Fréttablaðið - 03.09.2011, Síða 78
3. september 2011 LAUGARDAGUR42
Dalvík
Sparisjóður Svarfdæla – söluferli
Fyrirtækjaráðgjöf H.F. Verðbréfa hf. hefur til sölumeðferðar, fyrir hönd Bankasýslu ríkisins, 90% stofn-
fjárhlut ríkisins í Sparisjóði Svarfdæla.
Um Sparisjóð Svarfdæla
Sparisjóður Svarfdæla hefur verið starfræktur í yfir 120 ár. Skrifstofa Sparisjóðs Svarfdæla og aðal -
afgreiðsla er í ráðhúsinu á Dalvík, en auk þess er rekin afgreiðsla í Hrísey. Alls starfa nú tíu starfs-
menn hjá sjóðnum. Sparisjóðurinn er eina fjármálafyrirtækið á Dalvík og því mikilvægur í fjölbreyttu
atvinnulífi Dalvíkurbyggðar. Í sveitarfélaginu eru sterk fyrirtæki sem hafa skapað sér sérstöðu og er
Dalvíkurhöfn stór og umsvifamikil fiski- og vöruhöfn.
Fjárhagslegri endurskipulagningu Sparisjóðs Svarfdæla lauk í desember 2010 og er stofnfé að henni
lokinni 424,4 milljónir króna. Í kjölfar endurskipulagningarinnar varð ríkissjóður eigandi stofnfjár
að nafnverði 382,0 milljónir króna eða 90% af heildarstofnfé. Á grundvelli laga nr. 88/2009 um
Bankasýslu ríkisins fer Bankasýslan með hlut ríkisins. Sparisjóður Svarfdæla hefur að undanförnu
starfað á grundvelli undanþágu frá kröfu Fjármálaeftirlitsins um 16% eiginfjárhlutfall, en eiginfjárhlut-
fall sjóðsins skv. ársreikningi fyrir árið 2010 er 10,5%.
Söluferlið
Frá og með mánudeginum 5. september n.k. geta áhugasamir fjárfestar nálgast samantekt um Spari-
sjóð Svarfdæla og önnur gögn vegna fyrirhugaðrar sölu hjá H.F. Verðbréfum hf. Frestur til að skila
inn óskuldbindandi tilboðum er til kl 12:00 mánudaginn 19. september n.k. Tilboð skulu berast
á sérstöku formi sem nálgast má hjá H.F. Verðbréfum hf.
Söluferlið er aðeins opið hæfum fjárfestum, sbr. 9. tölulið 43. gr. laga um verðbréfaviðskipti nr.
108/2007. Auk þess þurfa fjárfestar að uppfylla tiltekin skilyrði sem gerð er grein fyrir í sölugögnum
og lúta einkum að fjárhagslegum styrk og hæfi að öðru leyti til að fara með virkan eignarhlut
í fjármálafyrirtæki.
Fjárfestum er frjálst að bjóða í allan eignarhlut seljanda og/eða hluta hans. Seljandi áskilur sér rétt til
þess að breyta söluferlinu og/eða stöðva það án fyrirvara. Einnig áskilur seljandi sér rétt til að hafna
öllum tilboðum.
Fjárfestar sem vilja taka þátt í söluferlinu geta haft samband við fyrirtækjaráðgjöf H.F. Verðbréfa hf.
í síma 585 1700 eða sent tölvupóst á spsv@hfv.is.
Sjónarhorn
Ljósmynd: Pjetur Sigurðsson
Þennan dag, hinn 3. september árið 1783, var Parísarsáttmálinn undirritaður og með því viðurkenndu Bretar Bandaríkin sem
sjálfstætt ríki.
Það markaði formleg endalok frelsisstríðs Bandaríkjanna, sem hófst
árið 1776 með sjálfstæðisyfirlýsingu nýlendanna þrettán sem mynduðu
Bandaríkin í upphafi.
Eftir að hafa sagt sig úr lögum við Georg III Bretakonung náðu upp-
reisnarmenn náði fljótlega yfirhöndinni í stríðinu og hröktu Breta út
úr norðursvæðunum. Þeir sneru hins vegar til baka með krafti og náðu
undir sig New York og nágrenni.
Frakkar slógust í lið með nýlendunum og reyndust þeim mikil hjálp
gegn Bretum, sérstaklega með sjóher sínum.
Eftir því sem leið á reyndu Bretar að einbeita sér að syðri nýlend-
unum, í þeirri von að þar væru fleiri stuðningsmenn konungsveldisins.
Svo reyndist ekki vera og breska hernum var í raun greitt náðarhöggið
í orrustu í Virginíu árið 1781.
Parísarsáttmálinn fól í sér skilyrðislausa viðurkenningu Breta á sjálf-
stæði Bandaríkjanna. Bretar misstu einnig Flórída í hendur Spánverja,
sem höfðu stutt uppreisnarmenn.
Benjamin Franklin, einn af leiðtogum Bandaríkjamanna, gerði einnig
kröfu um að Bandaríkin fengju Kanada í sinn hlut, en svo varð ekki. Þeir
fengu þó rétt til fiskveiða úti af ströndum Nýfundnalands.
Á móti kom að breskir lánardrottnar máttu innheimta skuldir sínar í
Bandaríkjunum og þeir fylgjendur konungs sem höfðu orðið fyrir upp-
töku lands eða annarra eigna á meðan á stríðinu stóð gátu krafist bóta.
Svo skemmtilega vill til að þessi dagsetning markar önnur tímamót í
sjálfstæðisbaráttu Bandaríkjanna. Hinn 3. september árið 1777 var ein-
mitt dagurinn sem bandaríski fáninn fór fyrst á loft í bardaga þar sem
uppreisnarmenn skutu honum upp í orrustu við brú í Delaware. - þj
Heimildir: history.com og Wikipedia.org.
Í ÞÁ TÍÐ: 3. september 1783
Bretar viðurkenna sjálfstæði
Bandaríkjanna
Parísarsáttmálinn undirritaður þar sem klippt er á tengsl Breta og Banda-
ríkjanna. Áralöngu frelssistríði lýkur með fullnaðarsigri.
UNDIRRITUN PARÍSARSÁTTMÁLANS Benjamin Franklin og John Adams voru fulltrúar
Bandaríkjanna við undirritunina. Þingmaðurinn David Hartley var fulltrúi konungs.
MYND/US DIPLOMACY CENTER
GÆSIR Í GRASI Þessar spöku gæsir virtust sáttar við tilveruna við Seltjörn á Seltjarnarnesi þegar
ljósmyndari átti þar leið hjá.