Fréttablaðið - 09.04.2011, Side 34

Fréttablaðið - 09.04.2011, Side 34
9. apríl 2011 LAUGARDAGUR34 Ragnhildur yngri er af sjöttu kynslóð ættarinnar sem búið hefur á Lambhól síðan árið 1870 og börnin hennar eru sjöunda kyn- slóð en tæpast er algengt að svo margar kynslóðir hafi búið á sama bæjarstæðinu í höfuðborginni. Nágrannahúsið, Garðar við Ægis- síðu, hefur verið í eigu sömu fjöl- skyldunnar í rúma öld. Þar hafa þó færri ættliðir búið. Garðarnir endurnýjaðir frá grunni Ólöf Kristín Sigurðardóttir tekur á móti Fréttablaðinu í Görðum. Móðir hennar Sigríður var yngsta dóttir Guðrúnar Pétursdóttur og Sigurðar Jónssonar í Görðum sem keypti húsið árið 1893. „Ég er yngsta barn yngsta barns,“ segir Ólöf sem er fædd árið 1961, tæpum 100 árum á eftir afa sínum. „Ég keypti húsið árið 1993 ásamt eig- inmanni mínum Sigurþóri Heim- issyni nákvæmlega 100 árum eftir að afi minn keypti húsið sem mun vera elsta íbúðarhús hlaðið úr steini í Reykjavík sem ekki var með steinbæjarlagi.“ Ólöf er alin upp við Ægisíðuna, skáhallt á móti Görðunum í húsi sem mamma hennar og systir hennar byggðu. „Eftir að amma mín fluttist héðan seint á sjötta áratugnum stóð húsið autt um tíma en svo var það leigt út rétt eins og hlaðan sem stóð hér við hlið hússins,“ segir Ólöf sem tók húsið á leigu ásamt vinum sínum árið 1981 þegar hún var tvítug. „Ég var hér í hálfgerðu kommún- ustsandi í nokkur ár, hér var alls konar fólk sem kom og fór,“ segir Ólöf sem hafði svo búið ásamt eig- inmanni sínum Sigurþóri í nokkur ár í húsinu þegar þeim bauðst að kaupa það árið 1993. Mikið endurnýjunarstarf tók við hjá Ólöfu og fjölskyldu þegar húsið var komið í þeirra eigu og má segja að það hafi allt verið endur- nýjað að innan. „Gólfið hékk uppi nánast af gömlum vana, við ein- ungruðum húsið allt upp á nýtt, grófum út kjallarann og svo mætti lengi telja,“ segir Ólöf. Mikil virð- ing hefur verið borin fyrir upp- runalega stílnum við endurgerðina og gestur í húsinu fær ekki á til- finninguna að allt sé nýtt þar inni. „Endurgerðin tók langan tíma. Það er ekki lengra síðan en í fyrra að við opnuðum kjallarann út í garð,“ segir Ólöf og bætir við að hún hafi fengið hugmyndina að þeirri fram- kvæmd snemma á níunda áratugn- um. Þess má geta að endurgerð hússins hefur vakið athygli og fékk viðurkenningu Reykjavíkurborgar árið 2004. Síðasta sumar var blásið til ætt- armóts í Görðunum og segir Ólöf að ættingjarnir hafi kunnað því afar vel að hittast við gamla húsið. „Þetta var dásamlegt, fjöldi fólks og við heppin með veður. Afkom- endur Sigurðar í Görðunum eru nú orðnir ansi margir og stór hluti þeirra mætti,“ segir Ólöf sem sjálf á tvö börn, Sigríði Regínu og Ólaf Gísla, sem eru þá fjórða kynslóð ættarinnar til að búa í Görðunum. Hænur við Ægisíðuna Ólöf hefur safnað saman ýmsum gögnum um Garðana, meðal ann- ars gömlum lýsingum á eigninni. „Í þeim kemur fram hvað var á jörðinni en hér voru fjölmörg hús, fjós, hlaða, kindakofi, svo dæmi séu tekin,“ segir Ólöf og bætir við að þegar borgin lagði göngustíg- inn hafi síðustu húsin sem voru uppistandandi verið rifin. „Þá var hér enn heilleg verbúð sem þótti ekki ástæða til að varðveita.“ Ólöf man vel eftir mörgum af þessum húsum og öðruvísi umhverfi en nú blasir við út um stofugluggann hennar. „Hér voru grásleppukarl- ar þegar ég var lítil og ég man vel eftir konu sem hafði hænur hér við Ægisíðuna. Ég man svo auðvitað vel eftir húsunum sem stóðu hér við Garðana, hlaðan var um tíma æfingahúsnæði fyrir hljómsveitir,“ segir Ólöf sem hefur hvergi annars staðar búið í Reykjavík en á sínum æskuslóðum. Göngustígurinn við Ægisíðuna finnst henni vel heppnuð nýjung. „Mér finnst nábýlið við stíginn yndislegt, hér er stöðugur straum- ur fólks frá morgni til kvölds, það er svo breytt hvernig fólk lifir líf- inu og ég sé hvernig hann hefur verið hvatning fyrir fólk að stunda útiveru með öðrum hætti en áður,“ segir Ólöf að lokum. ÓLÖF KRISTÍN SIGURÐARDÓTTIR Ólst upp í nágrenni Garða og hefur búið þar með hléum síðan árið 1981. Húsið hefur verið endurgert algjörlega að innan síðan það komst í eigu Ólafar og fjölskyldu árið 1993. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN S teinhúsið Garðar við Ægisíðu var byggt árið 1882 af Þórði Guðmunds- syni. Egill Egilsen, bróðir Benedikts Gröndal, eignaðist húsið en árið 1892 tók Sigurður Jónson húsið og jörðina á leigu. Ári síðar keypti Sigurður húsið og bjó þar til æviloka. Sigurður, sem fæddur var í Skildinganesi árið 1865, var tvígift- ur. Fyrri kona hans hét Ólöf Kristín Guð- mundsdóttir en hún var fædd í Engey árið 1860. Þau áttu þrjú börn en einungis eitt komst á legg, Erlendur Sigurðsson. Seinni kona Sigurðar, sem ávallt var kallaður Sigurður í Görðum, hét Guðrún Pétursdóttir, fædd 1878. Hún var bróðurdóttir Ólafar Kristínar, fyrri konu Sigurðar. Guðrún og Sigurður gengu í hjónaband árið 1903 og bjuggu í Görðum. Þau eignuðust ellefu börn sem öll komust á legg nema elsti drengurinn, Pétur. Yngsta dóttir þeirra, Sigríður, fæddist árið 1922. Hún er móðir Ólafar Kristínar Sigurðardóttur, sem er núverandi íbúi og eigandi Garðanna. Sigurður lést árið 1956 en Guðrún árið 1962. Þegar Reykja- víkurborg vann að gerð göngustígsins við Ægisíðu keypti borgin landið af fjölskyldunni og voru þá húsin sem enn stóðu í landi Garðanna rifin, fyrir utan íbúðarhúsið sem Ólöf Kristín Sigurðardóttir keypti, réttum hundrað árum eftir að afi hennar eignaðist Garðana. Steinhús sem byggt var 1882 Sigurður í Görðum keypti það árið 1893 og barnabarn hans 1993. V ið kynntumst í Hagaskóla,“ segja þau Sigríður Sigurþórsdóttir og Þórður Sigurðarson, sem hægt væri að kalla Siggu í Görðum og Þórð í Bænum, rétt eins og amma Sigríðar og nafna og afi Þórðar og nafni hans voru kölluð þegar var og hét. Þórður er alinn upp í Litla-Bæ, húsi sem stendur á lóð sem er á milli Tómasarhaga, Fálkagötu og Dunhaga, en það tilheyrir Tómasarhaganum. Skammt er því á milli æskuheimila þeirra og hefur Þórður það eftir föður sínum, Sigurði Árna Þórðarsyni, að mikill vinskapur hafi alltaf verið á milli fjölskyldnanna. „Við uppgötv- uðum samt ekki tengslin á milli okkar strax,“ segja þau Sigríður og Þórður, sem fylgdust að í MH að lokn- um grunnskóla og halda góðum vinskap þótt þau hafi nú haldið hvort í sína áttina; Sigríður nemur í Háskóla Íslands en Þórður er í Listaháskólanum. Sigga í Görðum og Þórður í Bænum Vinir rétt eins og afi og amma VINIR Í VESTURBÆNUM Sigríður og Þórður eru hér við Litla-Bæ, ættarsetur Þórðar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN FRAMHALD AF SÍÐU 32 Grásleppa í fiskihjalla Myndin er tekin árið 1993 en þá var enn gert út frá Ægisíðu. MYND/LJÓSMYNDASAFN REYKJAVÍKUR Athafnasvæði Alliance Á uppvaxtarárum Ragnhildar Magnúsdóttur var mikið um að vera í næsta nágrenni Lambhóls eins og þessi mynd sýnir glöggt en á henni er horft í átt til Skerjafjarðar frá Lambhól. MYND/LJÓSMYNDASAFN REYKJAVÍKUR Ævisaga Sigurðar í Görðum var gefin út árið 1952 en það var Vilhjálmur S. Vilhjálmsson sem skráði söguna. Í henni segir Sigurður frá ævi sinni og upp- vexti, landbúnaði og útgerð við Ægisíðuna. Hann rekur viðskipti sín við breska hermenn sem reyndu að koma í veg fyrir að sjómenn reru út til hrognkelsaveiða með litlum árangri. Sigurður segir í framhaldinu frá því þegar Garðalandið lenti raunverulega í „hers höndum“ eftir að heimsstyrjöldinni síðari lauk. „Reykjavíkur- bær hefur nú tekið löndin og gert úr þeim bygginga- lóðir. Þar rís nú hvert steinhúsið á fætur öðru. Það er orðið ákaflega þröngt í Görðunum. Sjóndeildarhringur- inn minn hefur minnkað. Húsið mitt er orðið innikróað til landsins. ... ég þekki varla sjálfan mig og umhverfi mitt nema þegar ég er niður í flæðarmáli, því að enn er það eins og það var og fjörðurinn eins.“ Heimild: Sjógarpurinn og bóndinn Sigurður í Görðunum, bls. 177. Sjóndeildarhringurinn minnkaði Reykjavíkurborg tók löndin og gerði að byggingarlóðum
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.