Fréttablaðið - 30.04.2011, Blaðsíða 49
LAUGARDAGUR 30. apríl 2011 3
Sölumaður með lagerumsjón óskast!
Við leitum af frískum, duglegum og reglusömum einstakling
í sölu- og lagerumsjón, með þekkingu og áhuga á
Dieselvélum.
Um er að ræða fullt starf í sölu- og lagerstörfum á þjón-
ustuverkstæði í Reykjavík. Starfið er krefjandi og þarf við-
komandi að temja sér sjálfstæð vinnubrögð. Almenn tölvu-
kunnátta er nauð-synleg. Þekking og reynsla af birgðakerf-
um er æskileg - s.s TOK.
Starfsmaðurinn þarf að geta séð almennt um birgðahald
fyrirtækisins og unnið í Microsoft Word og Outlook.
Góð íslensku og enskukunnátta er nauðsynleg.
Skilafrestur umsókna er til 6. júní.
Umsóknir skulu sendar á netfangið:
box@frett.is mekt: „Sölumaður á lager”
Yfirmaður þjónustuvers
Norðurorka hf. óskar eftir að ráða þjónustustjóra til að
veita þjónustuveri fyrirtækisins forstöðu. Þjónustuver
er ný þjónustueining sem sinnir almennri viðskipta-
þjónustu og tæknilegri ráðgjöf.
Starfið felur í sér:
• skipulag þjónustunnar
• vinnuskipulag starfsmanna þjónustuvers
• sölu og kynningarmál í samráði við stjórnendur
• ábyrgð á reikningagerð og innheimtum
• samskipti við viðskiptavini, verktaka og hönnuði
Menntunar og hæfniskröfur:
• rekstarfræði eða sambærilega framhaldsmenntun
sem nýtist í starfi
• gerð er krafa um leiðtogahæfni og ríka þjónustulund
• skipulögð og öguð vinnubrögð
• stjórnunarreynsla æskileg
Starfið heyrir undir sviðsstjóra fjármálasviðs.
Umsóknir skulu sendar til starfsmannastjóra,
Guðrúnar Harðardóttur gbh@no.is sem veitir einnig
nánari upplýsingar um starfið.
Umsóknarfrestur er til 15. maí nk.
Norðurorka hf. - www.no.is - Sími 460-1300
Yfirmatreiðslumaður
Yfirmatreiðslumaður ber ábyrgð á daglegum rekstri, innkaupum og vaktaskipulagi. Hann þarf að búa
yfir óþrjótandi metnaði, drifkrafti og brennandi áhuga á matargerð. Þekking á japanskri matargerð er
kostur en ekki skilyrði. Umfram allt leitum við að reynslubolta til að stýra eldhúsinu og leiðbeina öðru
starfsfólki og sjá til þess að aldrei sé hvikað frá ströngum gæðakröfum.
Matreiðslumenn/ aðstoðarfólk í eldhúsi
Okkur vantar fleira hæfileikafólk í eldhúsið. Leitum að fólki með brennandi áhuga á matargerð sem er
reiðubúið að læra nýja og spennandi hluti. Unnið er á 11 tíma vöktum, tvo daga aðra vikuna og fimm
daga þá næstu. Matreiðslumenntun er kostur en ekki skilyrði.
Vaktstjóri
Við leitum að manneskju með góða skipulagshæfileika og hæfni til að vinna með öðru fólki. Vaktstjóri
þarf að vera fremstur meðal jafningja, hann ber ábyrgð á því að vaktin gangi vel og þarf að vera
sívakandi yfir velferð og ánægju gesta. Aðeins röggsamt og jákvætt fólk kemur til greina.
Starfsfólk í sal og eldhúsi
Við leitum að brosmildu og duglegu fólki með ríka þjónustulund sem er jafnframt ábyrgðarfullt og
reiðubúið að leggja sitt af mörkum til þess að upplifun matargesta verði jafn góð af þjónustu og mat.
Vertu með í að skapa frábært andrúmsloft á nýjum og spennandi stað.
Sendu okkur umsókn á atvinna@tokyo.is fyrir 10. maí og segðu okkur frá þér, styrkleikum þínum og
veikleikum og láttu ferilskrá og mynd fylgja. Allar nánari upplýsingar á www.tokyo.is.
Tokyo er nýr veitingastaður í Reykjavík sem mun sérhæfa sig í sushi og ferskum heilsu-
réttum. Við leitum að metnaðargjörnu og drífandi fólki með mikla þjónustulund, til þess
að byggja upp einstakan veitingastað með okkur. Unnið verður á tveimur vöktum og allir
starfsmenn fá góða þjálfun í sushigerð og fræðslu um matarhefðina. Frítt fæði og góð
laun í boði fyrir eldhuga sem vilja vera hluti af góðri liðsheild. Tokyo er reyklaus vinnustaður.
OPNAR Í GLÆSIBÆ
Í JÚNÍ