Fréttablaðið - 30.04.2011, Blaðsíða 36
Framkvæmdastjóri: Jónas Þ. Þórisson
Margt smátt, 1. tbl. 23. árg. 2011
Ábyrgðarmaður: Bjarni Gíslason
Prentvinnsla:
Umbrot: Pipar/TBWA
Prentun: Ísafoldarprentsmiðja
Í nýrri skýrslu Alþjóðabankans er fullyrt að hátt
matvælaverð ógni hag fátækra um allan heim.
Matvælaverð hefur hækkað um 36% frá því fyrir ári og
fólki fyrir neðan fátæktarmörk fjölgað um 44 milljónir.
Nú er talið að um einn milljarður jarðarbúa þjáist af
vannæringu. Það er ekki hægt að líkja ástandinu á
Íslandi við stöðu þeirra allra verst settu í heiminum.
Hins vegar hefur síhækkandi matvælaverð, lágar
bætur og atvinnuleysi í kjölfar efnahagshrunsins gert
það að verkum að þúsundir fjölskyldna á Íslandi berjast
nú í bökkum. Áhyggjur af framfærslu og velferð barnanna
er mörgum þung byrði. Að leita til hjálparstofnana
eftir brýnustu nauðsynjum eru þung spor fyrir flesta
en hvað leggur fólk ekki á sig fyrir börnin sín.
Hlustum á fólk
Til að geta metið og mætt þörf hvers og eins sem til
Hjálparstarfsins leitar, þurfum við að hlusta á fólk
og bregðast við. Þess vegna er innanlandshjálp
Hjálparstarfs kirkjunnar undir faglegri stjórn félags-
ráðgjafa. Allir sem til okkar leita byrja á að fara í viðtal
til þeirra. Auk mataraðstoðar hefur margvísleg aðstoð
verið veitt, eftir aðstæðum hvers og eins. Má nefna
stuðning vegna skólagöngu og tómstunda barna, vegna
náms framhaldsskólanema, vegna óvænts lyfja- og
lækniskostnaðar, vegna starfsþjálfunar og menntunar
ungra mæðra. Einnig er fötum úthlutað einu sinni í
viku. Þannig hefur aðstoðin verið einstaklingsmiðuð og
veitt til að auka möguleika fólks á að hjálpa sér sjálft.
Bregðumst við; inneignarkort og meiri ráðgjöf
Síðasta haust varð nokkur umræða um tilhögun
matarúthlutunar og biðraðir í því samhengi.
Þær skoðanir urðu háværar að rétt væri að þeir sem
þyrftu á mataraðstoð að halda ættu sjálfir að geta
valið sinn mat. Þær falla að faglegum sjónarmiðum
Hjálparstarfsins en bremsan hefur verið hversu miklu
meiri kostnaður fylgdi þeim. Eftir nákvæmt mat á
stöðunni, ákvað Hjálparstarf kirkjunnar að gera
róttækar breytingar á starfsaðferðum sínum.
Frá 1. maí verða tekin upp inneignarkort í stað
matargjafa í poka. Hópurinn sem fær kortin verður
þó takmarkaður við barnafjölskyldur enda sýna
rannsóknir að fátækt kemur verst niður á þeim.
Með þessari takmörkun reisum við okkur ekki heldur
hurðarás um öxl áður en við sjáum hversu mikið nýja
kerfið mun kosta og hvernig það samræmist tekjum
stofnunarinnar. En enginn mun fara bónleiður til
búðar. Þeim sem ekki hafa börn á framfæri verður um
mataraðstoð vísað á önnur samtök sem úthluta mat.
Þar sem engin slík eru mun Hjálparstarfið einnig veita
barnlausu fólki mataraðstoð. Og ekki má gleyma að öll
önnur aðstoð verður veitt sem hingað til.
Auk þess munum við bjóða upp á þá nýjung að veita
fjárhagsráðgjöf og viðtöl við fjölskylduráðgjafa. Það
mun svara brýnni þörf sem við höfum ekki getað sinnt
sjálf. Fjármálaráðgjafi og fjölskylduráðgjafi munu
hafa aðsetur í húsnæði okkar.
Viltu styðja innanlandssöfnunina okkar?
Sérstakri innanlandssöfnun hefur verið hleypt af
stokkunum til að mæta auknum útgjöldum sem þessar
breytingar kalla á. Geta landsmenn lagt henni lið með
því að greiða valgreiðsluna frá okkur í heimbanka
sínum. Það er von okkar að bæði fólk og fyrirtæki
bregðist vel við. Með þinni hjálp munum við geta létt
undir með mörgum.
Fyrir hönd Hjálparstarfs kirkjunnar vil ég svo þakka
þeim fjölmörgu fyrirtækjum sem hafa lagt matarbúri
okkar lið í gegnum tíðina.
Viljum ekki staðna
(mynd: Þorkell Þorkelsson)
Jónas Þ. Þórisson,
framkvæmdastjóri
2 – Margt smátt ...