Fréttablaðið - 03.09.2011, Blaðsíða 42
4 fjölskyldan
ENSKI
BOLTINN
STÆRRI
EN ALLT
SKILA LEIFTURSÓKNIR ARSENAL TITLI Í ÁR?
512 5100 STOD2.IS VERSLANIR VODAFONE VERSLANIR OG ÞJÓNUSTUVER SÍMANS 800 7000
VILDARÁSKRIFT AÐ STÖÐ 2 SPORT INNIHELDUR
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
KOMDU Í ÖLL HELSTU
PARTÝIN MEÐ OKKUR
m.visir.is
Fáðu Vísi í símann!
Meiri Vísir.
Meira sjónvarp, meira útvarp, meiri fréttir, meiri upplýsingar,
meiri umræða, meira líf, meiri íþróttir, meiri virkni, meira úrval.
Þú færð meira af öllu á Vísi.
anum og leyfið barninu að ýta á
takkann til að blanda drykknum
saman. Hellið í glös og lesið eft-
irlætisbókina fyrir barnið meðan
þið gæðið ykkur á drykknum eða
hlustið á hljóðbók (sem má finna í
góðu úrvali á Borgarbókasafninu
til dæmis). Margar aðrar hollar
og einfaldar uppskriftir er gaman
að gera með leikskólabörnum, svo
sem salat.
Listasýning
Sláið upp listasýningu í stofunni.
Teiknið og litið röð mynda með
barninu og raðið á stofuveggina.
Listasýningin getur svo opnað
formlega þegar eldri systkinin
koma heim eða þá að afa og ömmu
er boðið að koma og sjá sýninguna
daginn eftir. Jafnvel má eyða
nokkrum dögum í að setja sýn-
inguna upp og hafa opnunarhátíð
á sunnudegi.
Teboð
Bjóðið öllum dúkkum, böngs-
um, systkinum og litlum
nágrönnum í teboð. Takið
tesettið fram, hellið
mjólk í bollana og raðið
kexkökum eða öðru góð-
gæti á diskana.
Út að kríta
Hlýja haustdaga er um að gera að
nýta utandyra en það þarf ekki að
leita langt yfir skammt að góðri
skemmtun. Pakki af krítum, í
öllum regnbogans litum, og stétt er
það eina sem þarf. Teiknið hringi á
stéttina og bjóðið barninu að hoppa
inn og út úr þeim. Eða dragið
langa beina línu og æfið línudans.
Skreytið stéttina með alls kyns
formum og reynið að henda litlum
steinum inn í þau þannig að þeir
lendi innan þeirra. Góð æfing líka
í að þekkja litina og þá má teikna
tölustafi og bókstafi og ræða hvað
þeir heita.
Spagettíleikur fyrir þau yngri
Ótrúlega einfaldur leikur sem þau
yngri gleyma sér í. Það sem til
þarf er stórt pastasigti
og ósoðið spaghetti.
Hvolfið sigtinu á
borð eða jafn-
vel gólfið,
brjótið
spagettí-
ið í tvennt
og sýnið litlu
manneskjunni
hvernig hægt er að
stinga því inn í götin á
sigtinu og láta það hverfa. Góð
æfing fyrir fínhreyfingarnar og
afbragðs skemmtun.
Myndaföndur
Finnið til gömul tímarit og önnur
blöð sem föndra má með og farið í
gegnum blöðin með barninu í leit
að myndum sem því líkar. Klippið
myndirnar út og
leyfið barninu að
spreyta sig
með ykkar
hjálp á
barna-
skær-
um.
Límið
myndirnar svo á karton eða
annan þykkan pappír.
Biðjið barnið að segja
ykkur hvað hlutirnir
heita og skrifið svo heiti
þeirra með bókstöfum
undir myndirnar.
Tjald í stofunni
Klassískur og sískemmti-
legur leikur er að finna til
pullur, teppi, púða, stóla
og annað sem til þarf
til að byggja „tjald“ eða
lítið „hús“ í stofunni. Börnin geta
hjálpað ykkur eftir því sem þau
eru eldri en börnum á öllum aldri
þykir ákaflega gaman að dunda sér
inni í „húsinu“ að framkvæmdum
loknum. Fara með bangsa og dúkk-
ur þar í útilegu, gefa þeim að borða
af bollastelli og vera á vappi inn
og út úr húsinu. Lautarferð innan-
dyra, með samlokum og drykkjum,
getur svo fylgt í framhaldinu.
Leggið einfaldlega teppi á vel val-
inn stað í stofunni og geisladiskur
með náttúruhljóðum, fuglasöng
eða froskahljóðum, myndi auðvitað
fullkomna stemninguna.
- jma
Teboð Eftir leikskóla má útbúa væna veislu handa öllum mjúku vinunum.
Klassískt Börn hafa gaman af því að útbúa „tjald“ eða „hús“ inni í stofu.
Litað úti Meðan veður leyfir er ekki úr vegi að fara út með börnunum að kríta. Teiknið hringi og notið þá sem fleti til
að hoppa inn á og út úr og æfið börnin í að þekkja litina.
FRAMHALD AF FORSÍÐU
Föndur Auðvelt er að gleyma sér við
að klippa út fallegar myndir.