Fréttablaðið - 09.04.2011, Blaðsíða 92
9. apríl 2011 LAUGARDAGUR60
Myndlist ★★★★
Hann og hún - Ég og þau/ He and She - Me
and Them
Hannes Lárusson
Kling og Bang við Hverfisgötu
Hannes Lárusson á víðfeðman feril að baki. List hans
er ekki til þess fallin að vera flokkuð undir einn hatt.
Þó má líklega með sanni segja að verk hans byggi á
arfleifð hugmyndalistar sem fram kom á síðari hluta
20. aldar. Hugmyndalistin á sér síðan rætur lengra
aftur í tímann og svo mætti áfram halda; þannig teng-
ist list samtímans liðinni tíð jafnan órofa böndum.
Hannes er nú heiðurslistamaður Sequences-hátíð-
arinnar, er byggir á tímatengdri list og gjörningum
sem eiga sér stað víða um bæinn og stendur í nokkra
daga. Hann sýnir í Kling og Bang og tileinkar sýn-
ingarstaðnum innsetningu sína sem er allt í senn; inn-
setning, gjörningur, myndband, málverk og fleira.
Eitt af hugðarefnum Hannesar hefur um nokkurt
skeið verið tengsl handverks og listar og þessi tengsl
skoðar hann m.a. með tilliti til viðhorfs almennings
til listar og listamanna, en lífseig er sú skoðun að
listamenn „ættu nú bara að fá sér vinnu“. Líklega er
hún eins gömul og orðtækið um að bókvitið verði ekki
í askana látið.
Sýning Hannesar byggir á gjörningi sem stendur
fram á sunnudag 10. apríl og sýningu sem er uppi til
1. maí. Gjörningurinn er einnig tvískiptur, annars
vegar sá gjörningur sem átti sér stað á opnun hinn 1.
apríl og síðan nærvera listamannsins í sýningarrým-
inu til 10. apríl þar sem hann situr við að smíða ausur
úr tré og afsannar þar með klisjuna um að listamenn
vinni ekki fyrir brauði sínu.
Gjörningurinn á opnun er undirstaða sýningar-
innar, sem hefur breytt sýningarsalnum í eitt stórt
athafnamálverk. Myndband sýnir áhorfendur á
opnun kasta vatnsblöðrum fylltum litum í Hannes og
aðstoðarkonu hans þar sem þau hringsnúast fest á
stór spjöld sem minna á pyntingartæki. Blöðrurnar
sprungu ýmist á spjöldunum eða veggjum gallerís-
ins, kannski á fórnarlömbunum, en myndbandið sýnir
áhorfendur að verki og viðbrögð þeirra. Hér koma
saman nokkrir þættir sem einkennt hafa gjörninga-
list. Líkamleg þjáning og úthald, ögrun við áhorfend-
ur og þátttaka áhorfenda í listaverki á óþægilegan
máta. Ekki síst birtist staða listamannsins á kald-
hæðnislegan hátt.
Samspil myndbandsins, verksummerkin í rýminu
og vinnuaðstaða listamannsins þar sem hann smíðar
ausur og steypir blýform er óvenjulegt og frumlegt
eins og Hannesi er lagið. Verk hans eru jafnan marg-
laga og má túlka þau á ýmsa vegu. Sýningin einkenn-
ist af grundvallarþáttum sem verða eins og tákn fyrir
undirstöður mannlegrar tilveru; handverk, vinnuað-
staða, endurtekning. Gjörningurinn með blöðrunum
býr síðan yfir karnivalskri grimmd sem er miðalda-
leg í einfeldni sinni um leið og hún kallast á við mun
yngri sögu gjörningalistarinnar. Ragna Sigurðardóttir
Niðurstaða: Sérstæð og eftirminnileg sýning þar sem
Hannes Lárusson tvinnar saman jafn ólíka þætti og hefð-
bundið íslenskt handverk og ögrandi gjörningalist. Áleitin og
forvitnileg sýning sem óhætt er að mæla með.
Undirstöður mannlegrar tilveru
Danska dagblaðið Politiken hælir
sænskri þýðingu á smásagnasafni
Gyrðis Elíassonar, Milli trjánna,
í hástert í ritdómi sem birtist í
vikunni.
Í dómi sínum líkir ritrýnirinn,
Thomas Bredsdorff, Gyrði við
bandaríska rithöfundinn Ray-
mond Carver og segir hann vera
meistara hins knappa, eimaða
prósa. Með verki sínu hafi Gyrðir
gert sterkt tilkall til Bókmennta-
verðlauna Norðurlandaráðs og
það væri engin skömm að því að
veita honum þau. Politiken gefur
hjörtu í stað stjarna og gefur
Bredsdorff bókinni fimm hjörtu
af sex mögulegum. Bredsdorff er
virtur gagnrýnandi í Danmörku
og var prófessor í norrænum bók-
menntum frá 1978 til 2004.
Gyrðir er tilnefndur til Bók-
menntaverðlauna Norðurlanda-
ráðs fyrir hönd Íslands ásamt
Ísaki Harðarsyni. Tilkynnt
verður hver hlýtur verðlaunin á
þriðjudag. - bs
Politiken hælir Gyrði
GYRÐIR ELÍASSON Ritrýnir danska
dagblaðsins Politiken segir að með
smásagnasafninu Milli trjánna geri
Gyrðir sterkt tilkall til bókmenntaverð-
launa Norðurlandaráðs. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Rúmlega fjögur hundruð dansar-
ar frá tuttugu löndum hafa sótt um
stöðu hjá Íslenska dansflokknum.
Þrír dansarar, Katrín Á. Johnson,
Katrín Ingvadóttir og Guðmundur
Elías Knudsen, leggja senn dans-
skóna á hilluna og skapast þar með
pláss fyrir nýja dansara. Jóhanna
Pálsdóttir, upplýsingafulltrúi hjá
Íslenska dansflokknum, segir
mikið gleðiefni hversu margar
umsóknir bárust.
„Þetta sýnir hversu mikillar
virðingar dansflokkurinn nýtur
á alþjóðlegum vettvangi og má
þakka því ötula starfi hér hefur
verið unnið undir stjórn Katrínar
Hall,“ segir Jóhanna. „Hún hefur
skapað flokknum sterka ímynd og
fengið til samstarfs mörg stærstu
nöfnin í dansheiminum.“
Fimmtán íslenskir dansarar
sóttu um hjá flokknum. Prufur
fyrir þá hafa þegar verið haldn-
ar og segir Jóhanna þá njóta for-
gangs yfir aðra umsækjendur.
Hinir umsækjendurnir hafa verið
grisjaðir niður í 60 og þreyta þeir
prufur í Oldenburg í Þýskalandi í
næstu viku, þar sem Íslenski dans-
flokkurinn tekur þátt í alþjóðlegri
danshátíð. Jóhanna segir það ekki
síður vitnisburð um hversu mik-
ils metinn dansflokkurinn er að
flestir dansaranna ferðast á eigin
kostnað til Oldenburg til að taka
þátt í prufunum.
Ellefu dansarar eru nú hjá
Íslenska dansflokknum og því
talsverðar hræringar þegar þrír
reyndir dansarar láta af störf-
um, en öll þrjú hafa dansað með
flokknum síðan Katrín Hall tók
við stjórnartaumunum 1996. Ekki
liggur fyrir hvort ráðið verður í
allar stöðurnar eða hvort dönsur-
um flokksins verður fækkað vegna
samdráttar.
400 sækja um hjá ÍD
ÍSLENSKI DANSFLOKKURINN Flokkurinn tekur þátt í alþjóðlegri danshátíð í Þýska-
landi í næstu viku og notar tækifærið í leiðinni og heldur prufur fyrir um sextíu
vongóða umsækjendur.
CINTAMANI
WWW.CINTAMANI.IS
TRYGGÐU ÞÉR MIÐA STRAX
„Þessi leiksýning hefur allt
sem þarf til að skapa vel heppnað
og eftirminnilegt leikverk.“
I.Þ., Mbl.
„Þetta var geggjuð flott sýning,
eins og gelgjan sagði.
Og hvað viljið þið meira?“
B.S., pressan.is „Critics choice“
Time Out, London
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
fim. 12/5 kl. 20 – lau. 21/5 kl. 20 – fös. 27/5 kl. 20