Fréttablaðið - 03.09.2011, Blaðsíða 45
7. Blákorni dreift ofan á.
6. Skál formuð til að auðvelda vökvun.
2. Mold og möl úr 60 cm djúpri holu,
ásamt sauðataði.
Í Nátthaga í Ölfusi á Ólafur
Njálsson garðyrkjumeistari
unaðsreit og rekur þar
garðplöntusölu. Hann
gefur líka góð ráð. Eitt
þeirra er að gróðursetja tré
að hausti frekar en vori.
„Í áratugi hefur haustið verið van-
nýtt tækifæri til gróðursetning-
ar trjáa en nú er lag að læra nýja
siði,“ segir Ólafur Njálsson, garð-
yrkjumeistari í Nátthaga, sem
telur haustgróðursetningar koma
miklu betur út en vorgróðursetn-
ingar. „Þetta er ekkert sölutrix held-
ur hrein skynsemi,“ segir hann og
telur Íslendinga of fasta í þeim vana
að setja niður tré á vorin, telur það
arf frá gamalli tíð þegar plöntur
voru seldar berróta og þoldu illa að
bíða. „Nú eru langflestar trjáplönt-
ur seldar í pottum eða með hnaus
og því tilbúnar til gróðursetning-
ar allt árið. Það sýnir sig að ef þær
eru settar niður í ágúst, september
eða október ná þær að róta sig fyrir
veturinn og eru betur í stakk búnar
að takast á við næsta þurrkasumar.
Plús það að haustgróðursetningar
eru miklu auðveldari, þar sem næt-
urnar eru orðnar kaldar og raki
haustrigninganna sest að plönt-
unum. Rótin vex líka mest á vorin
og á haustin, þegar ofanvöxturinn
er lítill,“ útskýrir hann.
Ólafur bendir á að þurrkasumur
síðustu fimm ára hafi gert trjárækt
erfitt fyrir. „Ef fólk hefur ekki getað
vökvað nógu mikið og oft hefur
það komið að plöntunum sínum
skrælnuðum. Til dæmis kringum
sumarhúsin sem það kemst bara
í um helgar. Litlar plöntur þorna
hratt upp.“
Við gróðursetningu á haust-
in er enn mikilvægara en í annan
tíma að blanda húsdýraáburði eða
sveppamassa saman við moldina,
að sögn Ólafs. Það minnkar holk-
laka. „Holklaki er okkar mesti óvin-
ur og ef plantan er sett í hreina,
opna mold getur hún legið ofan
á jörðinni næsta vor vegna holk-
lakalyftingar. Húsdýraáburður og
sveppamassi vinnur gegn því.“
Eft ir gróðursetningu segir
Ólafur líka ágætt að setja smá
hrúgu af rothaugamat eða afklipp-
um við plöntuna. „Það margborgar
sig að nostra við hverja plöntu, þá
verður hún fyrr stór og sterk,“ lofar
hann. „Og munið að þegar skógar-
plöntur úr fjölpottum eru gróður-
settar með plöntustaf verður allt-
af að stinga þeim í gróna bletti, alls
ekki gróðurlausa holklakapytti.“
Ólafur hefur opið um helgar í
september og stefnir að því í októ-
ber líka. Hann viðurkennir að
það sé hörkuvinna að setja niður
tré og runna. „Menn þurfa ekki
að fara mikið inn í leikfimisalina
á meðan þeir standa í því,“ segir
hann hlæjandi.
9. Tréð bundið upp.
8. Dúkur hindrar samkeppni við illgresi.
3. Sauðataði og mold blandað saman til
helminga.
Haustið er
vannýtt árstíð
Bessarunni frá Alaska er harðger og
vindþolinn. Hann blómstrar bleiku í júní
en skartar fagurrauðum berjum í ágúst
og rauðum blöðum fram á haust.
10. Ólafur við kirsuberjatré sem er
tilbúið fyrir veturinn. 5. Tíu lítrar af vatni settir áður en fyllt er upp með mold.
4. Tréð mátað ofan á blönduna.
1. Torfið tekið burt.
Kynning - auglýsing
Sveighyrnir Roði, ættaður frá Alaska. Hér í haustskrúða og er með dökkrauðar greinar
allan veturinn.