Fréttablaðið


Fréttablaðið - 12.05.2011, Qupperneq 10

Fréttablaðið - 12.05.2011, Qupperneq 10
12. maí 2011 FIMMTUDAGUR10 LÖGREGLUMÁL Lögreglan á höfuð- borgarsvæðinu hefur sent Útlend- ingastofnun erindi þess efnis að tveir þjófar af erlendu bergi brotnir verði sendir úr landi. Þetta segir Hörður Jóhannesson aðstoðarlögreglustjóri. Mennirnir sem um ræðir komu hingað til lands 1. maí síðastlið- inn. Strax daginn eftir stálu þeir snyrtivörum úr verslun að verð- mæti 37 þúsund krónur. Tveim dögum síðar tók lögregla þá þar sem þeir voru að stela vörum úr annarri verslun. Fannst varning- urinn á þeim eftir að þeir höfðu verið færðir á lögreglustöð. Við yfirheyrslur kom fram að mennirnir væru báðir peninga- lausir og dveldu saman í pínulitlu herbergi í Reykjavík. Hefðu þeir enga atvinnu og enga fjármuni til að framfleyta sér hér á landi. Mennirnir kváðust engin tengsl hafa við landið utan þau að annar þeirra sagðist eiga hér bróður. Lögreglan lagði fram kröfu um gæsluvarðhald yfir mönn- unum þegar þeir voru staðnir að síðari þjófnaðinum. Henni hafn- aði Héraðsdómur Reykjavíkur og Hæstiréttur staðfesti síðan þann úrskurð. - jss Þúsund krónur er andvirði snyrtivara sem mennirnir stálu úr verslun daginn eftir að þeir komu til landsins. 37 Nýr kjarasamningur á almennum vinnumarkaði – Póstatkvæðagreiðsla er hafin Hafin er sameiginleg póstatkvæðagreiðsla um nýjan kjarasamning Eflingar-stéttarfélags, Verkalýðs- félagsins Hlífar og Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis við Samtök atvinnulífsins fyrir störf á almennum vinnumarkaði. Atkvæðisrétt eiga allir félagsmenn í ofangreindum félögum sem vinna eftir þessum samningi og greiddu félagsgjöld til einhvers þessara félaga í mars/apríl 2011. Kjörgögn og kynningarefni hefur verið sent út samkvæmt kjörskrá. Fái einhver sem telur sig eiga atkvæðisrétt ekki send kjörgögn, getur viðkomandi snúið sér til skrifstofu síns stéttarfélags, og fengið sig færðan á kjörskrá og greitt atkvæði, enda leggi viðkom- andi fram launaseðil sem sanni afdregin félagsgjöld í mars/apríl 2011. Tekið er við kjörskrárkærum samkvæmt framansögðu til kl. 15.00 þriðjudaginn 24. maí en þá lýkur atkvæðagreiðslu um samninginn. Athugið. Til þess að tryggt sé að atkvæðið berist kjörstjórn fyrir lok tímafrests þá er nauðsynlegt að póstleggja svarumslagið í síðasta lagi föstudaginn 20. maí. En þeir sem það vilja geta skilað svarumslaginu á skrifstofu félaganna til kl. 15.00 þriðjudaginn 24. maí. Reykjavík, 10. maí 2011. Kjörstjórn Flóabandalagsins Efling-stéttarfélag Verkalýðsfélagið Hlíf Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur og nágrennis AF VIVAG Í MAÍ20% AFSLÁTTUR PAKISTAN Bandaríska sérsveitin, sem réð Osama bin Laden af dögum í Abottabad í byrjun mán- aðarins, átti allt eins von á því að lenda í átökum við pakistanska herinn, enda var hún í heimildar- leysi að stunda hernað á pakist- önsku landsvæði. Þessu er haldið fram í bandaríska dagblaðinu New York Times. Þar segir að á síðustu stundu hafi verið ákveðið að fjölga verulega í sérsveitinni svo hægt yrði að bregðast við árásum frá pakistönskum hermönnum. Breska dagblaðið The Guardian heldur því síðan fram að banda- rísk stjórnvöld hafi fyrir nærri áratug fengið leyfi til þess frá pak- istönskum stjórnvöldum að senda hermenn gegn bin Laden og tveim- ur öðrum yfirmönnum Al Kaída, ef þeir fyndust á pakistönsku land- svæði. Pervez Musharraf, þáver- andi forseti Pakistans, segir ekkert hæft í þessum fréttum í Guardian. Tengsl Bandaríkjanna og Pak- istans hafa versnað eftir árásina á bin Laden. Pakistanar neita því að þarlendir áhrifamenn hafi vitað um felustað bin Ladens og fordæma jafnframt árásir Bandaríkjanna. Bandaríkjamenn hafa engu að síður gert fleiri árásir á Pakistan síðan, síðast í gær þegar þrír menn létu lífið af völdum sprengjuárásar frá ómannaðri bandarískri flaug í norðvesturhluta landsins. - gb Bandaríska sérsveitin stækkuð á síðustu stundu fyrir árásina á bin Laden: Bjó sig undir átök við herinn PAKISTANSKA ÞINGIÐ Gilani forsætis- ráðherra hafnar ásökunum um vanhæfi leyniþjónustunnar. NORDICPHOTOS/AFP SKOTVEIÐI „Það er algjör firra að hér verði seld þúsund hreindýra- veiðileyfi á uppsprengdu verði,“ segir Elvar Árni Lund, formaður Skotvís, um fullyrðingar tveggja háskólamanna á Akureyri um að hægt verði að fá mun meiri tekjur af hreindýrum með því að selja leyfin hæstbjóðanda í stað þess að úthluta þeim á föstu verði. Elvar segir Skotveiðifélag Íslands – Skotvís hafa átt stóran þátt í því að sala á hreindýraveiði- leyfum var opnuð fyrir almenn- ingi á sínum tíma. „Fram að því höfðu aðeins fáir útvaldir leyfi til að veiða hreindýr á Íslandi,“ segir Elvar og bendir á að hrein- dýrin séu í eigu þjóðarinnar. Um þau gildi það sama og um fugla að enginn landeigandi eða annar geti gert sérstakt tilkall til þeirra. Elvar kveðst telja að hreindýra- veiðar á hóflegu verði séu forrétt- indi sem almenningur eigi að fá að njóta. Erlendir veiðimenn standi jafnfætis Íslendingum varðandi möguleika á að sækja um veiði- leyfi. „Mörgum þykir þegar nóg um og má benda á að víða erlend- is eru erlendir veiðimenn krafðir um hærra verð fyrir veiðileyfi en heimamenn,“ segir hann. Þá segir Elvar Íslendinga geta án mikillar fyrirhafnar gert sér mun meiri mat úr hreindýrastofn- inum en nú sé gert. „Sú hugmynd byggist á því að fjölga hreindýr- um um norðanvert landið og jafn- vel vestur á firði,“ segir formaður Skotvís. Hann bendir á að fjölgi hreindýrum þannig að núverandi eftirspurn sé mætt megi sjá fyrir sér að ferðaþjónustunni verði úthlutað veiðileyfum. Þau verði jafnvel hægt að bjóða ár fram í tímann og þá á hærra verði en almenningur væri krafinn um enda væri þeim leyfum úthlutað mun seinna. „Þangað til á verð- ið alls ekki að hækka enda eiga hreindýraveiðar að vera búsetu- tengd forréttindi sem allir íslensk- ir veiðimenn eiga að hafa tök á að stunda.“ Skotveiðimaðurinn Magnús Ársælsson segir hreindýraveið- ina vera munað sem hann og félagar hans leyfi sér af takmörk- uðum efnum. „Háskólamenntaðir á Akureyri segja að almúginn eigi ekkert að rembast þetta því þeir geti selt leyfin til útlend- inga á þotum og til bankastjóra, stjórnarformanna og útrásarvík- inga. Það á ekki að gera hreindýra- veiðar að útlendingasnobbi, þær eiga að vera fyrir hinn almenna Íslending,“ segir Magnús. gar@frettabladid.is Nær að fjölga hreindýrum en hækka veiðileyfin Formaður Skotvís segir að ef menn vilji meiri arð af hreindýrum eigi frekar að koma upp fleiri hjörðum en selja veiðileyfin hæstbjóðanda. Veiðarnar eigi að vera forréttindi almennings en ekki útvalinna. ELVAR ÁRNI LUND Mörgum þykir þegar nóg um greiðan aðgang útlendinga að hrein- dýraveiðum á Íslandi, segir formaður Skotveiðifélags Íslands. FRÉTTABLAÐIÐ Í GÆR OG Á LAUGARDAG unum. Vís æri sundur- kki verið vegna. d Ekki er hæg t að kæ Hæstaréttar . Næsta skre f er því aðal með ferð, sem áf ormað er að fari fram í h aust. - bj haust. thöfn haldin í Fossvogi um s igurinn í Föðu rlandsstríðinu mikla: t jaldarloka nsku) ) ATVINNUMÁ L Tekjur af h reindýrum á Austurland i eru veruleg a minni en þær gætu verið vegna þess að veiðileyfin er seld á un dirverði. Þetta segja kennarar vi ð Háskól- ann á Akure yri. Niðurstaða Jóns Þor valds Heiðars sona r lektors og Stefáns Sigurðssona r aðjúnkts v arðandi tekjur af hr eindýraveið um komu fram í erin di þeirra u m efna- hagsleg áhri f skotveiða á Íslandi. „Spyrja má hvort skotv eiðar og veiðiferðame nnska geti ha ft meira efnahagsleg t vægi en nú er. Þetta er einkar ál eitin spurni ng varð- andi hreind ýraveiðarna r,“ sögðu Jón og Stefá n, sem kveð a veiðar á hreindýru m á Íslandi ekki skil- virkar. „Óskilvirkn i veiðanna á hrein- dýrunum fe lst ekki í ofv eiði eins og oft vill b renna við v arðandi veiðar. Óski lvirknin fels t í því að veiðileyfin e ru seld á un dirverði. Ekki er reyn t að selja ve iði leyfin á hæsta mö gulega verð i,“ segja fræðimenn irnir og út skýra að vegna þess v erði tekjur a f veiðinni verulega mi nni en ella o g minna fjárflæði k omi til Aus turlands en ef nýting in væri skilv irk. Þeir áætla að 26 s törf séu á Au sturlandi vegna hreind ýraveiðanna . „Störf vegn a hreindýra veiða á Austurlandi eru því fæ rri nú en þau væru ef auðlindin væ ri nýtt á eðlilegan há tt. Eðlilegas t væri að veiðileyfin y rðu boðin h æstbjóð- anda,“ segja Jón og Stefán sem telja núverandi fy rirkomulag „ fæla burt erlenda veiði menn sem er u tilbúnir til að eyða m iklum fjárm unum á veiðiferðum. “ Jón og Stefá n segja að e f veiði- leyfi væru se ld hæstbjóða nda væri auðvelt fyrir þá veiðimenn að leggja fram það hát t tilboð að ör uggt yrði að þeir gætu veitt næsta tímabil. „Nú er því e kki til að dr eifa held- ur ræður til viljun því hv ort þess- ir dýrmætus tu veiðimenn fá leyfi eða ekki. Fy rirkomulagið er einn- ig til þess fa llið að þeir n enni ekki að eyða fyrir höfn í slíkt ha ppdrætti heldur veiði annars staða r í heim- inum. Má þv í færa rök fy rir því að Ísland verði af vissum gj aldeyris- tekjum vegn a óskilvirkra r nýting- ar á auðlindi nni hreindýr .“ Í erindinu k om fram að á árinu 2009 greiddu hreindýrave iðimenn samtals 97 milljónir kr óna fyrir leyfi til að fe lla samtals 1 .333 dýr. Þar af fóru 82 milljónir til land- eigenda og U mhverfisstof nunar og Náttúrvernd arstofa Aus turlands fékk afgangi nn. Hver og e inn veiði- maður er tal inn hafa eyt t að með- altali tæpum 40 þúsund k rónum á Austurlandi. Á þessu ári er hreindýr aveiði- kvótinn 1.00 1 dýr. Fjórf alt fleiri skotveiðimen n sóttu um ve iðileyfin. Þau kosta á b ilinu 50 til 13 5 þúsund eftir því hvo rt um er að ræða kýr eða tarf og e ftir veiðisvæ ðum. gar@frettab ladid.is Hreindýrale yfi verði seld hæstbjó ðendum Fræðimenn við Háskólan n á Akureyri segja að eðli legt væri að selja veiðiley fi á hreindýr til h æstbjóðenda en ekki úthl uta þeim á u ndirverði me ð happdrætt is- fyrirkomulag i. Það fæli bu rt dýrmæta v eiðimenn frá útlöndum o g minnki tek jur. HREINDÝR Hæ gt væri að ná meiri tekjum af hreindýrav eiðum með þ ví að hætta a ð selja veiðileyf in á undirverð i, að mati fræ ðimanna við Háskólann á A kureyri. FRÉTTABLAÐI Ð/VILHELM a staðfest að rinum fjögurra fengu dróma-höfðu öll verið fninu Pandem-ð s ínaflensu. Partinen, usetningin ar. Rann-Þess má ð hér bættið setja ur þó til. nor- endis. rið nleys- á síðu 32 nninum, enda eglulega að kveikja á kveikjara kuli grípa til ráða í örvæntingu sinni. „Mest um vert er að okkur tókst með þeim viðbúnaði sem hér var að koma manninum til hjálpar án þess að hann skaðaði sjálfan sig eða aðra.“ - sh MIKILL VIÐmanninn elögregla til UMHVERFISMÁL Hugmyndir um að flytja hreindýr til Vestfjarða til að styrkja atvinnulífið mæta harðri mótspyrnu sauðfjárræktenda og sérfræðings hjá Matvælastofnun. „Vitað er að hreindýr geta tekið ýmsa sauðfjársjúkdóma, má þar nefna garnaveiki, en einnig er líklegt að að hreindýr geti borið riðu ásamt ýmsum öðrum smit- sjúkdómum. Með tilliti til þess hve rásgjörn og víðförul hreindýr eru ásamt því að girðingar, þar með taldar sauðfjárveikivarn- arlínur, halda þeim ekki er ljóst að hætta er á að óbætanlegt tjón gæti hlotist af flutningi þessara dýra á Vestfirði,“ segir í umsögn sauðfjár veiki varnarnefndar Stranda byggðar til sveitarstjórna á Vestfjörðum.Í umsögn Þorsteins Ólafs sonar, sérgreinalæknis hjá Matvæ - stofnun, er minnt á að heilbrigð- asti sauðfjárstofn landsins sé á austan verðum Vestfjörðum. „Það eru því ekki aðeins hagsmunir bænda á því svæði í húfi að ekki berist þangað óæskilegir sjúkdóm- ar, það skiptir alla sauðfjárrækt á Íslandi gríðarlega miklu máli,“ segir Þorsteinn.Þá er nefnd slysahætta og eyði- legging vegna ágangs hreindýra. Þorsteinn segir hreindýr ekki virða venjulegar girðingar. „Það er líklegt að þau myndu leita suður í Dali, alla vega á vissum árstímum, og jafnvel niður í Borgarfjörð,“ segir Þorsteinn, sem kveður slíkt flakk myndu ganga „gjörsamlega gegn öllum hagsmunum“ vegna varnarlína við sauðfjárveiki. Búnaðarsamband Vestfjarða hefur einnig lýst andstöðu við flutning hreindýra inn á svæðið. Sigmar B. Hauksson, fyrrverandi formaður Skotvís, segir andstöð- una byggða á misskilningi.„Íslenski hreindýrastof inn er einn sá heilbrigðasti í heimi. Það hefur aldrei fundist hreindýr sýkt af riðu eða garnaveiki svo sannað sé á Íslandi. Hreindýr eru í nánu samband við sauðfé á Austurlandi og ekki er það vandamál,“ segir Sigmar. Þá bendir Sigmar á að ferðamála- og umhverfisnefnd Reykhólahrepps ætli að láta kanna hvort hreindýr geti lifað á Vestfjörð-um. Atvinnu- og ferðamálanefnd Vesturbyggðar skoði einnig málið. „Fram-sýnir menn fyrir vestan vilja einfaldlega rannsaka hvort þetta sé gerlegt. Vægi sauð- fjárræktar hefur minnkað mjög mikið á Vestfjörðum og þar vant- ar sárlega atvinnutækifæri. Hjörð hreindýra gæti lengt ferðaþjón- ustutímabilið um tvo mánuði og það skilað minnst 500 milljóna króna tekjum. Menn eiga að skoða málin til hlítar áður en ákvörðun er tekin,“ segir Sigmar B. Hauks- son. gar@frettabladid.is Lagst gegn flutningi hreindýra á Vestfirði Sauðfjárræktendur eru andsnúnir hugmyndum um flutning hreindýra til Vest- fjarða af ótta við sjúkdóma sem borist geti í heilbrigðasta stofn íslensks sauð- fjár. Misskilningur segir Sigmar B. Hauksson. Miklar tekjur séu í húfi. SIGMAR B. HAUKSSONEinn helsti hvatamaður að flutningi hrein-dýrahjarðar til Vestfjarða er Sigmar B. Hauksson, fyrrverandi formaður Skotvís. „Þetta er ein-faldlega kalt mat,“ segir Sigmar um það hvernig nálgast eigi ákvörðun í málinu. MYND/ÚR EINKASAFNI HREINDÝR Hugmyndir um að hreindýr verði flutt til Vestfjarða mæta andstöðu meðal sauðfjárræktenda og sérfræðings hjá Matvælastofnun. L t ú h Lí át kr F rei stjó loft Í g í Líb sínar henn stóli. stofna færi m hefur stjórna KU PARTINEN drómasýki: fengið óluefni Góðar undirtektir við söfnun Hjálparst f6 5 i JAPAN, AP Japanað hætta vinnslkjarnaofnum kjí Hamaoka vegnþess og hættu á flóðum. „Ef slys verðurgetur það haft alvingar,“ sagði Naotisráðherra JapansHamaoka Brugðist við Kjarno lokað í er- i d. ð hald: JAPANSKIR RÁsætisráðherra ráðherra hneig Peningalausir í pínulitlu herbergi í Reykjavík: Lögreglan vill tvo þjófa senda úr landi MÁTAR SÝNDARKÓRÓNU Í skartgripa- versluninni Garrard í London er nú boðið upp á nýja þjónustu. Með sýnd- arveruleikabúnaði geta viðskiptavinir mátað í spegli hin fegurstu höfuðdjásn án þess að snerta þau. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY LÖGREGLUMÁL Lögreglan á Eski- firði, í samvinnu við lögregluna í umdæmi lögreglustjórans á Seyð- isfirði, lagði hald á um 25 grömm af amfetamíni um nýliðna helgi. Við eftirlit lögreglu vaknaði grunur um að maður sem áður hefur komið við sögu lögreglu hefði fíkniefni undir höndum. Í samvinnu við lögreglu á Egils- stöðum var maðurinn handtekinn og í framhaldinu var lagt hald á um 25 grömm af amfetamíni. Talið er að efnið hafi verið ætlað til dreifingar á Austurlandi. - jss Amfetamín á Austurlandi: Lögreglan tók fíkniefnasala Sektað vegna nagladekkja Lögreglan sektar nú ökumenn sem aka á nagladekkjum. Sektin er fimm þúsund krónur á hvert dekk. Lög- reglan vill brýna fyrir ökumönnum að skipta sem snarast yfir á sumar- dekkin. LÖGREGLUFRÉTTIR DÓMSMÁL Lögreglustjórinn á Akureyri hefur ákært karlmann á fertugsaldri fyrir fjárdrátt að upphæð rúmlega átta milljónir. Manninum er gefið að sök að hafa stundað fjárdráttinn á árunum 2009 og 2010, þegar hann vann hjá Bílum og þjónustu ehf. í Reykjavík og stjórnaði starfsemi félagsins á Akureyri. Auk kröfu ákæruvaldsins um refsidóm gerir fyrirtækið bótakröfu á hendur honum sem nemur fjárhæðinni sem hann dró sér, ásamt vöxtum. - jss Ákærður fyrir fjárdrátt: Dró sér átta milljónir króna
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.