Fréttablaðið - 30.04.2011, Blaðsíða 88
30. apríl 2011 LAUGARDAGUR64
folk@frettabladid.is
Þegar
maður túrar
með svona
strákum getur
ekkert gengið
fram af manni
eftir það.
STORME
WHITBY-GRUBB
SÝNINGARTÆKI, SKILAVARA OG ÚTLITSGÖ
LLUÐ
TÆKI Á MIKIÐ LÆKKUÐU VERÐI.
KOMDU OG GERÐU GÓÐ KAUP
LAGERHREINSUN
Í SKEIFUNNI
LAUGARDAG
OG SUNNUDA
G
Storme Withy-Grubb
frá Englandi tekur þátt
í fræðslukvöldi Útóns á
þriðjudaginn. Hún hefur
skipulagt tónleikaferðir
með frægum hljómsveit-
um á borð við Bloc Party,
Kaiser Chiefs, CSS og hina
íslensku Mínus.
Hin þrítuga Storme Whitby-Grubb
frá Englandi tekur þátt í fræðslu-
kvöldi Útóns, útflutningsskrif-
stofu íslenskrar tónlistar, á þriðju-
dagskvöld þar sem hún
ræðir um reynslu sína
af skipulagningu tón-
leikaferðalaga með
hljómsveitum á borð við
Kaiser Chiefs, CSS, The
Datsuns, We Are Scient-
ists og Mínus. Auk þess
var hún framkvæmda-
stjóri Bloc Party á tón-
leikaferð hennar um
heiminn 2007.
Storme hóf feril sinn
árið 1999 hjá þáverandi
útgáfufyrirtæki Sigur
Rósar, hinu enska Fat
Cat Records. Árið eftir
flutti hún til Íslands og gerð-
ist aðstoðarkona Sigur Rósar og
starfaði hjá Smekkleysu. „Ég var
nítján ára og vildi ekki lengur búa
hjá mömmu. Ég bað um að fá að
fara til Íslands og þeir samþykktu
það,“ segir Storme um stjórn-
endur Fat Cat Records. „Ég var í
hlutastarfi hjá Smekkleysu í lítilli
skrifstofu við Klapparstíg og þar
var alveg frábært. Á meðan vinir
mínir voru á fullu í háskólanámi
bjó ég í Reykjavík, hékk á Kaffi-
tári og drakk kaffi flesta daga,“
segir hún og hlær.
Storme stjórnaði einnig kynn-
ingarmálum fyrir Airwaves-
hátíðina í tvö ár. Árið 2002 flutti
hún aftur heim til London. Fyrsta
tónleikaferðalag hennar var með
múm þar sem hún seldi ýmsan
varning fyrir hljómsveitina. Að
því loknu fór hún á tónleikaferð-
ir með Yeah Yeah Yeahs, Inter-
pol og The Rapture og
seldi fyrir þær varning.
Árið 2002 skipulagði
hún sína fyrstu tónleika-
ferð, þar sem rokkar-
arnir í Mínus voru skjól-
stæðingar hennar, en
hún hafði áður starfað
fyrir þá hjá Smekkleysu.
„Ég lifði það af og er
því enn hér til að segja
sögu mína,“ segir hún
hlæjandi en Mínus-liðar
skemmtu sér vel í ferð-
inni. „Ég lærði mikið á
þessari ferð. Þeir höfðu
ekki farið í tónleikaferð
um Bretland áður og ég hafði ekki
stjórnað tónleikaferð áður. Ég var
21 árs og varð að standa á eigin
fótum á hverjum einasta degi.
Þegar maður túrar með svona
strákum getur ekkert gengið fram
af manni eftir það.“
Fyrir tveimur árum fékk Storme
leið á tónleikaferðalögum eftir sjö
ára keyrslu og vildi prófa eitt-
hvað nýtt. „Ég vildi ekki vera sex-
tug kona á túr með engin börn og
engan mann. Það hljómar sem
andfeminískt viðhorf en jafnvel
stjórnsöm viðskiptakona eins og
ég þarf stundum ást í líf sitt.“ Hún
stofnaði fyrirtækið Little Touring,
sem hefur vaxið hratt að undan-
förnu. „Ég vildi stjórna tónleika-
ferðum með smærri hljómsveit-
um heiman frá mér og eitt fyrsta
bandið var For a Minor Reflection.
Kúnnunum fjölgaði mjög fljótt og
fyrirtækið stækkaði. Núna vinna
þar fjórir til fimm starfsmenn og
25 manna hópur er einnig á víð og
dreif á tónleikaferðum.“ Á meðal
hljómsveita sem eru á mála hjá
Little Touring eru CSS, Noah and
the Whale og The Horrors. Storme
hlakkar til að koma til Íslands og
taka þátt í Fræðslukvöldi Útóns í
Norræna húsinu á þriðjudagskvöld.
„Vonandi verða þarna kunnugleg
andlit og ef einhver vill fá góð ráð
eða einhverja hjálp verð ég til stað-
ar.“ freyr@frettabladid.is
Lifði af tímann með Mínus
SKIPULEGGUR TÓNLEIKAFERÐIR Storme Whitby-Grubb hefur skipulagt tónleikaferðir
fyrir margar frægar hljómsveitir.
24 STUNDA samfélagsþjónusta þykir næg refsing fyrir Gossip Girl stjörnuna Chase Crawford. Hann var handtekinn í júní í fyrra með marijúana og þykir sleppa vel.
Meryl Streep losnar ekki svo
auðveldlega við hlutverk sitt í
söng-og dansmyndinni Mamma
Mia sem varð algjört fyrirbæri í
kvikmyndahúsum víða um heim.
Þetta segir mótleikari hennar,
Richard E. Grant, en þau leika
saman í kvikmyndinni Iron Lady
sem fjallar um breska forsætis-
ráðherrann Margréti Thatcher.
Grant segir í samtali við Daily
Mail að þegar hann og Streep
voru að leika í alvarlegum senum
hafi Streep nýtt tækifærið þegar
stundarfriður gafst og raul-
að fyrir hann lög Abba-flokks-
ins. „Það var eitthvað verulega
skondið við að sjá hana í hlut-
verki Thatcher að syngja Abba-
lög,“ segir Grant í samtali við
Daily Mail.
Syngur Abba
á tökustað
SÖNGKONA Meryl Streep á það til að
bresta í söng á tökustað og bregður þá
yfirleitt fyrir sig Abba-lögum.