Fréttablaðið - 12.05.2011, Qupperneq 38
12. MAÍ 2011 FIMMTUDAGUR6 ● pizza
Pitsa er að því leytinu svo
skemmtilegt fyrirbæri að það
er endalaust hægt að leika sér
með áleggið ofan á og gera
tilraunir. Það þarf ekki síður að
eiga við um pitsubotninn.
● Mjög grófur botn. Margir vilja
aldrei neitt annað en hvítan hveiti-
botn undir pitsuáleggið sitt en það
er áskorun sem kemur mörgum á
óvart að prófa mun grófari mjöl-
og korntegundir í heimagerðu
pitsuna. Ekki er nauðsynlegt að
finna til nýjar uppskriftir held-
ur má nota hefðbundnu heimilis-
uppskriftina en hveitimagninu
er þá einfaldlega hægt að skipta
út fyrir grófara mjöl, svo sem
heilhveiti, spelt, bókhveiti, hrís-
grjónamjöli, maísmjöli, möndlu-
mjöli og svo framvegis.
Ofan á grófa pitsubotna getur
komið vel út að sleppa rauðri sósu
og skvetta í stað þess ólífuolíu og
sjávarsalti yfir botninn og svo
áleggi þar ofan á. Laukur, grænn
aspas og svartar ólífur passa sér-
staklega vel saman.
● Áleggið tekur meira pláss en
botninn. Marga rétti, sem ekki
endilega er ætlað að sitja ofan á
pitsabotni, getur verið gaman að
máta ofan á pitsadeig. Má þar
nefna ýmsa sjávarréttadiska sem
samanstanda af ýmis konar góð-
gæti og grænmeti. Í staðinn fyrir
að bera þá fram á hvítum diski er
sniðugt að baka einfaldan pitsu-
botn, skreyta hann jafnvel með
sesamfræjum og stilla svo matn-
um ofan á. Rækjur, túnfiskur,
humar og smá kavíar er samsetn-
ing sem kæmi vel út á pitsubotni.
● Beyglur fyrir hraðframleiðslu.
Beyglur eru vinsælar hérlend-
is en þá einkum í brauðristina og
smurðar með smjöri og osti. Þær
geta hins vegar komið mjög vel út
í smá hraðframleiðslu á pitsum.
Þá er pitsusósu einfaldlega skellt
á þær, osti og jafnvel smá kjötá-
leggi. Beyglan þarf ekki að vera
nema nokkrar mínútur inni í ofni,
eða þar til osturinn er bráðinn.
● Ristaður pitsubotn. Öðruvísi
nálgun á pitsubotninn er að baka
hann án áleggs og rista síðan í
sneiðum í brauðristinni sem gefur
honum stökka áferð. Hver og einn
raðar þá áleggi ofan á sína sneið.
Gott getur verið að sleppa þá pitsu-
sósu en leyfa ostum, olíu og græn-
meti að leika stórt hlutverk.
Nokkur tilbrigði við
pitsabotn og álegg
Girnilegur ristaður pitsubotn.
Pitsubeygla er einföld og fljótleg í fram-
leiðslu.
Það getur verið skemmtilegur leikur að láta áleggið taka meira pláss en pitsubotninn
sjálfan.
Falleg litasamsetning áleggs ofan á
grófari gerð pitsubotns; aspas, svartar
ólífur og laukur.
● PITSA MEÐ NÝGIFTUM HERTOGAHJÓNUM Brúðkaup Vil-
hjálms Bretaprins og Kate Middleton varð mörgum að innblæstri, eins
og bresku pitsakeðjunni Papa John‘s sem stóðst ekki mátið og bjó til sína
eigin konunglegu pitsu með mósaíkmynd af brúðhjónunum úr deigi,
osti og áleggi með hjálp snjalls matarlistamanns. Þannig er slör Kate gert
úr sveppum, kjóllinn úr osti og klæði Vilhjálms úr salamipylsu og paprik-
um. Allt úr fyrsta flokks hráefni og að sögn Papa John‘s hin ljúffengasta
máltíð. Sannarlega vel gert og svipmikið.
● MEIRI OST Á PITSUNA, takk! Aukaostur er vinsæl beiðni pitsu-
unnenda og þriðja vinsælasta pitsuálegg heims. Mozzarella er hinn eini
sanni pitsuostur, en æ fleiri pitsugerðarmenn eru farnir að spreyta sig á
fleiri ostategundum ofan á pitsur, enda allt undursamlega ljúffengt. Vin-
sælir ostar í bland við mozzarella eru provolone, ricotta, romano, gor-
gonzola og parmesan.