Fréttablaðið - 30.04.2011, Blaðsíða 71
LAUGARDAGUR 30. apríl 2011 47
Þó að myndasögublöðin frá Siglufjarðarprenti hafi gengið vel í íslensk ungmenni voru ekki
allir jafn hrifnir á sínum tíma. Þeirra á meðal er
Gísli Einarsson, eigandi verslunarinnar Nexus,
sem hefur séð íslensku áhugafólki fyrir mynda-
sögum frá árinu 1990.
„Þegar þessi útgáfa var að byrja var ég orð-
inn áskrifandi að blöðum frá Bandaríkjunum og
fannst þýðingarnar á ofurhetjublöðunum alveg
einstaklega slæmar og leit ekki við þeim. Ég
keypti þó önnur blöð frá Siglufjarðarprenti, eins
og Tarzan og fleira.“
Gísli segir þýddu blöðin alls ekki hafa fallið í
kramið hjá hörðustu myndasöguáhugamönnum
og þýðingarnar hafi farið illa í menn, sérstaklega
þegar verið var að snúa nöfnum á persónum.
„En seinna, þegar ég komst til vits og ára, áttaði
ég mig á því að þetta var gríðarlega mikilvægt
innlegg í myndasögumenninguna á Íslandi, því að
fjölmargir sem voru yngri en ég lásu þessi blöð og
þetta voru þeirra fyrstu kynni af ofurhetjumenn-
ingunni. Svo þegar við fórum að selja blöðin á
ensku í einhverju magni, upp úr 1992, voru margir
búnir að lesa blöðin lengi á íslensku og voru því
tilbúnir að taka næsta skref og lesa sögurnar á
frummálinu.“
Gísli segist ekki fá fyrirspurnir um
Siglufjarðar blöðin í búðinni, en þau komi oft til
tals þegar rætt er um myndasögur og það sýni
hversu margir hafi lesið þau á sínum tíma.
„Eftir á að hyggja var þetta stórmerkilegt fram-
tak þó að það hafi ekki fallið í kramið hjá mér
persónulega, og á allan heiður skilinn.“
En telur Gísli að markaður sé fyrir þýddar
myndasögur á Íslandi í dag?
„Það er erfitt að segja. Í gamla daga var hægt
að gefa út Lukku-Láka bók og vera viss um að
helmingur allra stráka myndi kaupa hana, en
ekki í dag. Það er miklu meiri afþreying í boði, til
dæmis tölvur, sjónvarp, tónlist og þess háttar, en
það er alltaf einhver möguleiki. Við í Nexus höfum
ekki treyst okkur til þess, síst af öllu nú í krepp-
unni, en kannski getur einhver tekið þetta að sér í
framtíðinni.“
FYRSTU KYNNI MARGRA AF OFURHETJUM
VAR EKKI HRIFINN Gísli Einarsson, myndasöguáhugamaður og eigandi verslunarinnar Nexus, segist ekki hafa þótt mikið til
þýddu ofurhetjublaðanna koma á sínum tíma. Síðar sá hann að margir Íslendingar kynntust ofurhetjum fyrst í gegnum þau
blöð. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTONá Siglufirði hét Jóhann, kallaður
Jonni, þannig að tannlæknirinn í
sögunni var umsvifalaust skírður
Jonni tannlæknir!“
Þrekið þvarr
Útgáfan gekk mjög vel og blöðin
nutu lengi mikilla vinsælda, en upp
úr 1990 fór að draga úr, og segir
Jón Sæmundur að vinnuþrek föður
hans hafi farið þverrandi.
„Það sem skipti sköpum var
að útgáfurétturinn að blöðunum
um Tomma og Jenna færðist frá
Bandaríkjunum til Svíþjóðar, þann-
ig að okkar beina samband vestur
um haf var rofið og við ákváðum þá
að móðgast og hættum. Þeir sendu
mann hingað til að ræða við okkur
en þetta fór saman við það að pabbi
var orðinn þreyttur og búinn að fá
nóg, og þá var mamma, sem hafði
séð um alla fasta áskrifendur, orðin
lasin líka.“
Gömlu blöðin seljast enn
Þrátt fyrir að nær tuttugu ár séu
liðin frá því að blöðin hættu að
koma út er enn til þó nokkuð af
blöðum í geymslum og segir Jón
Sæmundur að hann fái oft fyrir-
spurnir frá áhugafólki.
„Upplagið var fyrst um fjögur
þúsund eintök en þó að faðir minn
hafi fengið það niður í þrjú þúsund
eigum við mikið til og ég er að fara
með þetta á bókamarkaði víða. Það
er helst að eintök vanti in í suma
árganga af Tomma og Jenna, en
það er af því að þau blöð seldust
alltaf vel.“
Jón Sæmundur segir að blöðin
seljist enn nokkuð vel. „Kaupend-
urnir eru sumir harðir safnarar
að leita að blöðum til að fylla eða
endurnýja söfn sín, en það er líka
nostalgía hjá fólki sem las blöð-
in í gamla daga og er kannski að
kynna þau fyrir sínum börnum.“
Skráðu þig inn
drífðu þig út
Ferðafélag
Íslands
Við fyrsta hanagal
- morgungöngur Ferðafélags Íslands 2011
Komdu með í frískandi fjallgöngu í morgunsárið og vaknaðu með fugl-
unum í eina viku. Einstök náttúruupplifun, gleði og göngustemmning.
Ókeypis þátttaka. Brottför á eigin bílum úr Mörkinni 6 kl. 06.00 eða
mæting á upphafsstað göngu.
Nánari upplýsingar á www.fi.is
Fararstjórar: Páll Ásgeir Ásgeirsson og Rósa Sigrún Jónsdóttir
Fjöll vorsins:
Mánudagur 2. maí. Helgafell við Hafnarfjörð.
Þriðjudagur 3. maí. Mosfell í Mosfellsdal.
Miðvikudagur 4. maí. Helgafell í Mosfellssveit.
Fimmtudagur 5. maí. Vífilsfell.
Föstudagur. 6. maí. Úlfarsfell morgunmatur í boði FÍ.