Fréttablaðið - 30.04.2011, Blaðsíða 32
30. apríl 2011 LAUGARDAGUR32
FRAMHALD AF SÍÐU 30
Dagskrá
1. Flutt skýrsla stjórnar
2. Ger› grein fyrir ársreikningi
3. Tryggingafræ›ileg úttekt
4. Fjárfestingarstefna sjó›sins kynnt
5. Önnur mál
Ársfundur 2011
Allir sjó›félagar, jafnt grei›andi sem lífeyrisflegar,
eiga rétt til fundarsetu á ársfundinum.
Sjó›félagar eru hvattir til a› mæta á fundinn.
Stjórn Söfnunarsjó›s l ífeyrisréttinda
Ársfundur Söfnunarsjóðs lífeyrisréttinda verður
haldinn þriðjudaginn 17. maí 2011 kl. 16.00,
að Borgartúni 29, 4. hæð.
Reykjavík 19. 04. 2011
Þ
að var mikil eftirvænting
í loftinu þegar prúðbúnir
gestir tóku að streyma að
Westminister Abbey í gær-
morgun. 1900 manns var boðið í
brúðkaupið, bæði konungbornum og
háttsettum breskum þegnum auk
vina og vandamanna brúðhjónanna.
Gestir á borð við Margréti Dana-
drottningu, Viktóríu Svíaprins-
essu og Beckham-hjónin vöktu
athygli fjölmiðla sem einnig gerðu
sér mat úr skrautlegum höttum og
hárskrauti kvenpeningsins. Hefð er
fyrir því í Bretlandi að konur beri
hatta í brúðkaupum. Margar lögðu
því mikinn metnað í vali sínu á höf-
uðbúnaði í tilefni dagsins.
Hattadýrð brúðkaupsgesta
BRESK ELÍTUDAMA Tara Palmer-Tomkinson er þekkt í Bretlandi, meðal annars fyrir að
stjórna sjónvarpsþætti. Hún ákvað að klæðast hinum konunglega bláa lit frá toppi til
táar og hatturinn var í frumlegri kantinum.
HOLLYWOOD-BRAGUR David og Victoria
Beckham voru meðal gesta en hún
klæddist kjól úr eigin smiðju og litlum
hatti sem sat á enninu. Einnig vakti
skóbúnaður frú Beckham athygli, en
hún var á sextán sentimetra hælum
þrátt fyrir að vera komin langt á leið
með fjórða barn þeirra hjóna.
Gúrkusamlokur og Buck‘s fizz
Vinkonurnar Þóra Björk Ólafsdóttir, Hallveig Rúnars-
dóttir og Valdís Arnardóttir voru í hópi þeirra sem hittust
í gærmorgun til að fylgjast með útsendingu frá brúð-
kaupinu. „Við byrjuðum á því að baka skonsur og hella
upp á te,“ segir Þóra Björk enda fátt breskara en skonsur.
Nema ef vera skyldi gúrkusamlokur en Valdís mætti einmitt
með þær í boðið. „Við skáluðum svo á viðeigandi stöðum í
appelsínusafa og freyðivíni, en þann drykk ákváðum við að
kalla Buck‘s fizz í tilefni dagsins.“ Þóra Björk segir þær hafa
verið afar ánægðar með athöfnina, kjólinn og svalastund
hjónanna Vilhjálms og Katrínar. „Við klæddum okkur í
blómakjóla í tilefni dagsins og settum upp hárskraut.“ Þóra
Björk segir þetta allt í gamni gert, en viðurkennir þó að
hafa laumulegan áhuga á konungsfjölskyldum. „Ég spái
hjónabandinu langlífi,” segir hún að lokum.
SUMARLEG Viktoría prinsessa var smekk-
leg í ferskjulituðum kjól með kvenlegu
sniði og vitaskuld með hatt í stíl.
Yngri systirin sem stal senunni
Systir brúðarinnar og elsta brúðarmærin, Pippa Middleton, vakti mikla
athygli er hún sinnti hlutverki sínu af alúð. Hún var, líkt og brúðurinn,
klædd í kjól úr smiðju Söruh Burton.
Pippa er 27 ára gömul og yngri systir Katrínar hertogaynju af Cambridge.
Hún tilheyrir hinni svokölluðu ungu elítu í Bretlandi. Hún hefur af breskum
slúðurblöðum verið útnefnd einn eftirsóttasti kvenkostur landsins og er
víst ólík systur sinni að því leyti að hún er mikið partíljón og hefur ein-
staklega gaman af sviðsljósinu. Í breskum fjölmiðlum hefur sú skoðun
verið viðruð að Pippa sé í raun betur sett en systir hennar. Hún fái öll
fríðindin sem fylgi því að vera í konungsfjölskyldunni án þess þó að þurfa
að sinna skyldunum.
BLÓMASKRAUT Miriam Gonzalez, kona
Nicks Glegg, varaforsætisráðherra Bret-
lands, vakti athygli með stórt blóm í hári.
HÁSTÉTTARDAMA Sophie Winkelman,
lafði Friðrik Windsor, var með klassískan
breskan brúðkaupshatt á höfði.
BRESKU PRINS-
ESSURNAR Eugenie
og Beatrice, prins-
essurnar af York,
klæddust sumarleg-
um kjólum og skraut-
legum höfuðbúnaði í
anda breskrar tísku.