Fréttablaðið - 30.04.2011, Blaðsíða 90
30. apríl 2011 LAUGARDAGUR66
Leikkonan January Jones, sem
sló í gegn í sjónvarpsþáttunum
Mad Men, á von á sínu fyrsta
barni. Leikkonan vill þó ekki
gefa upp faðerni barnsins.
„January á von á sínu fyrsta
barni nú í haust. Hún hlakkar
mikið til þessa nýja kafla í lífi
sínu og að takast á við móðurhlut-
verkið,“ stóð í tilkynningu frá
talsmanni hennar.
Jones átti í stuttu sambandi
við giftan kokk um mitt síðasta
ár auk þess að hafa átt í sam-
bandi við gamanleikarann Jason
Sudeikis, sem er hvað þekkt-
astur fyrir leik sinn í þáttunum
Saturday Night Live. Sambandi
Jones og Sudeikis lauk í desemb-
er í fyrra.
Ólétt stjarna
ÓLÉTT January Jones á von á sínu fyrsta
barni í haust. NORDICPHOTOS/GETTY
Isaac Brock og félagar í hljóm-
sveitinni Modest Mouse vinna nú að
fimmtu breiðskífu sinni. Á meðal
þeirra sem hafa unnið með hljóm-
sveitinni í hljóðverinu er rapparinn
Big Boi úr OutKast-dúettinum, en
ekki liggur fyrir hvað hann hefur
fram að færa.
Big Boi greindi frá þessu á Twitter-
síðu sinni og bætti við að meðlimir
Modest Mouse væru svölustu kettir
allra tíma (e. coolest cats ever).
Útkoman verður eflaust forvitni-
leg, en Modest Mouse gaf síðast út
plötu árið 2007, en það var hin ágæta
We Were Dead Before the Ship Even
Sank. Óvíst er hvenær nýja platan
kemur út.
Big Boi með Modest Mouse
ÓLÍKIR LISTAMENN Big Boi og drengirnir í Modest Mouse eiga fátt sameiginlegt.
Breski leikarinn Ray Winstone
segist ekki sjá eftir því að hafa
hafnað hlutverki í bandarísku
sjónvarpsþáttaröðinni The Wire.
Því hefur verið haldið fram að
þættirnir séu meðal þeirra bestu
sem framleiddir hafa verið í
bandarísku sjónvarpi og jafn-
vel borgarstjórinn í Reykjavík,
Jón Gnarr, setti það sem skilyrði
fyrir meirihlutaviðræðum að við-
komandi oddviti hefði horft á
allar þáttaraðirnar.
Winstone, sem yfirleitt leikur
mikla harðhausa, sagðist ekki
geta hugsað sér að vera fjar-
verandi frá fjölskyldu sinni í
svona langan tíma. „Ef ég hefði
verið ungur hefði ég velt þessu
fyrir mér, að flytja til Ameríku.
Mér bauðst hlutverk í The Wire
og það var sennilega best fyrir
alla að ég hafnaði því. Stelpurn-
ar mínar voru bara á viðkvæm-
um aldri og ég hefði aldrei getað
hugsað mér að vera frá
þeim í sjö mánuði eins
og tökuplanið gerði
ráð fyrir.“
Sér ekki eftir
The Wire
FJÖLSKYLDU-
MAÐUR Ray
Winstone
hafnaði
hlutverki í
The Wire
til að geta
verið með
fjölskyldu
sinni.
Glamúrfyrirsætan Katie Price
er stödd í Argentínu þar sem hún
nýtur lífsins með nýjum kærasta.
Price er þó dugleg að fylgjast
með gangi mála heima á Englandi
og gagnrýndi fyrrverandi eigin-
mann sinn, Peter Andre, fyrir að
leyfa börnum þeirra að koma fram
í sjónvarpsþætti hans. Price tjáði
óánægju sína á Twitter-síðu sinni.
„Ég heyrði að einhver væri aftur
að nota börnin mín í sjónvarps-
þættinum sínum. Ætli þessi þátt-
ur væri jafn vinsæll ef ekki væri
fyrir börnin? Ég velti því einn-
ig fyrir mér hvort þau fái borgað
fyrir þátttöku sína í sjónvarpsþætt-
inum?“ skrifaði Price á síðu sína.
Reið út í Andre
ÓSÁTT Katie Price er enn og aftur ósátt
við fyrrverandi eiginmann sinn, Peter
Andre. NORDICPHOTOS/GETTY