Fréttablaðið - 09.04.2011, Page 46

Fréttablaðið - 09.04.2011, Page 46
9. apríl 2011 LAUGARDAGUR2 hætta er á slagsmálum vegna Ice- save-deilna. Mér finnst þó hæpið að við kveikjum á kosningavök- unni í sjónvarpinu heldur verðum áfram í afmælisstuði með úrslit- um í smáskeytaformi,“ segir Sig- rún Eva sem eyðir helgum gjarn- an í faðmi fjölskyldu og vina yfir góðum mat og skemmtilegheit- um. „En hvern hefði grunað fyrir nítján árum að fólk yrði enn að biðja um Nei eða já? árið 2011,“ spyr hún hláturmild um árleg símtöl fjölmiðla og óskir um Nei eða já? í kringum Júróvisjón, en báðar verða þær Sigga á árvissu Júróvisjónballi Páls Óskars á Nasa. „Mér finnst alltaf jafn gaman að taka lagið með Sigrúnu Evu og oft tek ég það ein líka, enda sívin- sælt meðal þjóðarinnar,“ segir Sigga sem flýgur heim til Íslands á morgun, en um helgar unir hún sér einmitt best heima í hreiðrinu sínu eða með vinum í góðu yfirlæti. „Flestar helgar er ég að syngja einhvers staðar, en þess á milli er ég afar heimakær. Ég er steinhætt að nenna út á djammið, en finnst alltaf jafn gefandi og yndislegt að syngja fyrir fólk,“ segir Sigga sem um miðjan maí á von á tvíburum með sinni heittelskuðu. „Ég neita því ekki að spenningurinn er mik- ill og allt á fullu við undirbúning komu barnanna heima. Ég verð því lítið á sveitaballarúntinum í sumar en reyni að njóta þess sem mest að vera með krílunum litlu,“ segir hún full tilhlökkunar. En hvernig líst þeim á Júró- visjónlagið í ár, lagið hans Sjonna? „Mér líst ágætlega á það, en allt- af erfitt að segja hvernig laginu gengur án þess að hafa séð svið- setninguna, sem hefur líka mikil áhrif á heildarútkomuna,“ segir Sigrún Eva og Sigga tekur í sama streng: „Lagið er gott en dálítið frábrugðið því sem við höfum sent hingað til. Strákarnir eru yndisleg- ir, gera þetta frá hjartanu, og bara tímabært að senda út svona hresst, skemmtilegt og öðruvísi lag.“ thordis@frettabladid.is Sigga Beinteins og Sigrún Eva hafa síðustu nítján ár stigið ótal sinnum á stokk með hið sívinsæla Nei eða já? en þessi mynd er tekin árið sem lagið fór utan til keppni í Málmey og lenti í 7. sæti árið 1992. Framhald af forsíðu ansararDwww.jsb.is Kennslustaðir: ● Danslistarskóli JSB í Kópavogi, Íþróttahúsi Digraness. Almenn braut. ● Danslistarskóli JSB í Reykjavík, Lágmúla 9 og Laugardalshöll. Almenn braut og listdansbraut. Innritun og inntökupróf á listdansbraut fyrir haustönn 2011 Inntökupróf - framhaldsskólastig Fimmtud. 14. apríl kl.19:45 - 21:15 í sal 2. Inntökupróf - grunnskólastig Laugard. 14. maí kl. 16 -17 í sal 3, 10 -12 ára. Laugard. 14. maí kl. 17 - 18:15 í sal 3, 13 - 15 ára. Nám og kennsla Danslistarskóli JSB er viður- kenndur af menntamálaráðuneytinu sem listdansskóli á grunn- og framhaldsskólastigi. Nánari upplýsingar um nám við skólann er að finna á www.jsb.is undir Danslistarskóli JSB. Danslistarskóli JSB er samstarfsaðili að Frístundakorti Reykjavíkurborgar. Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 Bréfasími 581 3732 • jsb@jsb.is • www.jsb.is E F L IR a lm a n n a te n g s l / H N O T S K Ó G U R g ra f í s k h ö n n u n Nánari upplýsingar eru á vefnum www.jsb.is og á facebook Viltu gerast vinur JSB? Danslistarskóli JSB er á facebook Fæst í Bónus og Inspired, Keflavíkurflugvelli HOLLUR BITAFISKUR + 80% prótín Fiskneysla er góð fyrir heilabúið Spænskur ferðadagur í Kringlunni Sumarleyfis- möguleikar á Spáni verða kynntir á Blómatorginu í Kringlunni frá 11 til 18 í dag og ýmis skemmtiatriði verða í boði fyrir alla fjölskylduna. GRÆNN APRÍL Græn fjármál: ● Spyrðu sjálfan þig nýrra spurninga áður en þú eyðir í eitthvað sem þig langar í. ● Lærðu að mta hvort eina leiðin til að mæta þörfum þínum sé að kaupa eitthvað. ● Ekki kaupa af hvatvísi. Bíddu frekar í einn dag eða lengur. Löngunin kann að líða hjá. ● Hugaðu á blaði - þannig verða hugsanir þínar markvissar og árangursríkar. ● Leitaðu eftir hjálp annarra til að finna lausn á þeim áskotunum sem þú stendur frammi fyrir. ● Taktu ábyrgð á eigin fjármálum með því að halda heimilisbókhald. ● Leitaðu leiða til að koamst út úr neysluskuldum. ● Finndu ráð til að borga niður húsnæðislán með því að borga inn á höfuðstólinn. ● Leggðu reglulega fyrir í sparnað. www.graennapril.is Sýningu á verkum Þórhildar Kristjánsdóttur glerlistakonu á Café Mílanó lýkur um þessa helgi en sýningin verður opin í dag og á morgun. Þórhildur hefur í rúman ára- tug blandað saman mismunandi aðferðum í verkum sínum, svo sem glersteypun, silfursmíði, leir- mótun, málmhönnun, teikningu og fleiru og er vel þekkt fyrir skálar sínar og kertastjaka. Sýning Þór- hildar nú ber nafnið Frostrós- ir en á henni eru verk sem lista- konan vann í vetur. Þau eru unnin úr svartflaueli, tini, blýblöndu og bræddu gleri. „Efnistökin koma víða að og má þar oft sjá sterka tengingu við náttúruna og andstæðurnar sem þar er að finna í litum, birtu og formum. Því má oft sjá hvort verk- in eru unnin að vetri eða sumri til,“ segir Þórhildur. - jma Glerlist á Café Mílanó Verk Þórhildar Kristjánsdóttur sem hún vann í vetur eru til sýnis á Café Mílanó.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.