Fréttablaðið - 03.09.2011, Side 22
22 3. september 2011 LAUGARDAGUR
Umhverfis- og samgöngusvið
Reykjavíkurborgar.
Hr. Karl Sigurðsson formaður
Sæll vertu Karl og aðrir kjörnir
fulltrúar í umhverfis- og sam-
göngusviði Reykjavíkurborgar.
Við hér í fyrirmyndarhúsfélag-
inu Dalseli 38, 109 Reykjavík,
finnum okkur knúin til að senda
þér/ykkur þessar línur, þar sem
okkur finnst við ekki hafa fengið
viðeigandi svör við bréfi okkar,
dagsettu þann 19.4.2011 síðastlið-
inn, varðandi sorphirðu og svo-
kallaða 15 metra reglu. Satt að
segja, þá erum við svolítið hissa á
því, að umræddu bréfi hefur ekki
verið svarað. Það var sent í gegn-
um netsíðu ykkar.
Í fyrirmyndarhúsfélagi eins
og okkar, og það er ekkert grín,
við eigum hér upp á vegg viður-
kenningu frá hverfaráði borgar-
innar, þar sem okkur er úthlut-
að þessum titli af ykkar hálfu,
þar sem við sjálf höfum fyrir þó
nokkru tekið flokkun sorps alvar-
lega og fækkað svörtum tunnum
úr sjö í fjórar og tekið inn bláa
tunnu, þá finnst okkur þið flokka
okkur sem annars flokks þegna í
Reykjavík.
Þið megið alveg vita það líka,
að við höfum margoft slegið gras
á opinberum blett borgarinnar í
næsta nágrenni, þar sem okkur
hefur blöskrað aðgerðarleysi á
þeim vettvangi og er til hábor-
innar skammar, svo ekki sé meira
sagt. Höfum líklega eytt hærri
fjárhæð í bensín á sláttuvélina
en þið ætlist nú til að við greiðum
ykkur fyrir sorplosun.
Ykkar orð í bréfi nýverið til
okkar, þar sem tilkynnt er um
einhliða skattlagningu af ykkar
hálfu eru:
„Með því að flokka meira það
sem til fellur á þínu heimili,
stendur þú vörð um umhverfið
og sparar borginni fjármuni. Því
minna sorp sem fer til urðunar
því meira sparar þú fyrir þig og
samborgara þína“.
Það vill nú svo til, eins og áður
kom fram, að við erum fyrir þó
nokkru búin að stíga mikið gæfu-
, heilla- og sparnaðarspor fyrir
okkur og Reykjavíkurborg. Þetta
gerðum við sjálf án ykkar aðstoð-
ar og vandséð hvernig þið hafið
ákveðið að launa okkur, eða hvað?
Við höfum meira pláss fyrir
viðurkenningar á veggjum hús-
félagsins!
Eins og við höfum reynt að fá
svör við, fyrr á þessu ári, er ekki
hægt að sjá sanngirni í þessari
gjaldheimtu, né hvernig ætlun-
in er að leysa þau vandamál sem
við stöndum frammi fyrir vegna
ykkar undarlegu og óskiljanlegu
gjörða.
Í umræddum pósti, frá ykkur
um breytta sorphirðu, stendur
einnig: „Reykvíkingar sem eiga
þess kost að færa sjálfir sorp-
ílát sín innan 15 metra frá götu á
sorplosunardögum geta afþakk-
að þessa viðbótarþjónustu. Þá
þarf hins vegar að gæta þess að
ílátin komist vel fyrir, hindri
ekki umferð og fjúki ekki af stað
í vindi.“
Og það besta við umrætt bréf
frá ykkur, er að ykkur er alvara!
En hvað með þá sem eiga
þess ekki kost að færa sorpílát
umrædda 15 metra frá götu, af
ýmsum ástæðum, sem engin
ástæða er til að telja upp?
Segjum að við kjósum svo, að
færa tunnurnar að götunni, hvar
í ósköpunum eigum við að tjóðra
þær fastar? Ekki megum við raða
niður bryggjupollum á göngustíg-
um borgarinnar eða hvað?
Hver ber ábyrgð, ef innihald
ílátanna verður tæmt á göngu-
stíga og eða slett á bifreiðar eða
aðra veraldlega hluti í eigu ann-
arra en borgarinnar?
Hvernig ætlið þið að leysa fyrir
okkur niðurstöðu húsfundar hér í
fyrirmyndarhúsfélaginu, þar sem
fimm eigendur vilja ekki greiða
uppsettan skatt ykkar, en tveir
eru tilbúnir til þess að greiða
hann?
Ég minni á að hér eru fjórar
svartar tunnur og ein blá sameig-
inleg fyrir alla.
Þetta gæti orðið forvitnilegt!
Væri okkur heimilt að fá lánaða
aðstöðu í nágrannahúsfélaginu,
sem er reyndar sama húsið og við
búum í, en þar eru þau svo hepp-
in að þau eru innan umræddra 15
metra, og setja okkar tunnur yfir
til þeirra á losunardögum? Við
myndum væntanlega launa þeim
greiðann með vægu gjaldi sem
ekki tekur að tala um.
Nú ætti ykkur að vera ljóst að
það er mikil andstaða í fyrir-
myndarhúsfélaginu við umrædda
skattlagningu. Og það besta við
þetta allt saman, er sú staðreynd
að þetta snýst, af okkar hálfu,
ekki um upphæðina sem þið ætlið
að rukka, þetta er bara eitt það
vitlausasta og ósanngjarnasta
sem við flest höfum orðið vitni að
í opinberri stjórnsýslu og höfum
við, á öllum aldri, ýmislegt séð
í gegnum misvitra pólítíkusa,
sem hafa farið skrítnar leiðir til
árangurs … eða ekki!
Það er okkur einnig afar hulin
ráðgáta, hvers vegna þessari und-
arlegu skattlagningu hefur ekki
verið mótmælt meira og kröftug-
ar. Þar eigum við kannski aðal-
lega við þá sem kjörnir hafa verið
til starfa, en eru kannski í minni-
hluta, því það er jú meirihlut-
inn sem tekur svona gáfulegar
ákvarðanir.
Til að sýna fram á fáránleika
þessara aðgerða, þá væri t.d. mjög
sanngjarnt að þeir íbúar borgar-
innar sem þurfa að ganga lengra
en t.d. 15 metra að biðstöð strætis-
vagna, fái frítt í vagninn.
Nú eða þeir sem brjóta upp gul-
rauðu litasamsetningu vagnanna
með fatnaði í öðrum litum, skuli
greiða aukagjald.
Nú eða þeir sem synda hægar í
sundlaugum borgarinnar, greiði
sérstakt aukagjald vegna lengri
viðveru í lauginni en sá sem
kemst hraðar og fer fyrr upp úr.
Nú eða við barasta hættum að
flokka draslið, fáum 10 tunnur og
borgum lítilfjörlegt skattgjald og
allur fyrirmyndarsparnaðurinn
er fokinn út í veður og vind. Þetta
er jú engin andsk … upphæð eða
hvað?
Varla neitt til að vera að röfla
yfir!
Til þess að við getum tekið end-
anlega ákvörðun um framhald
þessa máls og ekki síst afstöðu í
næstu kosningum, er það okkur
hér í Dalseli 38, Reykjavík, mik-
ilvægt að fá svör við framan-
greindum spurningum.
Það er niðurlægjandi fyrir
okkur sem fullgilda íbúa að vera
ekki virt viðlits, þó svo það sé til-
finning okkar að þið lítið á bréfin
okkar sem eitthvert grín.
En það er stór misskilning-
ur, við erum ekki að grínast,
en trúðum því statt og stöðugt
að umhverfis- og samgöngur-
áð Reykjavíkur væri að því, þar
til okkur barst umrædd tilkynn-
ing um að sorphirðugjaldið hefði
verið lagt á frá og með 1. ágúst.
Við væntum svara fyrr en
síðar … þó ekki væri nema af
kurteisisástæðum.
Virðingarfyllst
f.h. hússtjórnar Dalseli 38,
Reykjavík
Jóhann G. Gunnarsson ritari
Segjum að við kjósum svo, að færa tunn-
urnar að götunni, hvar í ósköpunum
eigum við að tjóðra þær fastar? Ekki
megum við raða niður bryggjupollum á göngustígum
borgarinnar eða hvað?
Opið bréf til umhverfis- og samgöngusviðs Reykjavíkur
Sorphirða
Jóhann G.
Gunnarsson
ritari