaman á endan-
um því þá gengur
manni vel.“
Bjuggust þið við
því að vinna? „Við
bjuggumst ekkert
við því að vinna
og það kom mjög
mikið á óvart.“
Hvernig tilfinning
er það að vinna?
„Það er auðvitað
mjög gaman að vinna
en þetta snýst meira
um að hafa gaman af
og taka þátt. Það sem
er skemmtilegast við
það að vinna er að vita
að maður gerði sitt
besta og það skilaði
góðum árangri.“
Hver er uppáhalds-
músíkin ykkar?
„Við hlustum á alls
konar tónlist,“ segja
þau í kór. „Uppáhaldshljómsveit-
in mín er Maus, sem vann líka
músíktilraunir fyrir mörgum
árum, en annars hlusta ég mest
á raftónlist,“ segir Þórður. „Við
Doddi fílum bæði Trentemöller
og Jófríður hlustar mjög mikið á
Stereolab,“ segir Áslaug.
Ætlið þið bráðum að gefa út disk?
„Við erum ekki búin að ákveða
hvenær en það væri mjög gaman
að gefa út disk!“
krakkar@frettabladid.is
54
Það er auð-
vitað mjög
gaman að vinna en
þetta snýst meira um
að hafa gaman af og
taka þátt. Það sem er
skemmtilegast við það
að vinna er að vita að
maður gerði
sitt besta
og það
skilaði
góðum
árangri.
Svör:
1. Kate Middleton.
2. Catherine.
3. 29 ára.
4. Í Háskólanum í St.
Andrews í Skotlandi.
5. Í næstum átta ár.
6. Blár.
7. Díana móðir Vilhjálms.
8. Westminster-klaustri.
9. Pippa Middleton,
systir Kate.
10. Harry bróðir hans.
Þú getur sent brandara til krakkar@frettabladid.is
Af hverju hafa fílar rana?
Af því þeir hafa enga vasa til að
geyma hluti í.
Af hverju stökk fíllinn ofan í
vatnið þegar byrjaði að rigna?
Til að blotna ekki.
Hvað gera fílar á kvöldin?
Horfa á sjónvarpið.
Dýrahirðirinn: „Ég hef týnt
einum fílnum mínum.“
Annar dýrahirðir: „Af hverju
auglýsirðu ekki í blaðinu?“
Dýrahirðirinn: „Ekki vera vit-
laus, hann kann ekkert að
lesa.“
Drengur með fíl á hausnum
kemur til læknis.
Læknirinn: „Þú þarft greinilega
á hjálp að halda!“
„Ég veit,“ segir fíllinn, „taktu
þennan krakka af fætinum á
mér.“
HTTP://KIDS.YAHOO.COM/GAMES
er vefsíða með ýmsum fríum tölvuleikjum.
1. Hvað heitir stúlkan sem Vilhjálmur
Bretaprins ætlar að kvænast í apríl?
2. Hvert er raunverulegt skírnarnafn
hennar?
3. Hvað er hún gömul?
4. Hvar kynntust hún og Vilhjálmur
prins?
5. Hvað eru þau búin að vera lengi
kærustupar?
6. Hvernig var kjóllinn á litinn sem
hún klæddist þegar þau tilkynntu
trúlofun sína?
7. Hver átti áður trúlofunarhringinn
hennar?
8. Hvar ætla þau að gifta sig?
9. Hver verður brúðarmeyja hennar?
10. Hver verður svaramaður Vilhjálms
prins?
ERFITT AÐ ÆFA MIKIÐ
EN ÞAÐ SKILAR SÉR
Hljómsveitin Samaris bar sigur úr býtum á Músíktilraunum 2011 um síðustu helgi.
Í henni eru Áslaug Rún Magnúsdóttir, Jófríður Ákadóttir og Þórður Kári Steinþórs-
son sem öll eru nemendur í MH. Krakkasíðan tók þau í yfirheyrslu.