Fréttablaðið - 09.04.2011, Blaðsíða 6
9. apríl 2011 LAUGARDAGUR6
Ert þú með
framúrstefnuhugmynd
til að efla
íslenskan sjávarútveg
og tengdar atvinnugreinar?
Framúrstefnuhugmynd
Sjávarútvegsráðstefnunnar 2011
Sjávarútvegsráðstefnan kallar eftir framúrstefnulegum nýsköpunar-
hugmyndum, sem veita á viðurkenningu fyrir á næstu ráðstefnu
vettvangsins. Markmiðið er að hugmyndirnar séu framsæknar og
frumlegar og skapi umræðugrundvöll eða nýja hugsun. Við mat á
hugmyndum verður m.a. litið til eftirfarandi þátta:
Frumleika, virðisauka, sjálfbærni
og ímyndar landsins eða greinarinnar út á við
Veitt verður verðlaunafé að upphæð kr. 400 þús., en auk þess fá
hugmyndirnar kynningu og sérstaka viðurkenningu á
Sjávarútvegsráðstefnunni 13.-14. október, 2011.
Framúrstefnuhugmynd skal setja fram á hnitmiðaðan hátt þar sem
fram kemur lýsing á hugmynd, tillaga að framkvæmd, væntanlegur
afrakstur og áhrif til góðs fyrir ímynd íslenskra afurða (hámark 2 bls).
Einstaklingar geta sent inn eigin hugmyndir og /eða tilnefnt
hugmyndir annarra í umboði þeirra. Allar hugmyndir þurfa að
uppfylla eftirfarandi skilyrði:
Frestur til að skila inn umsóknum er 16. maí 2011.
Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Sjávarútvegs-
ráðstefnunnar www.sjavarutvegsradstefnan.is
Sjávarútvegsráðstefnan er samskiptavett-
vangur allra þeirra sem koma að
sjávarútvegi á Íslandi. Innan þessa hóps
eru þeir sem starfa við veiðar, eldi,
frumvinnslu, framhaldsvinnslu, sölu og
markaðssetningu, þjónustu og rannsóknir
og þróun, einnig opinberir aðilar, kennarar
og nemendur, fjölmiðlar og aðrir
áhugamenn.
Djúsfasta og hreinsun í Kríunesi um
páskanna, 20 - 25 apríl 2011
Gisting - Heilsudjúsar - Fræðsla - Hreyfing - Slökun,
General-prufa 50 % afsláttur
Frekari upplýsingar
kriunes@kriunes.is • 897 0749 og 898 7522 KOSNINGAR Búast má við mjög góðri
þátttöku í þjóðaratkvæðagreiðsl-
unni um gildi Icesave-laganna sem
fram fer í dag. Góð svörun hefur
verið í þeim skoðanakönnunum
sem gerðar hafa verið síðustu daga
og í könnun Fréttablaðsins, þar
sem spurt var sérstaklega hvort
fólk ætlaði á kjörstað, kom fram að
um 90 prósent hygðust taka þátt í
atkvæðagreiðslunni.
232.539 þúsund eru á kjörskrá,
116.656 konur og 115.883 karlar.
Af einstökum kjördæmum eru
flestir á kjörskrá í Suðvesturkjör-
dæmi, um 60 þúsund, og rúmlega
44 þúsund í hvoru Reykjavíkur-
kjördæmanna um sig.
Í tíu sveitarfélögum eru kjós-
endur á kjörskrá innan við eitt
hundrað.
Fjölgað hefur á kjörskrá um
2.600 frá Icesave-atkvæðagreiðsl-
unni á síðasta ári. Á tólfta þúsund
kjósenda er með lögheimili erlend-
is.
Kjörstaðir opna víðast hvar
klukkan níu eða tíu. Í fjölmenn-
ustu sveitarfélögunum stendur
kjörfundur til tíu í kvöld en skem-
ur þar sem færri eru á kjörskrá.
Von er á fyrstu tölum fyrir
klukkan ellefu í kvöld. Þær munu
líkast til koma úr Norðausturkjör-
dæmi en í Reykjavík er stefnt að
því að fyrstu tölur verði opinber-
aðar á tólfta tímanum. Óvíst er
hvenær endanlegar tölur liggja
fyrir. Þar ráða veður og færð ekki
minnstu því talið er á einum stað í
hverju kjördæmi fyrir sig. Gangi
allt að óskum má búast við að end-
anleg niðurstaða liggi fyrir í síð-
asta lagi á fimmta tímanum.
Atkvæðagreiðslan í dag er sú
áttunda í röð þjóðaratkvæða-
greiðslna. Sú fyrsta var 1908 og
snerist um setningu laga um inn-
flutningsbann á áfengi. Greidd
voru atkvæði um þegnskylduvinnu
Kannanir benda til
afar góðrar þátttöku
Rúmlega 230 þúsund eru á kjörskrá vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar um
Icesave-lögin. Kjörstaðir í fjölmennum sveitarfélögum eru opnir frá níu til 22.
Atkvæðagreiðslan í dag er sú áttunda í röð þjóðaratkvæðagreiðslna á Íslandi.
ICESAVE 2010 63 prósent tóku þátt í þjóðaratkvæðagreiðslunni í fyrra. Flest bendir til
talsvert meiri þátttöku nú. 98,4 prósent þátttaka var í atkvæðagreiðslunum 1944 og
tæplega 44 prósent tóku þátt 1918. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Lög nr. 13/2011 kveða
á um heimild til handa
fjármálaráðherra til að
staðfesta samninga,
sem áritaðir voru í
London 8. desember
2010, um ábyrgð á
endurgreiðslu Trygg-
ingarsjóðs innstæðu-
eigenda og fjárfesta til
breska og hollenska
ríkisins á kostnaði af
greiðslu lágmarks-
tryggingar til innstæðu-
eigenda í útibúum
Landsbanka Íslands hf.
í Bretlandi og Hollandi
og greiðslu eftirstöðva
og vaxta af þeim
skuldbindingum.
Lögin voru samþykkt
á Alþingi hinn 16.
febrúar 2011 en forseti
Íslands synjaði þeim
staðfestingar.
Eiga lög nr. 13/2011 að
halda gildi?
Svarkostirnir eru:
■ Já, þau eiga að
halda gildi.
■ Nei, þau eiga að
falla úr gildi.
Svona er spurt á atkvæðaseðlinum
1916, um dans-íslensk sambands-
lög 1918, afnám innflutningsbanns
á áfengi 1933, niðurfellingu dansk-
íslenska sambandslagasamnings-
ins og um stjórnarskrá lýðveldis-
ins 1944 og Icesave-lög 2010.
Fjölmargir hafa greitt atkvæði
utan kjörfundar, fleiri heldur en
fyrir ári. Fólki sem það hefur gert
er heimilt að greiða atkvæði í dag.
Utankjörfundaratkvæðaseðill
þess kemur þá einfaldlega ekki til
greina.
bjorn@frettabladid.is
LÖGREGLUMÁL Lögregla lét verslanir á landinu sem
selja skotvopn nýlega vita af því að hún teldi hér-
lent vélhjólagengi ætla að komast yfir slík vopn með
ólöglegum hætti. Voru verslunareigendur hvattir til
að huga sérstaklega að öryggismálum sínum vegna
þessa.
Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins áskotnuðust
lögreglunni upplýsingar um að annað vélhjólagengj-
anna sem hér eru starfrækt ætlaði innan skamms að
vígbúast með því að láta greipar sópa í skotvopna-
verslun að nóttu til.
Með þessar upplýsingar að vopni ætlaði lögreglan
að grípa þjófana glóðvolga við innbrotið og hafði gert
ráðstafanir til þess að svo mætti verða, samkvæmt
heimildum Fréttablaðsins. Meðal annars var setið um
verslanirnar.
Morgunblaðið fjallaði um málið á forsíðu sinni í
gær. Heimildarmaður Fréttablaðsins sagði að lög-
regla teldi að fréttin myndi líklega styggja við hópn-
um svo hann léti ekki verða af verkinu. Það væri í
sjálfu sér ekki slæmt ef það leiddi til þess að menn-
irnir kæmust ekki yfir vopn með þessum hætti, en á
hinn bóginn hefði lögregla bundið talsverðar vonir
við að standa þá að verki. - sh
Lögregla telur að vélhjólagengi ætli að láta greipar sópa í skotvopnaverslun:
Hugðist sitja fyrir byssuþjófum
SKOTVOPN Gengið er talið hafa ætlað að vopnvæðast með því
að brjótast inn í byssubúð. Myndin er úr Sportbúðinni.
FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
ALÞINGI Utanríkismálanefnd telur
nauðsynlegt að rannsóknarnefnd
um stuðning íslenskra stjórn-
valda við Íraksstríðið fari yfir 25
skjöl í utanríkisráðuneytinu sem
varða málið og leynd hvílir yfir.
67 af 92 skjölum ráðuneytisins um
Íraksmálið voru birt opinberlega í
nóvember.
Leyndin á skjölunum 25 er til
komin þar sem þau varða samskipti
við önnur ríki eða fjölþjóðastofnan-
ir eða eru vinnuskjöl.
Telur utanríkismálanefnd að
skjölin geti gefið skýra heildar-
mynd af aðdraganda „hinnar
afdrifaríku
ákvörðunar um
stuðning við
Íraksstríðið“.
Vill hún jafn-
framt að skjölin
verði gerð opin-
ber í framhald-
inu.
Nefndin lauk
nýverið umfjöll-
un um þings-
ályktunartillögu um kosningu rann-
sóknarnefndar um aðdraganda
ákvörðunar um stuðninginn við inn-
rásina í Írak 2003.
Segir í áliti hennar að hún taki
undir mikilvægi þess að Alþingi
láti rannsaka hvernig staðið var að
málinu.
Nefndin leggur til nokkrar tækni-
legar breytingar á tillögunni, meðal
annars þá að rannsókninni ljúki
fyrir 1. desember í stað 1. júní.
Formaður utanríkismálanefnd-
ar, Árni Þór Sigurðsson, er fyrsti
flutningsmaður þingsályktunartil-
lögunnar.
Við afgreiðslu nefndarinnar voru
fulltrúar Framsóknarflokksins og
Sjálfstæðisflokksins fjarverandi.
- bþs
Utanríkismálanefnd vill að rannsóknarnefnd fari yfir skjöl sem leynd hvílir yfir:
Íraksrannsókn ljúki fyrir 1. desember
ÁRNI ÞÓR
SIGURÐSSON
Hafa skoðanakannanir áhrif
á skoðun þína í Icesave-málinu?
Já 5,7%
Nei 94,3%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Fannst þér dómurinn yfir
Baldri Guðlaugssyni of þungur?
Segðu skoðun þína á visir.is
BRETLAND Skammstöfunin LOL,
sem þýðir á ensku „laughing out
loud“, eða „að hlæja upphátt,“ er
nýjasta viðbótin í ensku orðabók
Oxford háskólans.
Orðabókin skilgreinir LOL sem
eins konar upphrópun, notuð til
þess að draga athygli að brand-
ara eða gamansömu atriði í raf-
rænum samskiptum, en einnig til
að tjá gleði eða skemmtun. LOL,
sem er mest notað í samskiptum
manna á netinu, virkar bæði sem
heildstætt orð og þegar stafirnir
eru bornir fram hver og einn. - sv
Nýyrði í ensku orðabókinni:
LOL komið í
Oxford English
KJÖRKASSINN