Fréttablaðið - 09.04.2011, Side 98
9. apríl 2011 LAUGARDAGUR66
Söngvarinn Helgi Björns-
son blæs til stórtónleika Í
Hörpunni á þjóðhátíðardag-
inn 17. júní. Þar munu hann
og fjölmargir þekktir tón-
listarmenn flytja íslenskar
dægurlagaperlur.
„Þetta verður æðislega grand,“
segir Helgi Björnsson á línunni
frá Berlín. Helgi er búinn að bóka
stóra salinn í Hörpunni á þjóðhá-
tíðardaginn og þar ætlar hann að
blása til glæsilegra tónleika.
„Yfirskrift tónleikanna er
Íslenskar dægurperlur og við
ætlum að leita víða fanga. Hug-
myndin er að taka öll þessi lög
sem hafa öðlast sjálfstætt líf, allt
frá Brennið þið vitar til Fjöllin
hafa vakað,“ segir Helgi. Söngv-
ararnir sem koma fram með
Helga eru ekki af verri endan-
um; Bogomil Font, Eivör Páls-
dóttir, Högni Egilsson, Mugison
og Ragnheiður Gröndal. Í hljóm-
sveitinni verða trommuleikarinn
Einar Valur, Valdi Kolli bassa-
leikari, gítarleikararnir Ómar
Guðjónsson og Stefán Már Magn-
ússon og píanóleikararnir Davíð
Þór Jónsson og Kjartan Valdi-
marsson. Þá stýrir Roland Hart-
well tólf manna strengjasveit
og karlakór verður sömuleiðis á
sviðinu. „Þetta er landsliðið í tón-
list,“ segir Helgi kokhraustur.
Helgi segir að það sé öllum tón-
listarmönnum hollt að leita aftur
til upprunans og flytja lögin sem
mótuðu þá. „Mér finnst eins og
ég sé að loka ákveðnum hring
með þessum tónleikum. Ég er
búinn að vera að fást við gömlu
lögin síðustu 2-3 árin með þessum
reiðmannaplötum og svo Magga
Eiríks plötunni. Ég hef haft bæði
gaman og gott af því að horfa til
baka, að skoða hver er grunn-
urinn undir manni sjálfum sem
músíkant. Hvað mótaði mann.
Þetta hafa menn líka verið að
gera erlendis. Dylan hefur leitað
aftur í sinn arf og Robert Plant
hefur verið að taka kóver af
lögum sem voru rætur hans. Ég
hef gaman af þessari pælingu,
hvað var okkar blús, hvar eru
okkar rætur.“
Aðspurður segir hann ánægju-
legt að geta haldið svona tón-
leika í Hörpunni og ekki sé verra
að gera það á þjóðhátíðardag-
inn. „Það er smá standpína, smá
þjóðarstolt. Það er ógeðslega
spennandi að flytja allar þessar
nostalgíuperlur.“ hdm@frettabladid.is
Það er smá standpína, smá þjóðarstolt. Það er ógeðs-
lega spennandi að flytja allar þessar nostalgíuperlur.
HELGI BJÖRNSSON
TÓNLISTARMAÐUR
HELGI BJÖRNS
BÓKAR HÖRPUNABreski ólátabelgurinn Pete Doherty á yfir höfði sér fangels-isvist eftir réttarhöld yfir honum
í gær. Doherty viðurkenndi fyrir
dómara að hafa verið með kókaín
í sínum fórum á sama tíma og
kvikmyndagerðarkonan Robin
Whitehead lést en grunur leikur
á að hún hafi dáið úr ofneyslu.
Pete hefur verið grunaður síðan
í janúar á síðasta ári um að hafa
verið viðriðinn andlátið en hefur
alltaf neitað sök. Hann breytti
hins vegar framburði sínum
í gær og saksóknari í málinu
spurði lögfræðing rokkarans
hvort skjólstæðingur hans vissi
að með þessu gæti hann lent í
fangelsi.
Doherty hefur margoft komist
í kast við lögin vegna eiturlyfja-
neyslu sinnar
en hann er hvað
þekktastur
fyrir að
vera
söngv-
ari The
Libertines og
Babyshambles
auk þess að hafa
verið unn-
usti Kate
Moss.
Doherty á
leið í steininn
Í VONDUM
MÁLUM
Doherty
gæti
verið á
leiðinni í
svartholið.
NOSTALGÍA OG ÞJÓÐARSTOLT Í HÖRPU Helgi Björnsson og fleiri stórsöngvarar flytja
íslenskar dægurlagaperlur í Hörpu á þjóðhátíðardaginn. MYND/SPESSI