Fréttablaðið - 09.04.2011, Side 64
9. apríl 2011 LAUGARDAGUR16
9. apríl 2011
Auglýsing um endurskoðun á aðalskipulagi
Grindavíkur 2010–2030
Auglýst er tillaga að endurskoðuðu aðalskipulagi ásamt
umhverfisskýrslu. Tillagan er auglýst með vísan til 1. mgr.
18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 m.s.br.
Skipulagsuppdrættir, greinargerð og umhverfisskýrsla munu
liggja frammi til kynningar á skrifstofu Grindavíkurbæjar,
Víkurbraut 62 í Grindavík frá 9. apríl 2011 til 23. maí 2011. Enn
fremur eru tillögurnar til sýnis hjá Skipulagstofnun, Laugavegi
166, Reykjavík og á heimasíðu Grindavíkurbæjar www.
grindavik.is . Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er
hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna.
Athugasemdir skulu vera skriflegar og skilað á skrifstofu
Grindavíkurbæjar, Víkurbraut 62, merkt „Endurskoðun
aðalskipulags 2011“ fyrir 23. maí 2011. Þeir sem ekki gera
athugasemdir við tillöguna innan tilskilins frests teljast
samþykkir henni.
Bæjarstjóri Grindavíkurbæjar
Styrkur til Dr-náms
Hafrannsóknastofnunin auglýsir námsstyrk til Dr-
verkefnis er lítur að rannsóknum á vistfræði ljósátu á
Íslandsmiðum. Styrkupphæðin er 2,5 milljónir króna
á ári til þriggja ára.
Um er að ræða samstarfsverkefni Hafrannsóknastofn-
unarinnar og Háskóla Íslands. Æskilegt er að nemand-
inn hafi lokið, eða sé við það að ljúka, BSc eða MS-
gráðu í líffræði eða sambærilegu námi og hafi góðan
grunn í tölfræði og vistfræði. Gert er ráð fyrir að vinna
við verkefnið hefjist í ágúst næstkomandi.
Námsverkefnið er hluti af evrópsku samstarfsverkefni,
EURO-BASIN, sem fjallar um vistfræði svifdýra- og
uppsjávarfi skistofna með víða útbreiðslu í N-Atlants-
hafi með hliðsjón af hnattrænum umhverfi sbreyting-
um.
Umsóknir, ásamt ferilskrá (CV) og afriti af prófskírtein-
um skulu berast Ástþóri Gíslasyni (astthor@hafro.is)
eða Ólafi S. Ástþórssyni (osa@hafro.is) Hafrannsókna-
stofnuninni, Skúlagötu 4, fyrir 2. maí nk. Þeir veita
jafnframt frekari upplýsingar um styrkinn og verkefnið.
Styrkir úr tónlistarsjóði
Mennta- og menningarmálaráðuneyti auglýsir eftir
umsóknum um styrki úr tónlistarsjóði, samkvæmt
lögum um tónlistarsjóð nr. 76/2004 sbr. og reglur
nr. 125/2005, til verkefna sem efnt verður til á
tímabilinu júní til ársloka 2011. Næst verður auglýst
eftir umsóknum í október 2011 vegna verkefna á fyrri
hluta árs 2012.
Hlutverk tónlistarsjóðs er að efla íslenska tónlist og
stuðla að kynningu á íslenskum tónlistarmönnum og
tónsköpun þeirra. Sjóðurinn skiptist í tvær deildir,
tónlistardeild og markaðs- og kynningardeild.
Minnt er á að styrkþegar úr fyrri úthlutunum þurfa
að hafa skilað inn greinargerð vegna þeirra verkefna
áður en nýjar umsóknir verða teknar til umfjöllunar.
Ítarlegri auglýsingu, upplýsingar um umsóknarferli
og umsóknareyðublöð er að finna á vef ráðuneytisins
www.menntamalaraduneyti.is. Umsóknum skal
skila á þar til gerðum eyðublöðum til mennta- og
menningarmálaráðuneytisins eða senda á póstfangið:
Mennta- og menningarmálaráðuneyti, tónlistarsjóður,
Sölvhólsgötu 4, 150, Reykjavík.
Umsóknir skulu vera í þríriti og öll eintök undirrituð.
Ekki er tekið við umsóknum rafrænt.
Umsóknarfrestur rennur út mánudaginn 9. maí 2011.
Mennta- og menningarmálaráðuneyti, 8. apríl 2011
menntamálaráðuneyti.is