Fréttablaðið - 30.04.2011, Blaðsíða 40
Skólinn er að byrja. Hestanámskeið er að baki,
hjólatúrar, leikjanámskeið og sumarbúðirnar. Nú eru það
nýjar stílabækur, möppur, fallegir blýantar og penna-
veski. Líka nýju skólafötin. Allt er slitið frá í fyrra eða
orðið of lítið. Sumir fá að velja þetta úti í búð. Aðrir
koma til Hjálparstarfs kirkjunnar.
Notað og nýtt alltaf hagsýn
Efnalitlir foreldrar skila til Hjálparstarfsins gögnum
um tekjur sínar og gjöld. Ef afgangurinn er ekki meiri
en viðmið umboðsmanns skuldara segir til um, þá
hlaupum við undir bagga. Börn eiga ekki að gjalda þess
að eiga efnalitla foreldra. Ekki varðandi skólagöngu og
lágmarks, þroskandi tómstundir. Hjálparstarf kirkjunnar
setur barnafólk
í forgang og hefur opnað fjölda leiða til að styðja það.
Útgjöld vegna skóla byrjunar, samkvæmt innkaupa-
listum skólanna, greiðum við með inneignarkortum.
Stundum eigum við gjafir frá fyrirtækjum svo sem
stílabækur og skólatöskur og nýtum það. Stundum
vantar börn gleraugu, lesgreiningu og fleira sem
foreldrum getur reynst ógerningur að öngla saman
fyrir. Það er skrítið til þess að hugsa að barn sem þarf
gleraugu, fái þau ekki. Hjálparstarfið hjálpar við
þessar aðstæður. Það sem við ekki eigum á fatalager
okkar fyrir börn í skóla, hjálpum við foreldrum að
kaupa með inneignarkorti frá okkur. Á lagernum eru
notuð föt sem almenningur og stundum verslanir, hafa
gefið. 13–20 manns koma í viku hverri að fá föt á sig og
fjölskyldur sínar.
Verndum börnin
Til þess að börn finni sem minnst fyrir kreppunni
fórum við út í að styrkja tómstundir þeirra yfir
veturinn. Við höfðum þá í nokkur ár kostað börn á
námskeið og í sumarbúðir eða keypt hjól, bretti og
annað sem tengist sumrinu. Börnin fá að velja. Það er
mikilvægt. Það eru ekki allir „í boltanum“. Það er ekki
alveg ókeypis að vera í barnaskóla á Íslandi og það
sem þarf að greiða er bara of mikið fyrir suma.
Skólinn og tómstundirnar ekki gefins
Hjálparstarf kirkjunnar styður skólagöngu
barna efnalitilla foreldra. Vetur og sumur
greiðir Hjálparstarfið fyrir tómstundir,
sumargjafir og sumarnámskeið.
(mynd: Þorkell Þorkelsson)
6 – Margt smátt ...
Malaría, ormasýkingar, berklar, kvefpestir og jafnvel
alnæmi. Nóg er af sjúkdómum í veröldinni en fáir vekja
ugg í brjósti okkar Vesturlandabúa. Það eru til lyf við
öllu – eða svo til. Ef ekki, þá dugar oft hvíld við gott
atlæti í nokkra daga. Við erum löngu komin út úr
raunveruleika fátækari þjóða sem þekkja það að
komast ekki til læknis, eiga ekki fyrir lyfjum og geta
ómögulega tekið sér hvíld frá verki, því þá verður
enginn matur á borðum. EÐA HVAÐ?
„Taktu eitthvað við því“
Já, eða hvað? Getum við verið óttalaus gagnvart
sjúkdómum? Ekki allir. Unnvörpum leitar fólk aðstoðar
Hjálparstarfsins til að kaupa lyf. Fólk sem fær ekki þá
læknisþjónustu sem það þarf, fær ekki lyfin sem lækna
og lina þjáningar, fær ekki þau lífsgæði sem það ætti
að njóta af því það á ekki fyrir þeim. Þessa stöðu hafa
félagsráðgjafar okkar sannreynt með því að fara yfir
gögn um tekjur og útgjöld allra sem fá aðstoð hjá
Hjálparstarfinu. Þau ólíkindi gerast að jafnvel er hringt
til Hjálparstarfsins frá sjúkrahúsum og stofnunin beðin
um að greiða lyf svo hægt sé að útskrifa sjúkling.
Myndi „HALLÓ!!“ eiga við hér?
Neyðaraðstoð með lyf
Hjálparstarfið reynir að bæta úr mestu neyðinni.
Á síðasta ári fengu 240 einstaklingar lyfjaaðstoð fyrir
830.000 kr. Fleiri hefðu þurft aðstoð en við verðum að
takmarka útgjöldin. Við greiðum til dæmis ekki lyf sem
hægt er að selja á götunni. Við getum ekki borgað lyf
sem fólk notar að staðaldri, jafnvel hjartalyf eða önnur
lífsnauðsynleg lyf. Hjálparstarf kirkjunnar getur, fjár -
hagsins vegna, aðeins greitt lyf sem fólk þarf óvænt á
að halda vegna skyndilegrar uppákomu. Annað verðum
við að telja til fyrirsjáanlegra útgjalda og við veitum
neyðaraðstoð. Hvað segja þessar nöturlegu reglur um
kjör svo margra? Þær segja þann einfalda sannleika að
á meðal okkar er fólk sem þarf verulega að óttast um
heilsu sína af því það hefur ekki aðgang að læknisþjónustu.
Gætir þú sagt nei?
Þetta er harðneskjulegt, ekki síst þegar börn eiga
í hlut. Stöku sinnum förum við út fyrir rammann.
Stundum er bara ekki hægt að segja nei. En eiga
hlutirnir að vera svona? Hvernig samfélag viljum við
byggja? Þú getur hjálpað okkur, þar til kerfið breytist
og samfélagið axlar þessa ábyrgð að fullu. Smelltu á
valkröfuna frá okkur í heimabankanum þínum.
Andvirðið rennur allt til innanlandsaðstoðar.
Erum við ónæm?
(mynd: Þorkell Þorkelsson)