Fréttablaðið - 03.09.2011, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 03.09.2011, Blaðsíða 2
3. september 2011 LAUGARDAGUR2 SAMGÖNGUR Þegar Guðbjörg Hall- dórsdóttir fór í hjólreiðatúr í Fossvogsdalnum á góðviðrisdegi í júlíbyrjun átti hún ekki von á því að hún yrði meira og minna frá vinnu næstu tvo mánuðina. „Mér tókst ekki að afstýra árekstri við ungan strák sem kom hjólandi niður brekku. Hann hjól- aði á göngustíg og stytti sér leið yfir grasflöt yfir á hjólastíginn sem ég var á. Þarna, eins og víða annars staðar á hjólastígum, var beygja og tré byrgðu einnig sýn. Samferðakona mín sá strákinn á undan mér en hann sá okkur ekki. Við strákurinn skullum saman og ég datt fram fyrir mig og lenti á höfðinu. Sem betur fer var ég með hjálm en ég fékk áverka á háls og brjósthrygg,“ segir Guðbjörg sem kveðst alls ekki vera búin að ná sér eftir slysið. Strákurinn slapp ómeiddur og hjólið hans var óskemmt eftir áreksturinn, að sögn Guðbjargar. Gaffallinn á hennar hjóli brotn- aði og hjólið er í raun ónýtt, að því er hún greinir frá. „Þetta sýnir hvað getur gerst þegar hjólað er á miklum hraða. Sjálf var ég ekki á miklum hraða en ég gerði mér ekki grein fyrir hraðanum sem hann var á. Svona slys sýnir að það er margt sem þarf að laga í sambandi við sam- gönguleiðir fyrir hjólreiðamenn.“ Guðbjörg leggur áherslu á að hjólreiðamenn sýni varkárni og fari eftir umferðarreglum á hjólastígum. „Það eru engar sér- stakar reglur í gildi fyrir hjól- reiðamenn um hámarkshraða en þeir þurfa að fara eftir almenn- um umferðarreglum. Það er algjör nauðsyn til þess að koma megi í veg fyrir slys. Það er orðin mikil umferð á hjólreiða- stígunum, alveg eins og á götun- um, auk þess sem fólk er farið að hjóla mjög hratt. Hjólreiðamenn eru jafnvel á 30 til 40 km hraða.“ Elísabet Benedikz, yfirlæknir á bráðasviði Landspítalans, segir hjólreiðaslys geta verið mjög slæm. „Þetta er allur skalinn, frá minni háttar slysum upp í alvar- leg. Það þarf að sýna tillitssemi í þessu eins og öðru. Hjólreiða- menn þurfa að passa sig og passa aðra. Sem betur fer eru flest- ir með hjálm. Hjálmurinn þarf hins vegar að vera með almenni- legu skyggni fram yfir andlitið og vera rétt festur. Það skiptir miklu máli.“ ibs@frettabladid.is Svona slys sýnir að það er margt sem þarf að laga í sambandi við samgönguleiðir fyrir hjólreiða- menn. GUÐBJÖRG HALLDÓRSDÓTTIR HJÓLREIÐAMAÐUR Slasaðist illa og hjól- ið brotnaði í tvennt Harður árekstur hjólreiðamanna varð í Fossvogsdal í sumar. Annar slasaðist illa og glímir enn við afleiðingarnar. Hjólað er jafnvel á 30 til 40 km hraða. REIÐHJÓLIÐ ÓNÝTT Guðbjörg Halldórsdóttir með reiðhjólið sem hún var á þegar hún lenti í árekstri við annan hjólreiðamann. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON DÓMSMÁL Ákæra hefur verið gefin út á hendur manni sem situr í varðhaldi, grunaður um nauðgun á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. Ákæran var þing- fest fyrir Héraðsdómi Suðurlands á fimmtudag og neitaði maðurinn sök. Maðurinn er talinn hafa ráðist á stúlku við úti- kamra á Þjóðhátíð og nauðgað henni. Stúlkan flúði því næst í fang gæslumanna en maðurinn stöðvaði ekki við svo búið, heldur elti hana þangað og hafði í frammi kynferðislega tilburði, að því er gæslu- mennirnir hafa borið. Stúlkan bar strax kennsl á manninn við sakbend- ingu. Hann hefur verið margsaga í yfirheyrslum, en framburður hennar hins vegar mjög stöðugur. Maðurinn hefur áður hlotið dóm fyrir nauðgun. Hann var árið 2006 dæmdur fyrir að nauðga stúlku í trjálundi við tjaldstæði í Hrossabithaga ári fyrr. Niðurstaðan var tveggja ára fangelsi, sem Hæsti- réttur mildaði síðan í átján mánuði. Vegna þessarar forsögu hefur manninum nú verið haldið í gæsluvarðhaldi á grundvelli almanna- hagsmuna frá því um verslunarmannahelgi. Varð- haldið var í gær framlengt um einn mánuð, sem er hámarkslengd á þessu stigi málsins, og segir Hulda Elsa Björgvinsdóttir hjá embætti Ríkissaksóknara að þegar það rennur út verði enn óskað eftir fram- lengingu. Aðalmeðferð málsins hefst 3. október. - sh Búið að ákæra mann sem situr í gæsluvarðhaldi grunaður um nauðgun: Meintur nauðgari neitaði sök Á ÞJÓÐHÁTÍÐ Lögreglan á Selfossi hefur haft til rannsóknar fjögur nauðgunarmál sem upp komu á Þjóðhátíð. ALÞINGI Þórunn Sveinbjarnardóttir tilkynnti um afsögn sína á Alþingi í gær. Þórunn hefur setið í tólf ár á Alþingi og er formaður þingflokks Samfylkingarinnar. Þórunn gegndi embætti umhverfisráðherra á árunum 2007 til 2009. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins kom ákvörðun Þórunn- ar öllum í opna skjöldu og aðeins Jóhanna Sigurðardóttir, formaður flokksins, vissi af henni. Þórunn segist hafa verið að bræða ákvörðunina með sér um nokkurn tíma. „Það er nokkuð síðan ég komst að þeirri niðurstöðu fy r i r sjá l fa mig að kominn væri tími til að breyta til og gera eitthvað nýtt í lífinu. Ég hef verið svo lánsöm að vera kosin fjórum sinnum á þing og setið hér í tólf ár. Ég hef fengið að gegna trúnaðarstörfum og vinna að framgangi jafnaðar- mennskunnar. Fyrir það er ég afar þakklát.“ Þórunn segist þó ekki hætt í póli- tík og hún muni starfa áfram innan flokksins. „Ég ætlaði aldrei að gera pólitíkina að ævistarfi. Nú ætla ég að breyta til og setjast á skóla- bekk,“ segir Þórunn, en hún hygg- ur á nám í siðfræði og heimspeki. Lúðvík Geirsson er næsti maður á lista Samfylkingarinnar. Hann segist ekki búinn að gera það upp við sig hvort hann taki sæti á Alþingi, en hann heyrði fyrst af ákvörðuninni þegar Þórunn hringdi í hann í gærmorgun. Lúð- vík vinnur nú að flutningi málefna fatlaðra til sveitarfélaga. - kóp Þingflokksformaður Samfylkingarinnar hættir á þingi og sest á skólabekk: Þórunn hættir sem alþingismaður ÞÓRUNN SVEIN- BJARNARDÓTTIR Hafsteinn, voru einhver ljón á veginum? „Nei, en hins vegar voru kindur.“ Hafsteinn Gunnar Sigurðsson leikstýrir myndinni „Á annan veg“, sem var frum- sýnd í íslenskum kvikmyndahúsum á dögunum. LONDON, AP Breska lögreglan hefur handtekið einn mann til við- bótar vegna símhlerana blaðsins News of the World. Maðurinn, sem er þrítugur, var handtekinn í gær og er, líkt og aðrir sem tengjast málinu, grun- aður um samsæri um að hnýsast í talhólfsskilaboð þekktra sem óþekktra einstaklinga í leit að fréttum. Meðal þeirra voru stjórn- málamenn, kóngafólk, frægðar- fólk og fórnarlömb glæpa. Alls hefur nú á annan tug manna verið handtekinn vegna málsins. Blaðið hefur verið lagt niður vegna hneykslisins. - sh Breska símhleranahneykslið: Enn einn í haldi vegna hlerana MENNTAMÁL Starfsmenn Kvik- myndaskóla Íslands hafa boðað stjórn skólans og fulltrúa mennta- málaráðuneytisins á sáttafund næstkomandi þriðjudag til að reyna að höggva á hnútinn í deilu um framtíð skólans. Í tilkynningu segir að lítið hafi heyrst frá ráðyneytinu eftir að starfsmenn skólans hafi sent frá sér sáttatillögu á miðvikudag. Stjórn skólans hafi hins vegar lýst sig reiðubúna til að fara yfir tillögurnar. Starfsmenn skólans hafa ekki heyrt frá ráðuneytinu, en hvetja deiluaðila til að mæta til fundar á þriðjudaginn með jákvæðnina að leiðarljósi. - bj Deilt um Kvikmyndaskólann: Starfsmenn vilja sáttafund FÍLABEINSSTRÖNDIN, AP Sameinuðu þjóðirnar (SÞ) kanna nú ásakanir þess efnis að friðargæsluliðar þeirra á Fílabeinsströndinni hafi ítrekað misnotað börn og ólög- ráða ungmenni í vesturhluta landsins kynferðislega. Hamadoun Toure, talsmaður SÞ í landinu, segir ásakanirnar valda stofnuninni miklum áhyggj- um. Brot sem þessi verði ekki liðin og þegar sé búið að setja af stað forvarnarverkefni meðal friðargæsluliðsins svo hegðunin nái ekki frekari útbreiðslu. Hann sagði að allir sem yrðu uppvísir að slíkum brotum yrðu framseldir til heimalands síns og dregnir þar fyrir dóm. - sh Friðargæsluliðar rannsakaðir: Eru sakaðir um barnaníð ALVARLEGAR ÁSAKANIR Þeir sem verða uppvísir að brotunum verða framseldir til heimalands síns. NORDICPHOTOS/AFP STJÓRNMÁL Sigurjón Norberg Kjærnested, formaður Sambands ungra Framsóknarmanna, hefur sagt sig úr Framsóknarflokknum. Hann fylgir þar í kjölfar Guð- mundar Steingrímssonar alþing- ismanns, sem sagði sig úr flokkn- um í síðustu viku. Í tilkynningu sem Sigurjón sendi fjölmiðlum í gær sagði hann: „Síðasta hálmstráið sem olli því að ég yfirgef núna Fram- sóknarflokkinn er að mér þykir hann vera að sækja á mið óheil- brigðar þjóðernishyggju.“ - bj Hættur í Framsóknarflokki: Hafnar þjóð- ernishyggju MÓTMÆLI Nemendur Kvikmyndaskóla Íslands efndu til setuverkfalls í mennta- málaráðuneytinu nýverið FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI TYRKLAND Tyrkir hafa vísað sendiherra Ísraels úr landi og rift tímabundið öllum hernaðarsamn- ingum við landið. Ástæðan er sú að Ísraelar neita að biðjast afsök- unar á því að hafa í fyrra ráðist á skip sem sigldi undir tyrkneskum fána áleiðis til Gasa. Þar létust níu tyrkneskir aðgerðasinnar. Á fimmtudag lak skýrsla frá Sameinuðu þjóðunum þar sem fram kom að hermennirnir hefðu beitt óhóflegu valdi þegar þeir réðust um borð í skipið. Ísraelar halda því hins vegar fram að um sjálfsvörn hafi verið að ræða. - sh Tyrkir krefjast afsökunarbeiðni: Reka sendiherra Ísraels úr landi   B U SPURNING DAGSINS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.