Fréttablaðið - 09.04.2011, Blaðsíða 94
9. apríl 2011 LAUGARDAGUR62
folk@frettabladid.is
Bretar bíða spenntir eftir
brúðkaupi ársins hinn 29.
apríl þegar Vilhjálmur
prins gengur að eiga unn-
ustu sína, Kate Middleton.
Enska biskupakirkjan biður
fyrir því að hjónin verði
hvort öðru trú.
Breska þjóðin bíður nú með öndina
í hálsinum eftir því að Kate Middle-
ton verði hennar næsta prinsessa
þegar hún gengur að eiga Vilhjálm
prins. Parið hefur verið sundur og
saman undanfarin ár en nú er komið
að stóru stundinni. Búist er við því
að 600 þúsund ferðamenn leggi leið
sína til Lundúna til þess eins að
fylgjast með athöfninni og öllu húll-
umhæinu. Athöfnin og brúðkaupið
verða í beinni útsendingu á RÚV
og þau Bogi Ágústsson og Elísabet
Brekkan munu lýsa því sem fyrir
augu ber. Athöfnin stendur frá tíu
að morgni föstudagsins 29. apríl til
korter yfir tólf. Eftir að hafa verið
gefin saman er hinum nýgiftu ekið
í opnum vagni að Buckingham-
höll, þar sem Vilhjálmur og Kate
munu veifa til þjóðar sinnar. Til að
koma í veg fyrir tafir hefur gest-
um brúðkaupsins verið ráðlagt að
mæta tveimur og hálfum tíma fyrir
athöfnina sjálfa.
Tvö þúsund gestir eru á fyrsta
gestalistanum og þar má sjá nöfn á
borð við Kanye West, David Beck-
ham, Elton John og aðrar slík-
ar stórstjörnur. Athygli vekur að
fáum þjóðhöfðingjum er boðið,
Barack Obama fékk ekki boðs-
kort né Frakklandsforsetinn Sar-
kozy eða Ólafur Ragnar Grímsson.
Tvö þúsund manna listinn verður
síðan skorinn niður í 600 sem verð-
ur boðið í hressingu hjá Elísabetu
drottningu. Aðalveislan er síðan
kvöldverður í boði Karls Bretaprins
en þangað fá aðeins 300 gestir boðs-
kort. Ekkert hefur verið gefið út
hvað verður á matseðlinum en fjöl-
miðlar gera því skóna að matseðill-
inn verði mjög breskur. Þá er jafn-
framt búist við því að brúðkaupið
sjálft eigi eftir að vera vítamín-
sprauta í annars krepptan efnahag
Bretlands og hafa tölur eins og þrír
milljarðar punda verið nefndar í því
samhengi. Varningur tengdur brúð-
kaupinu eigi eftir að rjúka út, áfeng-
isneysla verði umtalsverð og fólk
eigi eftir að gera vel við sig í mat.
Búið er að setja Kate Middleton-
dúkku á markað sem sérfræðingar
spá að eigi eftir að njóta mikilla vin-
sælda og ekki má heldur gleyma því
að sannur konungsvinur gæti keypt
æskuheimili prinsessunnar sem er
nú til sölu.
Bretar hafa ekki upplifað jafn
spennandi tíma í konunglegum ásta-
málum síðan Karl Bretaprins giftist
Díönu Spencer fyrir næstum þrjátíu
árum en það var kallað „brúðkaup
aldarinnar“ í bresku pressunni.
Það markaði reyndar upphaf ákaf-
lega dökkra tíma í sögu bresku kon-
ungsfjölskyldunnar þar sem sögu-
þráðurinn minnti á sápuóperu frá
Ameríku. Því kemur það kannski
engum á óvart að forsvarsmenn
ensku biskupakirkjunnar skuli nú
biðja fyrir því að Vilhjálmur og
Kate Middleton verði hvort öðru
trú í hjónabandinu og standi við
þann samning sem þau gera frammi
fyrir Guði og mönnum í Westminst-
er Abbey. Breska blaðið Telegraph
fjallar um bænina á vefsíðu sinni og
rifjar upp sögu svika í Buckingham
seint á síðustu öld. Þannig viður-
kenndi Karl Bretaprins í sjónvarps-
viðtali að hann hefði haldið framhjá
Díönu með núverandi eiginkonu
sinni, Camillu Parker Bowles. Díana
launaði honum lambið gráa og upp-
lýsti í öðru sjónvarpsviðtali að hún
hefði alltaf elskað og dáð liðsfor-
ingjann James Hewitt. Elísabetu
Bretadrottningu svelgdist síðan
á morgunkaffinu skömmu seinna
þegar hún sá myndir af tengdadótt-
ur sinni, Söruh Ferguson, og ást-
manni hennar, John Bryan, láta vel
að hvort öðru á snekkju. Sarah var
þá enn gift Andrési prins.
Breska þjóðin virðist hins vegar
trúa því að með þessu hjónabandi
ljúki hrakfallasögu ástarinnar
innan bresku krúnunnar. Og þeir
forðast allar hástemmdar nafngift-
ir eins og brúðkaup aldarinnar. Allt
kapp er lagt á að gera brúðkaupið
sem glæsilegast úr garði og fjöl-
miðlum er gert að sýna bæði Kate
og fjölskyldu hennar tilhlýðilega
virðingu, enginn vill láta prinsess-
una ungu upplifa Díönu-martröðina.
Í gær kvartaði fjölskylda Middleton
meðal annars undan áreitni frá ljós-
myndurum en þeir höfðu þá setið
um móður Kate þar sem hún var að
versla.
freyrgigja@frettabladid.is
Kate Middleton og Vilhjálmur
prins ganga að eiga hvort
annað þann 29. apríl næst-
komandi. Búist er við því að
hátt í 600 þúsund ferðamenn
leggi leið sína til London til að
fylgjast með brúðkaupinu og
að efnahagur landsins verði
fyrir þriggja milljarða punda
vítamínssprautu með sölu
á vörum tengdum brúðkaupinu. Allt kapp er lagt á að brúðkaupið verði
óaðfinnanlegt og því eru hestvagnarnir og bílarnir sem notaðir eru í brúð-
kaupinu fægðir eftir kúnstarinnar reglum.
Bretar bíða spenntir eftir
brúðkaupi Vilhjálms og Kate
EKKERT VENJULEGT Það er ekkert venjulegt við brúðkaup Vilhjálms prins og Kate
Middleton en því mun meðal annars bregða fyrir í ensku sápuóperunni Eastenders.
Persónurnar munu þannig halda upp á brúðkaupið upp á breskan máta í sjón-
varpsþættinum sjálfum. Þá hefur Channel 5 fest kaup á leikinni mynd um samband
Vilhjálms og Kate sem verður sýnd í aðdraganda brúðkaupsins.
Grínistinn Steindi Jr. og
samstarfsfólk hans héldu
heljarinnar frumsýningarveislu
í gyllta salnum á Hótel Borg
á fimmtudagskvöld. Fyrsti
þáttur í nýrri seríu
Steindans okkar var
sýndur á breiðtjaldi og
þotuliðið lét sig að
sjálfsögðu ekki vanta.
Auðunn Blöndal
mætti á svæðið
ásamt kærustunni
sinni Írisi Björk. Með
í för voru Hugi Hall-
dórsson og Kristófer
Dignus. Vöðvatröllin
Arnar Grant og Ívar
Guðmundsson litu að
sjálfsögðu inn, rétt eins
og sjónvarpskokkurinn
Hrefna Rósa Sætran.
Þá lék Ásgeir Kolbeins-
son á als oddi og gerði
athugasemdir við
tækjabúnaðinn
í salnum, enda
mikill græjukall.
Orri Dýrason í
Sigur Rós mætti
einnig í veislu
Steinda ásamt
Lukku, eiginkonu
sinni. Fyrirsætan
Lilja Ingibjargar
hafði gaman
af frumsýn-
ingarþættinum,
rétt eins og
rapparinn Erpur
Eyvindarson
og umboðs-
maðurinn Steinþór Helgi
Arnsteinsson, en þeir félagar
eru yfirleitt ekki langt undan í
veislum sem þessum. Vala
Grand var einnig í miklu
stuði eins og systurnar
Hlín Einars og Malín
Brand frá Bleikt.is.
Fréttahaukarnir Helgi
Seljan og Kristinn
Hrafnsson voru
hrókar alls fagnaðar
í veislu Steinda. Tón-
listarmaðurinn Davíð
Berndsen skemmti
sér vel og parið Erna
Bergmann fatahönn-
uður og tónlistarmað-
urinn Birgir Ísleifur ræddi
við leikstjórann Ragnar
Hansson, sem mætti
beint af körfuboltavell-
inum í veisluna.
- afb
FRÉTTIR AF FÓLKI
BRÚÐKAUPS-ÆÐI
85
ára afmæli Playboy-dólgsins Hugh Hefner er í dag, en
Crystal Harris, unnusta hans, verður einmitt 25 ára í lok
apríl. Þau ætla að ganga í það heilaga í sumar.
Leiðarvísir að lífsgleði - námskeið með Siggu kling
ORÐ ERU ÁLÖG
Orð eru álög er einstakt námskeið og fyrsta sinnar
tegundar með Siggu Kling. Námskeiðið er byggt á
samnefndri bók þar sem þátttakendur læra að tengja
sig sálinni, ná betri tökum á lífi sínu og finna leiðina
að hamingjunni. Hentar fyrir alla aldurshópa.
Námskeiðið verður haldið í fræðslusal Maður Lifandi,
Borgartúni 24, þriðjudaginn 12. apríl, kl.18:00 og
kostar aðeins 2.900 kr. Að auki fá allir þátttakendur
hljóðdiskinn „Þú ert frábær“
Skráning á madurlifandi@madurlifandi.is
Nánari upplýsingar á www.madurlifandi.is
www.madurlifandi.is
Borgartúni 24
105 Reykjavík
Sími: 585 8700
Hæðarsmára 6
201 Kópavogur
Sími: 585 8710
Hafnarborg
220 Hafnarfirði
Sími: 585 8720