Fréttablaðið - 12.05.2011, Síða 39
FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 2011
Wilson‘s pizza fagnar sex ára
afmæli um þessar mundir og
býður af því tilefni fimm ára
gamalt verð á öllum sóttum
pizzum til 22. maí.
„Við verðum sex ára núna föstu-
daginn 13. maí,“ segir Vilhelm
Einarsson, framkvæmdastjóri
Wilson‘s pizza, „og af því tilefni
ákváðum við að bakka aftur um
fimm ár og bjóða fimm ára gam-
alt verð á öllum pizzum hjá okkur.
Við vorum svo hlægilega ódýrir
þegar við byrjuðum að við gátum
ekki farið alveg svo lágt. En þetta
er mjög gott verð: 16 tommu pizza,
brauðstangir og gos á 1.850 krón-
ur, það gerist nú ekki betra.“
Wilson‘s pizza er á þremur stöð-
um í borginni; í Gnoðarvogi, Ána-
naustum og Eddufelli og gild-
ir tilboðið að sjálfsögðu á öllum
stöðunum ef sótt er. Tilboðið gild-
ir ekki í heimsendingu, en ýmis
önnur tilboð er hægt að fá send
heim og bætast þá 1.000 krónur
ofan á tilboðsverðið.
Wilson‘s pizza hefur skapað
sér þá sérstöðu að vera eini pizza-
staðurinn á höfuðborgarsvæðinu
sem býður upp á tvær gerðir af
pepperóní og Vilhelm segir ástæð-
una vera akureyrskan uppruna
eigendanna. „Okkar sérstaða er að
bjóða upp á mjótt pepperóní sem
er okkar tenging við Akureyri, þar
sem eigendurnir eru þaðan. Þetta
er það akureyrska pepperóní sem
fólk þekkir og það fer svona álíka
mikið af því og hinu hefðbundna
pepperóní sem við erum að sjálf-
sögðu með líka.“
Fleiri nýjungar eru á döfinni
á afmælinu, ný vefsíða er í smíð-
um og verður tekin í gagnið í
sumar. Vilhelm segir hana verða
mjög fullkomna og mun auðveld-
ara muni verða að skoða það sem
í boði er og panta það sem hugur-
inn girnist. Hann segir viðskiptin
blómgast sem aldrei fyrr og þótt
undarlegt megi kannski virðast
hafi þau aukist eftir hrun. „Við
erum búnir að vera í stöðugri
aukningu eftir hrun,“ segir hann.
„Og við erum ennþá í aukningu svo
við hljótum að vera að gera eitt-
hvað rétt. Reyndar er það nú bara
þannig að fólk leitar bara eftir
þrennu þegar það velur sér vörur;
gæðum, góðu verði og góðri þjón-
ustu, og allt þetta bjóðum við í Wil-
son‘s pizza upp á í ríkum mæli.“
En hefur Wilson‘s pizza ein-
hvern áhuga á að færa út kvíarn-
ar með yfirtöku Domino‘s? „Nei,
við höfum engan áhuga á útbrunn-
inni bandarískri pizzakeðju, vilj-
um frekar byggja upp alvöru ís-
lenskt fyrirtæki,“ segir Vilhelm.
Fimm ára gamalt verð á
öllum pizzum hjá Wilson‘s
Vilhelm Einarsson, framkvæmdastjóri Wilson’s pizza, og Grétar Már Oddsson fjármálastjóri hafa engan áhuga á amerískum
pizzakeðjum, heldur vilja frekar byggja upp alvöru íslenskt fyrirtæki.
Wilson‘s pizza er komin í samstarf við Kaupás,
Nóatún og Krónuna um að þessir aðilar selji
pizzudeig, pizzusósu og útflatningarhveiti,
Durum-hveiti, frá Wilson‘s pizza. „Þetta er sama
deig og við notum í okkar pizzur og sama sósa
líka,“ segir Vilhelm. „Við teljum þetta að sjálf-
sögðu vera bestu pizzusósu á markaðnum og það
var haft samband við okkur og við beðnir að
framleiða hana fyrir neytendamarkað, þar sem
það sem hefur verið í boði á þeim markaði er því
miður engan veginn nógu gott. Okkar sósa er gerð
úr hökkuðum tómötum, ekki tómatsósu, og er
mun ferskari en sú sósa sem fáanleg hefur verið
hingað til.“ Vilhelm segir einnig skipta miklu
máli að nota Durum-hveitið við útflatningu deigs-
ins, þar sem þannig náist hið rétta pizzubragð og
áferð. „Þetta er gult hveiti sem skiptir algjörlega
sköpum fyrir rétta pizzubragðið,“ segir hann.
Viðtökurnar hafa verið góðar að sögn Vilhelms
og hann segir jafnvel koma til álita að bæta við
fleiri vörutegundum seinna ef áhugi sé fyrir
hendi.
Ferskasta sósan á markaðnum
Allt sem þú þarft til pizzagerðar
heima; deig, sósa og Durum-hveiti
frá Wilson’s pizza.