Fréttablaðið - 03.09.2011, Qupperneq 12
3. september 2011 LAUGARDAGUR12
Einn helsti jöklafræðingur heims í boði forseta Íslands
og Háskóla Íslands
Dr. Lonnie Thompson, einn þekktasti jökla- og loftslagsfræðingur Banda ríkjanna,
sem veitt hefur forystu rannsóknarverkefnum víða um heim, heldur fyrirlestur í boði
forseta Íslands og Háskóla Íslands
mánudaginn 5. september 2011 klukkan 12.00.
Fyrirlesturinn er öllum opinn.
Fyrirlesturinn ber heitið „Climate Change: The Evidence and Our Options“ og
verður fluttur í Hátíðasal Aðalbyggingar Háskóla Íslands. Í upphafi fundarins flytur
forseti Íslands stutt ávarp.
Dr. Thompson, sem er prófessor við jarðfræðideild Ríkisháskólans í Ohio, hefur
öðlast margvíslega viðurkenningu fyrir vísindastörf sín, ekki síst fyrir rannsóknir á
bor kjörnum úr jöklum heittempraðra landa og hitabeltislanda. Hann hefur farið í
tugi rannsóknarleiðangra til Kína og Himalajasvæðisins sem og Suðurskautslandsins.
Thompson er staddur á Íslandi í tengslum við alþjóðlega ráðstefnu um rannsóknir
á jöklum og náttúrufari Himalajasvæðisins.
Loftslagsbreytingar
– veruleiki og valkostir
Opinn fyrirlestur:
P
IP
A
R
\T
B
W
A
-S
ÍA
LÍBÍA, AP Uppreisnarhreyfingin í
Líbíu, sem nú hefur að mestu náð
völdum í landinu, bjó sig í gær
undir innrás í Sirte, heimabæ
Múammars Gaddafí.
Uppreisnarmenn höfðu gefið
stuðningsmönnum Gaddafís í
Sirte frest þangað til í dag til að
semja um uppgjöf en lítil sem
engin viðbrögð fengið önnur en
fullyrðingar Gaddafís um að hart
yrði tekið á móti.
Leiðtogar bráðabirgðastjórn-
ar uppreisnarmanna í Líbíu hafa
ekki kynnt opinberlega neinar
skýrar hugmyndir um framtíð
landsins en ræddu þó áform sín
við fulltrúa Sameinuðu þjóðanna
og annarra alþjóðastofnana á lok-
uðum fundi í París í gær, daginn
eftir að þeir ræddu við leiðtoga
sextíu ríkja um stuðning við upp-
byggingu í landinu.
Þeir hafa lofað lýðræðislegum
kosningum, sumir segja innan
tuttugu mánaða, og fulltrúi þeirra
í Bretlandi lofar að engin fyrir-
tæki fái sérmeðferð þegar kemur
að því að semja um olíuvinnslu í
nýrri Líbíu.
Stofnanir Sameinuðu þjóðanna
hafa síðustu daga snúið aftur til
höfuðborgarinnar Trípolí, þar
sem matvælum, vatni og lyfjum
verður dreift til íbúa.
Aðstoð Sameinuðu þjóðanna
verður þó aðeins tímabundin,
segir Panos Moumtzis, yfirmaður
mannúðarstarfs Sameinuðu þjóð-
anna í Líbíu.
„Þetta land á mikið af auðlind-
um og við teljum þörfina á mann-
úðaraðstoð vera til skamms tíma,“
segir hann og vísar til olíuauðs-
ins sem þessi sex milljón manna
þjóð hefur yfir að ráða. „Ég sé
ekki fram á að mannúðaraðstoð
verði haldið áfram lengur en til
áramóta, í mesta lagi.“
Gaddafí hefur verið í felum frá
því uppreisnarmenn réðust inn í
Trípolí 20. ágúst og náðu borginni
á vald sitt á fáeinum dögum.
Ýmsar getgátur hafa verið um
hvar hann kunni að vera niður-
kominn, en í útvarpsviðtali á
fimmtudagskvöld sakaði hann
NATO-ríkin um að vilja hernema
Líbíu til að komast yfir olíuauð-
lindirnar.
„Búið ykkur undir langt stríð,“
sagði hann. „Búið ykkur undir
skæruhernað.“
Auk borgarinnar Sirte búa upp-
reisnarmenn sig undir innrás í
tvær aðrar borgir, Bani Walid og
Sabha, sem stuðningsmenn Gad-
dafís hafa enn á valdi sínu.
gudsteinn@frettabladid.is
Uppreisnarmenn sækja fram
Stuðningsmenn Gaddafís hafa enn þrjár borgir í Líbíu á sínu valdi. Uppreisnarmenn voru í gær að hefja
innrás í Sirte, fæðingarstað Gaddafís. Sameinuðu þjóðirnar eru byrjaðar að dreifa hjálpargögnum í Trípólí.
SKOPMYND Ónefndur listamaður hefur málað mynd af Gaddafí á húsvegg í Trípólí. Á myndinni má sjá einræðisherrann fyrr-
verandi forða sér á hlaupum með peninga í poka. NORDICPHOTOS/AFP
VÍSINDI Vísindamenn í Bandaríkj-
unum segja nauðsynlegt að setja
alþjóðlegar reglur um hluti sem
sendir eru út í geiminn, geimflaug-
ar, gervihnetti og annað slíkt, sem
svífur áfram umhverfis jörðina
löngu eftir að allri notkun er hætt.
Ruslið í geimnum er orðið svo
mikið að hætta stafar af. Bæði er
hætta á því að eitthvað af því rek-
ist á mönnuð geimför með hugsan-
lega alvarlegum afleiðingum fyrir
geimfarana, og einnig er hætta á
því að skemmdir verði á mikilvæg-
um gervihnöttum, sem hvers kyns
starfsemi á jörðu niðri reiðir sig á.
Frá þessu er skýrt á vefsíðum
BBC og vitnað í nýja skýrslu frá
rannsóknarráði Bandaríkjanna,
National Research Council.
Nú er talið að um 22 þúsund hlut-
ir, sem eru nægilega stórir til að
hægt sé að fylgjast með þeim frá
jörðu niðri, séu á ferðinni í kring-
um jörðina. Enginn hefur hins
vegar tölu á minni hlutum, sem
sumir hverjir hafa orðið til þegar
stærri hlutir rekast á.
Fyrir tveimur árum rákust tveir
gervihnettir saman úti í geimnum,
sem varð til þess að þeir sundruð-
ust. Árið 2007 gerðu Kínverjar auk
þess tilraun með geimvarnarvopn
og sprengdu eigin gervihnött. - gb
Geimskipum og gervihnöttum stafar hætta af rusli:
Sífellt meira geimrusl
RUSL Í GEIMNUM Myndin er listræn túlkun á ástandinu í kringum Jörðina, en gefur
nokkra hugmynd um hvað við er að glíma. NORDICPHOTOS/AFP
Búið ykkur undir langt
stríð. [...] Búið ykkur
undir skæruhernað.
MÚAMMAR GADDAFÍ
FYRRVERANDI LEIÐTOGI LÍBÍU
MYNDLIST Sýning með teikning-
um eftir Erró opnar í Listasafni
Reykjavíkur, Hafnarhúsi í dag.
Um 200 teikningar eru á sýn-
ingunni sem er skipulögð í náinni
samvinnu við Erró og byggð á
verkum sem koma úr einkasafni
listamannsins og safneign Lista-
safns Reykjavíkur.
Teikning er sú grein sem Erró
er síst þekktur fyrir en þó eru á
sýningunni verk sem hann vann
frá árinu 1944 til vorra daga og
beitti fjölbreyttri tækni og aðferð-
um við gerð þeirra. Sýningarstjóri
er Danielle Kvaran. - sbt
Fáséðar teikningar eftir Erró sýndar á nýrri sýningu í Listasafni Reykjavíkur:
Elstu teikningarnar frá 1944
ERRÓ Erró í Hafnarhúsinu í gær en hann er staddur á landinu vegna sýningar á
teikningum hans sem opnar í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
SAMGÖNGUR Verð á mánaðar-,
þriggja mánaða og níu mánaða
kortum hjá Strætó hækkar í verði
um 10 prósent 1. október næst-
komandi. Stök fargjöld haldast
óbreytt, 350 krónur. Hætt verður
sölu á tveggja vikna korti vegna
dræmrar sölu.
Hækkun á verði tímabilskorta
er liður í að auka hlut tekna af
fargjöldum í rekstrarkostnaði
Strætó, og er gerð með hliðsjón af
þróun verðlags, að því er segir í
tilkynningu frá Strætó. - sv
Gjaldskrá Strætó hækkar:
Tímabilskort
hækka um 10%
STRÆTÓ HÆKKAR VERÐ Mánaðakort
Strætó munu hækka í verði um næstu
mánaðamót. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
LAGÐIST Í TÓMATMAUKIÐ Tómat-
maukið flaut um götur bæjarins Bunol
á Spáni þegar hinn árlegi tómat-
slagur var haldinn þar í vikunni. Tugir
þúsunda manna tóku þátt í slagnum
og köstuðu samtals 120 tonnum af
tómötum í mótherja sína.
NORDICPHOTOS/AFP
FLATEYRI Sundlaugin á Flateyri
hefur verið lokuð síðustu daga
vegna viðhalds.
Unnið hefur verið að viðgerð-
um á lögnum í kjallara auk þess
sem sturtuklefar og sundlaugar-
ker hafa verið lagfærð, að því er
fram kemur á fréttavef Bæjarins
besta á Ísafirði.
Þar segir enn fremur að sam-
kvæmt upplýsingum frá Ísafjarð-
arbæ sé gert ráð fyrir að búið
verði að mála sundlaugarkerin í
næstu viku, og þá verði hægt að
opna laugina á ný. - kh
Flateyringar án sundlaugar:
Laugin lokuð
vegna viðhalds
Hringdi dyrabjöllum í ölæði
Karlmaður á fimmtugsaldri var hand-
tekinn í fyrrakvöld eftir að hafa verið
til vandræða í miðborginni, átt erfitt
með að rata heim til sín, hringt dyra-
bjöllum hjá ókunnugu fólki hér og þar
og ógnað lögreglumönnum. Hann var
færður í fangageymslur og við frekari
eftirgrennslan kom í ljós að hann var
eftirlýstur vegna annarra mála.
LÖGREGLUFRÉTTIR