Fréttablaðið - 12.05.2011, Qupperneq 36
12. MAÍ 2011 FIMMTUDAGUR4 ● pizza
Hann fæddist nánast í
eldofni einnar svölustu
pizzugerðarsmiðju bæjarins,
Eldsmiðjunnar á Bragagötu,
og nú rekur hann eina ásamt
foreldrum sínum, Eldofninn í
Grímsbæ.
„Mamma og pabbi, Eva Karls dóttir
og Ellert A. Ingimundarson, voru
meðal fyrstu starfsmanna Eld-
smiðjunnar og það má segja að þar
hafi ég alist upp með annan fót-
inn. Nú rekum við öll Eldofninn
í nafla Reykjavíkur, Grímsbæ,“
segir Evert Ellertsson og stend-
ur staðfastur á þessum nýja nafla.
„Hugmyndin að baki Eldofnin-
um er afar einföld, hún snýst um
að gleðja bragðlauka annarra með
því að búa til bestu eldbökuðu pizz-
urnar sem fólk hefur smakkað. Við
búum allt til sjálf, deigið, sósurn-
ar og olíurnar okkar tvær sem við
erum afskaplega stolt af. Hér getur
fólk slappað af á veitingastaðnum
og borðað bökurnar með bjór eða
léttu víni eins og rauðvíni eða hvít-
víni eða tekið þær með sér.
Í veitingasalnum getur fólk
fylgst með bakstri og bökun og
þaðan kemur rómantískur ljómi frá
eldofninu sem yljar líka fólki. „Þá
er eldhúsið opið, svo það er einn-
ig hægt að sjá starfsfólkið vinna
þar. Þetta skapar mjög skemmti-
lega stemningu, það er líf og fjör á
staðnum og mikil samskipti á milli
viðskiptavina og starfsfólks. Þetta
er svona ítölsk-íslensk stemning og
sérstök fyrir staðinn. Eldofninn á
núna tveggja ára afmæli og auð-
vitað munum við halda upp á það
svo eftir verður tekið, enda erum
við einstaklega ánægð og þakklát
fyrir viðtökurnar.“
Eldofninn sinnir bæði menning-
arvitum og fótboltaáhugamönnum.
Á veitingastaðnum eru reglulega
myndlistarsýningar og á skjánum
er boltinn í beinni. „Hvort tveggja
hefur slegið alveg í gegn,“ segir
Evert brosandi. En hvað skyldi
honum nú finnast skemmtilegast
í pizzageiranum? „Æ, ég veit að
þetta hljómar væmið en mér finnst
það vera viðskiptavinirnir og sam-
skiptin við þá. Þau geta verið svo
skemmtileg. Það er fátt sem gleð-
ur jafnmikið og ánægður viðskipta-
vinur.“
Gleður bragðlaukana
Evert segir hugmyndina að baki Eldofninum einfalda: „Hún snýst um að gleðja bragðlauka með því að búa til bestu eldbökuðu
pizzurnar sem fólk hefur smakkað.”
Í ýmsu má slá heimsmet. Pitsur
eru þar ekki undanskildar. Í
heimsmetabók Guinness er að
finna heimsmet sem sett hafa
verið í pitsugerð.
● Dýrasta pitsan sem almenn-
ingur getur fest kaup á er þunn-
botna, eldbökuð pitsa sem fæst
öðru hvoru á veitingastaðn-
um Maze í London en eng-
inn annar en kokkur-
inn Gordon Ramsey er
eigandi staðarins. Pits-
an kostar lítil 100 pund
eða 18.500 krónur. Ástæð-
an er dýrindis álegg á
borð við laukmauk,
trufflumauk,
fontina ost, baby
mozzarellaost,
nýsprottið miz-
una-kál. Ofan
á allt þetta
er rifin hvít
truffla sem
er eitt dýr-
asta hráefni
heims.
● Sá maður
sem búið
hefur til
stærsta pitsa-
botninn á
tveimur mín-
útum er Tony
Gemignani. Hann hnoðaði 500 g
af deigi og bjó til pitsabotn sem
mældist 84,33 cm í þvermál.
Metið sló hann í verslunarmið-
stöðinni Mall of America í apríl
2006. Tilefnið var sjónvarpsþátt-
ur sem Food Network sjónvarps-
töðin stóð fyrir í tilefni af viku
Guinness-heimsmeta.
● Hæsta pitsabotnskastið
á Joe Carlucci. Hann kast-
aði 567 gramma pitsu-
botni 6,52 metra upp í
loftið í apríl 2006.
● Paul Fenech og fé-
lagar hans í CanTeen Cha-
rity og STA Travel eiga
metið fyrir lengstu
heimsend-
inguna. Þeir
skutluðust
með pitsu frá
veitinga-
staðun-
um Opera
Pizza í
Madrid
á Spáni
til Niko
Apost-
olakis í Well-
ington á Nýja-Sjá-
landi. Leiðin var
19.870 km. Hún hófst
28. júní 2006 og lauk
1. júlí.
● Sá staður sem sent hefur með
flestar pitsur á einn stað er Papa
John‘s. Hann afhenti 13.500 pits-
ur í NASSCO skipasmíðastöðinni
í San Diego í Kaliforníu 8. júní
2006.
● Lengsta pitsa í heimi mæld-
ist 1.010,28 metrar. Hún var búin
til af teymi kokka í Póllandi 29.
ágúst 2010.
● Starfsfólk
Domino‘s í
Taft í Kali-
forníu á metið
yfir flestar pitsur
sem búnar hafa verið til á
sólarhring. Það bjó til 6.838 pits-
ur 22. til 23. október 2010.
● Brian Edler hjá Domino‘s pizza
í Ohio í Bandaríkjunum á metið í
flestum pitsum sem búnar hafa
verið til á klukkutíma. Brian bak-
aði 26 pitsur hinn 9. desemer
2010.
Lengsta, stærsta og dýrasta
Pítsabotni hefur hæst verið kastað 6,52 metra upp í loftið.