Fréttablaðið - 30.04.2011, Page 69

Fréttablaðið - 30.04.2011, Page 69
Hver sagði að það væri sjálfsagt? Við höldum að allir sem það vilja geti klárað framhalds- skóla. En krakkarnir sem koma til Hjálparstarfs kirkjunnar vita að það er ekki sjálfsagt. Unglingar sem búa við þröngan fjárhag foreldra þekkja því miður annan raunveruleika. Þau sjá fram á, að ef ekkert breytist, þá geti þau gleymt öllu námi. Þau sjá hvað getur verið stutt í sömu stöðu og foreldrar þeirra eru í, oft í láglaunastarfi vegna lítillar menntunar eða óvinnufærir vegna sjúkdóma, slysa eða óreglu. Hjálparstarf kirkjunnar komst að þessu í gegnum viðtöl við þessa sömu foreldra. Í kjölfarið var Framtíðarsjóðurinn stofnaður. Enginn í alveg sömu sporum Hún vissi um Framtíðarsjóðinn, stúlkan sem kláraði menntaskólann sinn á skemmri tíma til að komast sem fyrst að heiman úr erfiðum aðstæðum. Hún fékk stuðning fyrir sumarönn við Fjölbraut í Breiðholti. Duglega sveitastelpan sem þurfti að sækja skólann sinn langt að, hafði líka frétt af sjóðnum. Hún gat látið drauminn um menntun rætast þegar hún fékk greiddan heimavistarkostnað frá Hjálparstarfinu og inneignarkort í matvöruverslun til að brúa bilið fram að sumarvinnunni. Strákurinn sem horfði á einstæða móður sína vinna myrkra á milli fyrir þremur börnum, ætlaði að hætta í skóla og fara að vinna. Góður kennari kom honum til okkar og saman fundum við lausn sem dugði. Við gátum bent á félagslegar bætur sem móðir hans vissi ekki um og breyttu öllu. Hann fékk stuðning til bókakaupa og fyrir skólagjöldum. Hann hélt áfram í átt til betri framtíðar. Annar var með stöðugan höfuðverk og þreyttist fljótt á lestri. Hann fékk gleraugun sem hann hafði ekki haft efni á. Lausnirnar eru oft ekki flóknar, en samt utan seilingar. Virkjum hæfileikana og viljann Aðstæðurnar eru ólíkar og lausnir Hjálparstarfsins því mjög einstaklingsbundnar. En allar miða þær að því að hjálpa ungu fólki að ljúka námi sem gefur því starfsréttindi eða aðgang að lánshæfu námi. Þannig virkjum við hæfileika og vilja ungs fólks til að vera fullnýtir samfélagsþegnar sem skapa sér eigin framtíð. Þú getur styrkt þennan þátt í starfi okkar til dæmis með gjafabréfi í Framtíðarsjóðinn á www.gjofsemgefur.is. Þú getur stutt innanlandsaðstoð okkar með því að greiða valkröfuna í heimabankanum þínum. Hún bíður þín fagnandi! Hjálparstarf kirkjunnar veitir ungmennum um allt land stuðning til að ljúka framhaldsnámi til starfsréttinda eða lánshæfs náms. Það er ein leið til að rjúfa vítahring lítillar menntunar, lágra launa og fátæktar. (Mynd: Þorkell Þorkelsson) Margt smátt ... – 11
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.