Fréttablaðið - 09.04.2011, Page 42

Fréttablaðið - 09.04.2011, Page 42
2 fjölskyldan Fjölskyldan kemur út mánaðarlega með helgarblaði Fréttablaðsins. Ritstjórn: Sólveig Gísladóttir Hönnun: Silja Ástþórsdóttir Forsíðumynd: Getty Pennar: Júlía Margrét Alexandersdóttir, Vera Einarsdóttir og Þórdís Lilja Gunnarsdóttir Ljósmynd- ir: Fréttablaðið Auglýsingar: Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365. is 512-5462 Sólveig Gísladóttir skrifar Handhægar umbúðir með tappa Barnsins stoð og stytta Nánari upplýsingar um Stoðmjólk á www.ms.is H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA Smáralind - sími 517 5330 www.facebook.com/AdamsIceland Vorútsala 30% afsláttur af öllum vörum auk frábærra tilboða Ég ætla að byrja á því að taka fram að ég á hlýðið barn, sérlega vel upp alið og með yndislega lund. Hins vegar er heimurinn ekki fullkominn og oft getur reynst erfitt að fá þriggja ára stúlku með sjálfstæðisþörf og stjórnunaráráttu til að gera eitthvað eftir höfði móður hennar. Þegar sá gállinn er á henni fer hún til vinstri þegar mamma segir hægri og segir svart þegar málið er hvítt. Móðirin hefur þó fundið nokkrar árangursríkar leiðir á slíkum stundum. Ein þeirra er að láta dúkkurnar eða bangsana tala við stúlk- una. Þá þykir henni mikið til koma, og þótt hún geri sér grein fyrir að mamma tali fyrir leikföngin finnst henni sport að gera ýmislegt til að ganga í augun á þeim. Til dæmis að fara í föt, borða morgunmat, klæða sig í útiskóna og þar fram eftir götunum. Þegar allt bregst hefur móðirin brugðið á það ráð að látast ætla að hringja í einhvern ættingja og láta vita af óþekktinni í barninu. Oft virkar þessi leið en hún getur einnig sprungið framan í fólk eins og gerðist á dögunum. Stuttu fyrir afmælisveisluna gerðist stúlkan treg til að fara að hátta. Móðirin greip á það ráð að grípa síma og látast hringja í uppáhalds- frænku hennar. Eftir símtalið varð stúlkan hugsi og velti fyrir sér hvort hún ætti jafvel að láta undan og hlýða … þegar hún rak augun í hinn meinta síma. „Mamma, þetta er ekki sími. þetta er fjarstýring,“ sagði hún sigri hrósandi. Næst þegar mamman reyndi þennan leik og hótaði símtali til bestu frænkunnar varð ljóst að þessum leik var lokið. „Já mamma, hringdu í hana í fjarstýringuna.“ Leiknum er lokið Brúðubörn úr safni Rúnu Gísladóttur, kennara og myndlistarmanns, verða til sýnis í Bókasafni Mosfellsbæjar í apríl- mánuði á afgreiðslutíma safnsins. Á sýningunni eru aðallega handgerðar postulínsbrúður, en einnig leikfangabrúður frá ýmsum tímum. Rúna býr brúðurnar til frá grunni. Allur fatnaður þeirra er handunninn og sérhannaður á hverja og eina. Brúðurnar eru steyptar í mót og eftir það hefst vinna við að pússa þær og mála, setja þær saman og gefa þeim andlit og hár, en sumar brúðurnar eru með mannshár. Brúðubörn í Mosfellsbæ BARNVÆNT Í ris Kristín Andrésdóttir, Jónas B. Antonsson og sonur þeirra Anton Oddur Jónasson spila reglulega tölvuleiki saman og hafa öll jafn gaman af. „Þetta eru gæðastundirnar okkar,“ segir Íris, sem rekur fyrirtækið Gogogic ásamt eiginmanni sínum og fleir- um, en þar eru meðal annars smíð- aðir tölvuleikir sem eru aðgengileg- ir á Facebook og með iPhone, iPod og iPad. Hún segir tímana hafa breyst. „Áður fyrr sátum við og spiluðum borðspil. Nú spilum við tölvuleiki en í því getur falist alveg jafn mikil fjölskylduskemmtun.“ Sonur henn- ar fór þriggja ára gamall að tefla í tölvunni og nú þremur árum seinna er hann kominn í Taflfélag Reykja- víkur og farinn að tefla fyrir hönd Ísaksskóla. „Tölvuleikir geta því vel verið uppbyggilegir,“ segir Íris. Hún er uppeldisfræðingur að mennt og hefur sett skýran ramma í kringum tölvunotkunina. „Þegar ég var í náminu kynnti ég mér rann- sóknir á áhrifum ofbeldis í tölvu- leikjum og öðru myndefni á börn. Þar kom einna helst í ljós að mestu máli skipti að foreldrar kynntu sér vel það efni sem þeir leyfðu börnum sínum að horfa á. Þess vegna spila ég alla tölvuleiki áður en ég leyfi syni mínum að prófa, enda getur leikur sem virðist saklaus inni- haldið eitthvað sem vekur ótta hjá tilteknu barni. Ég nefni trúða sem dæmi en foreldrar þekkja barn sitt best og eru best til þess fallnir að meta hvort leikurinn henti.“ Íris segir það sama eiga við ef um unglinga sé að ræða. „Ef þeir fá leyfi til að vera með Facebook þurfa foreldrar að kunna á allar öryggis- stillingar þannig að það sé tryggt að myndir og upplýsingar um barnið liggi ekki á glámbekk.“ Íris segir tölvuna spennandi í augum sonar hennar eins og oft vilji vera hjá strákum á hans aldri. „Tölvunotkunin verður þó að vera í jafnvægi við aðra hluti. Við erum með ákveðið hvatningarkerfi sem virkar þannig að ef hann er dugleg- ur að borða, klæða sig, fara í íþrótt- ir og út að leika vinnur hann sér inn tölvutíma.“ Íris segir fjölskylduna hrifna af lególeikjunum og nefnir Lego Harry Potter og Lego Indiana Jones sem dæmi. „Þá keyptum við Wii-tölvuna til að hann fengi hreyf- ingu samhliða tölvunotkuninni, en auk þess er ég mjög hrifin af iPad- leikjunum, enda er þar mikið úrval þrautaleikja sem reyna á rökhugs- un. Við gáfum til að mynda út leik- inn Simbo 16 Redux fyrir iPad en hann er sniðinn að börnum og hugs- aður til að æfa samhæfingu huga og handa. Hann er enn eitt dæmið um uppbyggilegan leik,“ segir Íris. Hún hvetur foreldra til að spila með börnunum sínum og stuðla þannig að jákvæðri tölvunotkun. „Við fullorðna fólkið megum held- ur ekki gleyma því að halda í barn- ið í okkur og leyfa okkur stundum að leika okkur. Það gerir lífið svo miklu skemmtilegra.“ - ve Gæðastund við tölvuna Anton Oddur Jónasson er svo heppinn að deila tölvuleikjaáhuga með foreldrum sínum. Fjölskyldan á oft gæðastundir fyrir framan tölvuna en notkunin er þó skilyrðum háð. Saman við tölvuna Anton Oddur og foreldrar hans spila stundum tölvuleiki hjá Gogogic, sem er vinnustaður mömmu hans og pabba, enda aðstaðan eins og best verður á kosið. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.