Fréttablaðið - 30.04.2011, Blaðsíða 69
Hver sagði
að það væri
sjálfsagt?
Við höldum að allir sem það vilja geti klárað framhalds-
skóla. En krakkarnir sem koma til Hjálparstarfs kirkjunnar
vita að það er ekki sjálfsagt. Unglingar sem búa við þröngan
fjárhag foreldra þekkja því miður annan raunveruleika.
Þau sjá fram á, að ef ekkert breytist, þá geti þau
gleymt öllu námi. Þau sjá hvað getur verið stutt í sömu
stöðu og foreldrar þeirra eru í, oft í láglaunastarfi
vegna lítillar menntunar eða óvinnufærir vegna
sjúkdóma, slysa eða óreglu. Hjálparstarf kirkjunnar
komst að þessu í gegnum viðtöl við þessa sömu
foreldra. Í kjölfarið var Framtíðarsjóðurinn stofnaður.
Enginn í alveg sömu sporum
Hún vissi um Framtíðarsjóðinn, stúlkan sem kláraði
menntaskólann sinn á skemmri tíma til að komast sem
fyrst að heiman úr erfiðum aðstæðum. Hún fékk
stuðning fyrir sumarönn við Fjölbraut í Breiðholti.
Duglega sveitastelpan sem þurfti að sækja skólann
sinn langt að, hafði líka frétt af sjóðnum. Hún gat
látið drauminn um menntun rætast þegar hún fékk
greiddan heimavistarkostnað frá Hjálparstarfinu og
inneignarkort í matvöruverslun til að brúa bilið fram
að sumarvinnunni. Strákurinn sem horfði á einstæða
móður sína vinna myrkra á milli fyrir þremur börnum,
ætlaði að hætta í skóla og fara að vinna. Góður
kennari kom honum til okkar og saman fundum við
lausn sem dugði. Við gátum bent á félagslegar bætur
sem móðir hans vissi ekki um og breyttu öllu. Hann
fékk stuðning til bókakaupa og fyrir skólagjöldum.
Hann hélt áfram í átt til betri framtíðar. Annar var með
stöðugan höfuðverk og þreyttist fljótt á lestri. Hann
fékk gleraugun sem hann hafði ekki haft efni á.
Lausnirnar eru oft ekki flóknar, en samt utan seilingar.
Virkjum hæfileikana og viljann
Aðstæðurnar eru ólíkar og lausnir Hjálparstarfsins
því mjög einstaklingsbundnar. En allar miða þær að
því að hjálpa ungu fólki að ljúka námi sem gefur því
starfsréttindi eða aðgang að lánshæfu námi. Þannig
virkjum við hæfileika og vilja ungs fólks til að vera
fullnýtir samfélagsþegnar sem skapa sér eigin framtíð.
Þú getur styrkt þennan þátt í starfi okkar til dæmis með
gjafabréfi í Framtíðarsjóðinn á www.gjofsemgefur.is.
Þú getur stutt innanlandsaðstoð okkar með því að
greiða valkröfuna í heimabankanum þínum. Hún bíður
þín fagnandi!
Hjálparstarf kirkjunnar veitir ungmennum um
allt land stuðning til að ljúka framhaldsnámi til
starfsréttinda eða lánshæfs náms. Það er ein
leið til að rjúfa vítahring lítillar menntunar,
lágra launa og fátæktar.
(Mynd: Þorkell Þorkelsson)
Margt smátt ... – 11