Fréttablaðið - 09.04.2011, Blaðsíða 90
9. apríl 2011 LAUGARDAGUR58 58
menning@frettabladid.is
Ljóðaunnendur fá eitthvað
fyrir sinn snúð í apríl, því
forlagið Uppheimar gefur
út fimm ljóðabækur í mán-
uðinum. Von er á verki eftir
Ísak Harðarson þegar nær
dregur hausti.
Bókaforlagið Uppheimar gefur út
fimm nýjar ljóðabækur í apríl. Á
dögunum kom út hjá Uppheimum
nýtt ljóðaþýðingasafn Gyrðis Elí-
assonar, Tunglið braust inn í húsið.
Á föstudag, í byrjun viku bókar-
innar, koma út fjórar nýjar ljóða-
bækur til viðbótar: Kafbátakór-
inn eftir Steinunni G. Helgadóttur,
handhafa Ljóðstafs Jóns úr Vör;
Blindir fiskar, önnur ljóðabók
Magnúsar Sigurðssonar; Höfuð
drekans á vatninu eftir Guð-
brand Siglaugsson og Marlene og
ég eftir Gunnar M.G. Þá verður
bók Eyþórs Árnasonar, Hundgá
úr annarri sveit, endurútgefin, en
hún hefur verið ófáanleg um skeið.
Óvanalegt er að svo margar
ljóðabækur komi út hjá einu og
sama forlaginu utan vertíðarinn-
ar fyrir jól. Aðalsteinn Svanur
Sigfússon, sem stendur að Upp-
heimum ásamt Kristjáni Krist-
jánssyni, segir hins vegar að ljóð-
in hafi verið það sem rak þá félaga
í útgáfustarfsemi.
„Við erum í þessum bisness af
bókmenntaástríðu,“ segir Aðal-
steinn. „Við erum báðir skáld og
bókmenntamenn og þetta er það
sem okkur finnst skemmtilegast,
að gefa út góðar ljóðabækur og
bókmenntaverk.“
Ljóðabækur tróna sjaldan á
toppi metsölulista. Spurður hvort
þeir Kristján trúi á ljóðabókina
sem söluvöru, segir Aðalsteinn svo
ekki vera.
„Í rauninni gefum við út ljóða-
bækur til að tapa á þeim,“ segir
hann og hlær. „Það er að segja
við gerum ráð fyrir fyrirfram
ákveðnu tapi – peningalegu það
er að segja. Auðvitað eru til ljóða-
bækur sem seljast vel en þær eru
miklu færri en hinar. Ljóðin búa
hins vegar til ímyndina og sýna
hvað við hjá Uppheimum viljum
gera og það stendur með okkur í
öllu hinu.“
Tekjupóstar Uppheimar koma
aðallega af þýddum bókum, eink-
um reyfurum og innlendum höf-
undum sem seljast einatt vel að
sögn Aðalsteins, til dæmis Ævar
Örn Jósepsson og Böðvar Guð-
mundsson.
„Svo erum við líka með ýmiss
konar hliðarverkefni sem hafa
gefið vel í aðra hönd, til dæmis
bókina um Eyjafjallajökul, sem
var ein af mest seldu bókunum í
fyrra og gengur enn vel.“
Uppheimar hafa ekki lokið sér
af í ljóðaútgáfu á árinu. Í haust er
von á annarri ljóðabók frá Eyþóri
Árnasyni, sem og nóvellu frá Ísak
Harðarsyni.
„Það er að vísu nokkuð síðan
hann Ísak skrifaði þessa bók
en hún hefur ekki verið gefin út
áður.“ bergsteinn@frettabladid.is
Ljóðin eru ekki til að græða á
UPPHEIMAMENN Aðalsteinn Svanur Sigfússon, Þorleifur Rúnar Örnólfsson framkvæmdastjóri og Kristján Kristjánsson.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Viðmið nefnist sýning Auðar
Vésteinsdóttur sem opnuð var
í Listasal Mosfellsbæjar á dög-
unum. Á sýningunni eru ný sam-
klippsverk. Auður notar land- og
sjókort sem leiðarstef til að lýsa
margbreytilegum formum sem
hverfult veðurfar varpar á land
og sjó.
Auður lauk námi frá textíldeild
Myndlista- og handíðaskóla Íslands
og kennsluréttindum frá Kenn-
araháskóla Íslands. Hún hefur
haldið á annan tug einkasýninga og
tekið þátt í fjölmörgum samsýning-
um hér heima og erlendis.
Auður Vésteinsdóttir ræðir sýn-
ingu sína í Listasalnum laugardag-
inn 16. apríl næstkomandi klukkan
13.30.
Viðmið í Mosfellsbæ
Laugardagur 9. apríl 2011
➜ Tónleikar
15.00 Stúlknakór Reykjavíkur heldur
vortónleika með yfirskriftinni „Hættu’að
gráta Hringaná” í Grensáskirkju kl. 15.
Alíslensk efnisskrá.
16.00 Grundartangakórinn heldur tón-
leika í Tónbergi á Akranesi í dag kl. 16.
Bergþór Pálsson syngur með kórnum.
Stjórnandi er Atli Guðlaugsson og með-
leikari er Flosi Einarsson á píanó.
17.00 Tónleikar Kammerkórsins Ópus
verða í Seltjarnarneskirkju í dag kl. 17.
Fjölbreytt efnisskrá. Aðgangseyrir kr.
1500.
22.00 Hljómsveitin Árstíðir heldur
tónleika á Café Rósenberg kl. 22 í
kvöld. Leikin verða ný lög í bland við
gömul. Aðgangseyrir er kr. 1500. Posi
við dyrnar.
➜ Opnanir
14.00 Ninna Þórarinsdóttir opnar
sýningu sína, Ninnuundrin, í Listagilinu
á Akureyri kl. 14. Sýningin er samansafn
gamalla og nýrra verka. Sýningu lýkur
16. apríl. Opið um helgar frá kl. 14-17.
15.00 Sýningin Slóðir, verk eftir Gunn-
hildi Þórðardóttur, verður opnuð í
Mjólkurbúinu á Akureyri í dag kl. 15.
Sýningin stendur til 24.apríl.
15.00 Yfirlitssýning á verkum lista-
konunnar Elínar Pjet. Bjarnason opnar
í Listasafni ASÍ í dag kl. 15. Sýningin
stendur til 15. maí. Aðgangur ókeypis.
16.00 Sýning Bryndísar Hrannar Ragn-
arsdóttir, Hrynjandinn er dansfífl, opnar
í Suðsuðvestur kl. 16. Sýningin stendur
til 8. maí.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is
VÆNTANLEGAR LJÓÐABÆKUR UPPHEIMA:
Kafbátakórinn er fyrsta ljóðabók Steinunnar G. Helgadóttur sem fyrir
skömmu hlaut Ljóðastaf Jóns úr Vör 2011 fyrir ljóðið Kaf. Steinunn er
þekktust fyrir störf sín að myndlist.
Blindir fiskar er önnur ljóðabók Magnúsar Sigurðssonar sem hlaut Bók-
menntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar 2008 fyrir sína fyrstu ljóðabók,
Fiðrildi mynta og spörfuglar Lesbíu.
Höfuð drekans á vatninu eftir Guðbrand Siglaugsson er ellefta ljóðabók höf-
undar sem þó hefur lítið látið fyrir sér fara síðustu ár. Hér yrkir Guðbrandur
sem fyrr um tímann, kvæðið og hafið.
Marlene og ég eftir Gunnar M. G. er þriðja ljóðabók þessa unga skálds sem
vakið hefur athygli með bókunum Skimað út og Milli barna.
Næsta byrjendanámskeið í
salsa hjá SalsaIceland hefst
Þú þarft ekki að koma með dansfélaga!
Afslættir fyrir námsmenn og námskeið eru
niðurgreidd af öllum helstu stéttarfélögum.
Ókeypis prufutími fyrir byrjendur alla
fimmtudaga kl. 20:00 á Thorvaldsen.
Næsta námskeið í Zumba hefst 19. apríl.
Allir velkomnir í ókeypis prufutíma!
Zumbakennararnir okkar búa yfir mikilli
reynslu á sviði þolfimi- og danskennslu og
sjúkraþjálfunar, auk þess að vera allir
lærðir zumbakennarar.
Grensásvegi 12a 108 Reykjavík sími 511 2422
– eini sérhæfði salsadansskólinn á Íslandi
www.salsaiceland.is
fimmtudaginn 14. apríl
Nýtt!
Stórsveita-
maraþon
RÖÐ OG TÍMI STÓRSVEITA:
13:00 Stórsveit Reykjavíkur
13:30 Stórsveit Suðurlands
14:00 Léttsveit Tónlistarskóla Reykjanesbæjar
14:30 Big band Tónlistarskóla Seltjarnarness
15:00 Stórsveit Vestmannaeyja
15:30 Stórsveit eldri borgara
16:00 Stórsveit Skólahljómsveita Reykjavíkurborgar
16:30 Stórsveit Tónlistarskólans í Garðabæ
17:00 Stórsveit Tónlistarskóla FÍH
Yfir 150 flytjendur, ungir sem aldnir taka þátt í árlegu Stórsveita-
maraþoni Stórsveitar Reykjavíkur í dag í Perlunni. Fjölbreytt
dagskrá og tónlist við allra hæfi.
Perlan í dag
Laugardag 9. apríl. kl. 13:00-17:30
TÓNLEIKAR Í DAG
Aðgangur ókeypis
BRYNDÍS OG EDDA Á TÍBRÁRTÓNLEIKUM Bryndís Halla Gylfadóttir sellóleikari og Edda Erlendsdóttir píanóleikari leika verk
eftir Franz Liszt, Frank Bridge, Bohuslav Martinu og Benjamin Britten á Tíbrártónleikum í Salnum klukkan 17 í dag. Á efnisskránni eru meðal
annars verkin La Romance oubliée og La Lugubre Gondola og Sónata fyrir selló og píanó í d-moll. Á tónleikunum mun Bryndís Halla spila í
fyrsta sinn opinberlega á selló sem fiðlusmiðurinn Hans Jóhannsson smíðaði.