Fréttablaðið - 07.07.2011, Side 34

Fréttablaðið - 07.07.2011, Side 34
KYNNING − AUGLÝSINGHollt & gott FIMMTUDAGUR 7. JÚLÍ 20114 BEST AÐ BORÐA ÚR ÖLLUM FÆÐUFLOKKUM Fæðuhringur sýnir sex fæðuflokka. Það eru kornvörur, grænmeti, ávextir og ber, fiskur, kjöt, egg og baunir, mjólk og mjólkurvörur og að lokum feitmeti. Undirstaða holls mataræðis er að borða fjölbreyttan mat úr öllum fæðu- flokkunum. Einnig er mikilvægt að borða margs konar mat úr hverjum flokki því hver fæðutegund hefur sína sérstöku samsetningu næringarefna. Á myndinni hér að ofan er sælgæti í fæðuhringnum. Það á þó alls ekki að vera því kökur, kex, ís, sykraðir gosdrykkir eða djús er ekki nauðsynlegt til vaxtar og viðhalds líkamans. Þessar afurðir eru flestar feitar eða sætar og sumar hvort tveggja. Í þeim er iðulega mikil orka en lítið eða ekkert af nauðsynlegum næringarefnum. Sætindi skemma auk þess tennur. Rannsóknir benda einnig til þess að neysla á sykruðum drykkjum, t.d. gos- drykkjum, geti aukið líkur á offitu. Heimild: LýðheilsustöðHOLLAR FRANSKAR Franskar kartöflur tengjum við yfirleitt við fitu og djúp- steikingu. Þær geta hins vegar orðið mun hollari ef þær eru búnar til heima. Þannig má skera kartöflur (eða jafnvel rófur eða sætar kartöflur) í strimla. Setja síðan kartöflurnar í ofnskúffu eða eldfast mót og bökunarpappír neðst. Pensla kartöflurnar með olíu og krydda með maldonsalti og pipar. Baka þær við 200 gráður í 25 til 30 mínútur. BÆTIEFNI Í FISKI Fiskur er næringarrík fæða. Hann er meðal annars auðugur af joði sem er mikilvægt efni fyrir eðlilega starfsemi skjaldkirt- ils. Þá inniheldur hann töluvert af efninu selen sem ásamt E- vítamíni hindrar þránun/öldrun, svo fátt eitt sé nefnt. Í feitum fiski er líka að finna töluvert af D-vítamíni sem meðal annas stuðlar að nýtingu kalks og dregur úr líkum á beinþynn- ingu. Kalk er ekki í miklu magni í fiski nema þeim sem neytt er með beinum eins og til dæmis í sardínum. Heimild: www.wikipedia.org MANGÓ OG JARÐAR BERJASMOOTHIE Hráefni: 1 BOLLI FROSIN JARÐARBER 1 BOLLI AF SAFA ÚR MANGÓ 1/2 BOLLI HREIN JÓGÚRT 4 ÍSMOLAR Blandið jarðarberjum, mangó- safa, jógúrt og ísmolum saman í rafmagnskvörn þar til blandan er þykk og froðukennd. Tilvalið er að hella henni í tvö há glös og bera fram með rörum.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.