Fréttablaðið - 30.04.2011, Blaðsíða 79
569 5100
skyrr@skyrr.is Velkomin
Nördar stjórna heiminum
Fjögur spennandi störf hjá stærsta (og langskemmtilegasta) UT-fyrirtæki landsins
Skýrr: Stórt og næs
landsins í upplýsingatækni. Skýrr er jafnframt
níunda stærsta UT-fyrirtæki Norðurlanda með
tæplega 1.100 starfsmenn, þar af 600 á Íslandi.
Viðskiptavinir skipta tugþúsundum. Skýrr er
vottað samkvæmt alþjóðlegu gæða- og öryggis-
stöðlunum ISO 9001 og 27001.
Fyrirtækið býður atvinnulífinu og einstaklingum
heildarlausnir á sviði hugbúnaðar, vélbúnaðar og
rekstrarþjónustu.
Skýrr er jafnréttissinnað, fjölskylduvænt og
hlúir vel að starfsfólki. Sveigjanlegur vinnutími,
góð laun og frábær vinnuaðstaða í boði. Kaffið er
magnað og maturinn fyrsta flokks. Félagslífið er
kraftmikið og uppákomur tíðar. Gildi Skýrr eru
ástríða, snerpa og hæfni. Það er töff að vera
nörd.
Söluráðgjafi: Viðskiptaumsjón
Skýrr leitar að öflugum söluráðgjafa með haldgóða
tækniþekkingu, góða framkomu, mikla samskiptahæfileika
og metnað fyrir hönd fyrirtækisins. Söluráðgjafinn ber
ábyrgð á að selja lausnir félagsins til ákveðinna viðskipta-
vina ásamt öflun nýrra viðskiptatækifæra. Hann þarf að
hafa menntun sem nýtist í starfi og reynslu af beinni sölu
á sviði upplýsingatækni eða tengdri starfsemi.
Hæfniskröfur
· Háskólamenntun og/eða önnur menntun sem nýtist í starfi
· Þekking og reynsla af sölustörfum
· Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum
· Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
· Skipulagshæfni, frumkvæði og mikil þjónustulund
Sérfræðingur í Microsoft rekstri
Skýrr leitar að Microsoft-sérfræðingi til að hafa umsjón með
rekstri netþjóna í hýsingarumhverfi EJS, sem er hluti af Skýrr.
Viðkomandi þarf að geta unnið jafnt sjálfstætt sem í liðsheild.
Í starfinu felast mikil samskipti og samvinna við aðrar deildir
Skýrr, sem og við viðskiptavini.
Hæfniskröfur
· Mjög góð þekking á Microsoft-stýrikerfum
· 3-5 ára reynsla af rekstri, hönnun og uppsetningu tölvukerfa
· Microsoft-vottanir, t.d. MCSE eða MCITP Server
Administrator, MCITP Enterprise Administrator
· Þekking á MS Exchange, Windows 2008 R2, Terminal Server,
MS Lync, MS SharePoint 2010, Powershell, MS SQL, IIS og
Citrix Xenapp er kostur
Sölusérfræðingur: Miðlægar lausnir
Skýrr leitar að öflugum sölusérfræðingi til að sinna sölu á
miðlægum lausnum frá heimsþekktum framleiðendum eins
og EMC, DELL, APC og Cisco. Starfið felst í söluráðgjöf,
samningagerð og samskiptum við viðskiptavini og birgja.
Viðkomandi er hluti af teymi sem hefur það hlutverk að nálgast
nýja viðskiptavini og styðja við aðra sölustarfsemi í félaginu.
Yfirgripsmikillar þekkingar og reynslu er krafist, ásamt
brennandi áhuga á upplýsingatækni.
Hæfniskröfur
· Háskólamenntun og/eða önnur menntun sem nýtist í starfi
· Þekking og reynsla af sölu og/eða þjónustu
á miðlægum lausnum
· Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum
· Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
· Skipulagshæfni, frumkvæði og mikil þjónustulund
Sérfræðingur í Microsoft Dynamics NAV
Skýrr leitar að reyndum hugbúnaðarsérfræðingi með
þekkingu á viðskiptalausninni Microsoft Dynamics NAV.
Viðkomandi mun starfa við forritun, innleiðingar,
uppfærslur, ráðgjöf og þjónustu við viðskiptavini. Einnig
mun viðkomandi taka virkan þátt í þróun sérlausna.
Hæfniskröfur
· Reynsla í Microsoft Dynamics NAV (tengdar prófgráður kostur)
· Háskólagráða í tölvunar- eða verkfræði nauðsynleg
· Mikill áhugi á upplýsingatækni og viðskiptalausnum
· Fagmennska og frumkvæði í vinnubrögðum
· Mikil þjónustulund og samskiptafærni
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar um þessi fjögur störf veitir María Ammendrup í
569 5100 eða maria.ammendrup@skyrr.is. Umsóknarfrestur er til og með
9. maí næstkomandi. Sendið umsóknir gegnum skyrr.is. Fullum trúnaði
heitið. Öllum umsóknum er svarað.