Fréttablaðið - 09.04.2011, Side 49

Fréttablaðið - 09.04.2011, Side 49
 Sölufulltrúar Viðar Ingi Pétursson vip@365.is 512 5426 Hrannar Helgason hrannar@365.is 512 5441 Forritari Hagstofa Íslands leitar að forritara til að vinna að spennandi þróunarverkefnum. Viðkomandi þarf að hafa þekkingu á vefforritun, sérstaklega í .NET umhverfinu. Mikilvægt er að viðkomandi hafi áhuga á að vinna í hóp og eigi auðvelt með að starfa með öðrum. Við leggjum áherslu á að viðkomandi ástundi öguð vinnubrögð og hafi lifandi áhuga á að þróa ferla og upplýsingakerfi Hagstofu Íslands. Hæfniskröfur Háskólapróf í tölvunar-, kerfisfræði eða sambærilegum greinum æskilegt. Mjög góð þekking á .NET forritun. Þekking á vefstöðlum, s.s. html, css. Þekking á xml. Sjálfstæð og öguð vinnubrögð. Góðir samskiptahæfileikar. Reynsla af LiSA.NET vefumsjónarkerfinu er kostur. Þekking og/eða reynsla af gagnagrunnum er kostur. Laus störf hjá Hagstofu Íslands Hagstofa Íslands gegnir forystuhlutverki í opinberri hagskýrslu gerð og mikill metnaður einkennir starfið sem þar fer fram. Hlutverk Hagstofu Íslands er að veita tölfræðilegar upplýsing ar um þjóðfélagsleg málefni og tryggja að áreiðanleiki og óhlutdrægni séu í fyrirrúmi í opinberri hagskýrslugerð. Alþjóðlegt samstarf er öflugt og þróunar vinna skipar veglegan sess í starfsemi stofnunarinnar. Nánari upplýsingar má finna á vef Hagstofunnar, www.hagstofa.is. Borgartúni 21a 150 Reykjavík  528 1000 Um er að ræða fullt starf og er æskilegt að þeir sem ráðnir verða geti hafið störf sem fyrst. Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðuneytisins og hlutaðeigandi stéttarfélags. Umsóknarfrestur er til og með 26. apríl 2011 og skulu umsóknir berast á eftirfarandi póstfang: Starfsumsókn, Borgartúni 21a, 150 Reykjavík, eða rafrænt á netfangið starfsumsokn@hagstofa.is. Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Nánari upplýsingar veitir Ólafur Arnar Þórðarson [olafur.thordarson@hagstofa.is], sími 528 1000. Gagnagrunnsforritari Hagstofa Íslands leitar að gagnagrunnsforritara til að þróa upplýsingakerfi stofnunarinnar. Unnið er í Microsoft SQL Server og TSQL umhverfi að SSIS lausnum og uppbyggingu á gagnavöruhúsum. Mikilvægt er að viðkomandi hafi áhuga á að vinna í hóp og eigi auðvelt með að starfa með öðrum. Við leggjum áherslu á að viðkomandi ástundi öguð vinnubrögð og hafi lifandi áhuga á að þróa ferla og upplýsingakerfi Hagstofu Íslands. Hæfniskröfur Háskólapróf í tölvunarfræði, kerfisfræði eða sambærilegum greinum æskilegt. Þekking á Microsoft SQL Server og TSQL. Þekking á vöruhúsum gagna og tengdri aðferðafræði. Þekking á SSIS eða sambærilegum tólum er æskileg. Sjálfstæð og öguð vinnubrögð. Góðir samskiptahæfileikar. Þekking á xml er kostur. Menntunar og hæfniskröfur: • Háskólamenntun á framhaldsstigi, helst á sviði fjármála. • Viðamikil þekking á fjármálamörkuðum og fjármögnun fyrirtækja og verkefna. • Reynsla af: fjármálastjórn hjá stóru fyrirtæki fjárstýringu og áhættustýringu samskiptum við innlenda og erlenda banka samningagerð • Æskilegt er að umsækjandi hafi trausta þekkingu á reikningshaldi og áætlanagerð. Persónulegir eiginleikar: • Sjálfstæði og ögun í vinnubrögðum. • Stjórnunarhæfileiki og lipurð í mannlegum samskiptum. • Frumkvæði við úrlausn viðfangsefna. • Traust greiningarhæfni og skilningur á tölum. • Færni í ræðu, riti og framkomu. • Mjög góð enskukunnátta. www.or.is ÍS LE N SK A /S IA .I S /O R K 5 44 79 0 4/ 11 FRAMKVÆMDASTJÓRI FJÁRMÁLA Orkuveita Reykjavíkur leitar að kraftmiklum leiðtoga til að stýra fjármálasviði fyrirtækisins. Verkefnið er mikilvægt og krefjandi í ljósi ögrandi aðstæðna á fjármálamarkaði. Starfið er spennandi fyrir dugandi einstakling með fjármála- og rekstrarreynslu og metnað til að skara fram úr. Fjármálastjóri stýrir öflugum hópi starfsmanna fjárstýringar, fjármögnunar, reikningshalds, innkaupa og hagdeildar. Hann mun vinna náið með forstjóra og stjórn fyrirtækisins að fjármálalegri uppbyggingu þess. Hlutverk hans er meðal annars að byggja upp traust á Orkuveitunni á fjármálamörkuðum með öguðum og vönduðum vinnubrögðum. Orkuveita Reykjavíkur er veitufyrirtæki og þjónustufyrirtæki í eigu almennings sem sér um 200.000 notendum fyrir húshitun, drykkjarvatni, rafmagni og fráveitu. Í Orkuveitunni vinnur traustur hópur starfsmanna sem hefur lagt hart að sér í ólgusjó síðustu ára. Grunngildi OR eru virðing, hagsýni, heiðarleiki, eldmóður, traust og sveigjanleiki. www.or.is Einstaklingar af báðum kynjum eru hvattir til að sækja um starfið. Nánari upplýsingar um starfið gefur Bjarni Bjarnason, forstjóri Orkuveitunnar, í síma 516 7707 eða bjarnibj@or.is. Umsjón með úrvinnslu umsókna hafa Helga Jónsdóttir (helga.jonsdottir@capacent.is) og Sigríður Pétursdóttir (sigridur.petursdottir@capacent.is) hjá Capacent Ráðningum. Umsækjendur eru vinsamlega beðnir um að sækja um starfið á heimasíðu Capacent Ráðninga: www.capacent.is. Umsóknum skal skilað fyrir 24. apríl 2011. Umsóknum eiga að fylgja ítarlegar starfsferilsskrár og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.