Fréttablaðið - 30.04.2011, Blaðsíða 29
Greidd iðgjöld í Lífeyrissjóð verzlunarmanna, annan af tveimur stærstu lífeyrissjóðum
landsins árið 2010, voru tæpir 16 milljarðar. Fjárfestingartekjurnar voru rúmir 18
milljarðar. Alls voru tekjurnar því um 34 milljarðar en útgreiddur lífeyrir var hins
vegar aðeins rúmir 6,8 milljarðar. Aðeins um einn fimmti af tekjunum var því greiddur
út. Hrein eign Lífeyrissjóðs verzlunarmanna um áramót var um 310 milljarðar. Sú
upphæð ein, og án vaxta, myndi duga til útgreiðslu lífeyris í 45 ár og 3 mánuði.
Greidd iðgjöld í Gildi, annan af tveimur stærstu lífeyrissjóðum landsins árið 2010,
voru rúmir 11,2 milljarðar. Fjárfestingartekjurnar voru rúmir 9,7 milljarðar. Alls voru
tekjurnar því um 21 milljarður en útgreiddur lífeyrir var hins vegar aðeins tæpir 7,8
milljarðar. Tveir þriðju af tekjunum urðu því eftir í sjóðnum. Hrein eign Gildis um
áramót var um 241 milljarður. Sú upphæð ein, og án vaxta, myndi duga til útgreiðslu
lífeyris í 30 ár og 11 mánuði.
LÍFEYRISSJÓÐUR VERZLUNARMANNA
LÍFEYRISSJÓÐURINN GILDI
IÐGJÖLD 15.946
FJÁRFESTINGARTEKJUR 18.124
SAMTALS TEKJUR 2010 34.070
ÚTGREIDDUR LÍFEYRIR -6.839
EFTIR AF TEKJUM ÁRSINS 27.231
HREIN EIGN TIL GREIÐSLU Í LOK 2010 309.932
HREIN EIGN Í LOK ÁRS ENDIST Í 45 ÁR OG 3 MÁN.
Upplýsingar teknar úr ársreikningi Lífeyrissjóðs verzlunarmanna.
2010 MILLJÓNIR
Væri því ekki nær að HÆKKA lífeyrinn frekar en lækka?
IÐGJÖLD 11.226
FJÁRFESTINGARTEKJUR 9.754
SAMTALS TEKJUR 2010 20.980
ÚTGREIDDUR LÍFEYRIR -7.785
EFTIR AF TEKJUM ÁRSINS 13.195
HREIN EIGN TIL GREIÐSLU Í LOK 2010 241.043
HREIN EIGN Í LOK ÁRS ENDIST Í 30 ÁR OG 11 MÁN.
Upplýsingar teknar úr ársreikningi Gildis.
2010 MILLJÓNIR