Fréttablaðið - 03.09.2011, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 03.09.2011, Blaðsíða 22
22 3. september 2011 LAUGARDAGUR Umhverfis- og samgöngusvið Reykjavíkurborgar. Hr. Karl Sigurðsson formaður Sæll vertu Karl og aðrir kjörnir fulltrúar í umhverfis- og sam- göngusviði Reykjavíkurborgar. Við hér í fyrirmyndarhúsfélag- inu Dalseli 38, 109 Reykjavík, finnum okkur knúin til að senda þér/ykkur þessar línur, þar sem okkur finnst við ekki hafa fengið viðeigandi svör við bréfi okkar, dagsettu þann 19.4.2011 síðastlið- inn, varðandi sorphirðu og svo- kallaða 15 metra reglu. Satt að segja, þá erum við svolítið hissa á því, að umræddu bréfi hefur ekki verið svarað. Það var sent í gegn- um netsíðu ykkar. Í fyrirmyndarhúsfélagi eins og okkar, og það er ekkert grín, við eigum hér upp á vegg viður- kenningu frá hverfaráði borgar- innar, þar sem okkur er úthlut- að þessum titli af ykkar hálfu, þar sem við sjálf höfum fyrir þó nokkru tekið flokkun sorps alvar- lega og fækkað svörtum tunnum úr sjö í fjórar og tekið inn bláa tunnu, þá finnst okkur þið flokka okkur sem annars flokks þegna í Reykjavík. Þið megið alveg vita það líka, að við höfum margoft slegið gras á opinberum blett borgarinnar í næsta nágrenni, þar sem okkur hefur blöskrað aðgerðarleysi á þeim vettvangi og er til hábor- innar skammar, svo ekki sé meira sagt. Höfum líklega eytt hærri fjárhæð í bensín á sláttuvélina en þið ætlist nú til að við greiðum ykkur fyrir sorplosun. Ykkar orð í bréfi nýverið til okkar, þar sem tilkynnt er um einhliða skattlagningu af ykkar hálfu eru: „Með því að flokka meira það sem til fellur á þínu heimili, stendur þú vörð um umhverfið og sparar borginni fjármuni. Því minna sorp sem fer til urðunar því meira sparar þú fyrir þig og samborgara þína“. Það vill nú svo til, eins og áður kom fram, að við erum fyrir þó nokkru búin að stíga mikið gæfu- , heilla- og sparnaðarspor fyrir okkur og Reykjavíkurborg. Þetta gerðum við sjálf án ykkar aðstoð- ar og vandséð hvernig þið hafið ákveðið að launa okkur, eða hvað? Við höfum meira pláss fyrir viðurkenningar á veggjum hús- félagsins! Eins og við höfum reynt að fá svör við, fyrr á þessu ári, er ekki hægt að sjá sanngirni í þessari gjaldheimtu, né hvernig ætlun- in er að leysa þau vandamál sem við stöndum frammi fyrir vegna ykkar undarlegu og óskiljanlegu gjörða. Í umræddum pósti, frá ykkur um breytta sorphirðu, stendur einnig: „Reykvíkingar sem eiga þess kost að færa sjálfir sorp- ílát sín innan 15 metra frá götu á sorplosunardögum geta afþakk- að þessa viðbótarþjónustu. Þá þarf hins vegar að gæta þess að ílátin komist vel fyrir, hindri ekki umferð og fjúki ekki af stað í vindi.“ Og það besta við umrætt bréf frá ykkur, er að ykkur er alvara! En hvað með þá sem eiga þess ekki kost að færa sorpílát umrædda 15 metra frá götu, af ýmsum ástæðum, sem engin ástæða er til að telja upp? Segjum að við kjósum svo, að færa tunnurnar að götunni, hvar í ósköpunum eigum við að tjóðra þær fastar? Ekki megum við raða niður bryggjupollum á göngustíg- um borgarinnar eða hvað? Hver ber ábyrgð, ef innihald ílátanna verður tæmt á göngu- stíga og eða slett á bifreiðar eða aðra veraldlega hluti í eigu ann- arra en borgarinnar? Hvernig ætlið þið að leysa fyrir okkur niðurstöðu húsfundar hér í fyrirmyndarhúsfélaginu, þar sem fimm eigendur vilja ekki greiða uppsettan skatt ykkar, en tveir eru tilbúnir til þess að greiða hann? Ég minni á að hér eru fjórar svartar tunnur og ein blá sameig- inleg fyrir alla. Þetta gæti orðið forvitnilegt! Væri okkur heimilt að fá lánaða aðstöðu í nágrannahúsfélaginu, sem er reyndar sama húsið og við búum í, en þar eru þau svo hepp- in að þau eru innan umræddra 15 metra, og setja okkar tunnur yfir til þeirra á losunardögum? Við myndum væntanlega launa þeim greiðann með vægu gjaldi sem ekki tekur að tala um. Nú ætti ykkur að vera ljóst að það er mikil andstaða í fyrir- myndarhúsfélaginu við umrædda skattlagningu. Og það besta við þetta allt saman, er sú staðreynd að þetta snýst, af okkar hálfu, ekki um upphæðina sem þið ætlið að rukka, þetta er bara eitt það vitlausasta og ósanngjarnasta sem við flest höfum orðið vitni að í opinberri stjórnsýslu og höfum við, á öllum aldri, ýmislegt séð í gegnum misvitra pólítíkusa, sem hafa farið skrítnar leiðir til árangurs … eða ekki! Það er okkur einnig afar hulin ráðgáta, hvers vegna þessari und- arlegu skattlagningu hefur ekki verið mótmælt meira og kröftug- ar. Þar eigum við kannski aðal- lega við þá sem kjörnir hafa verið til starfa, en eru kannski í minni- hluta, því það er jú meirihlut- inn sem tekur svona gáfulegar ákvarðanir. Til að sýna fram á fáránleika þessara aðgerða, þá væri t.d. mjög sanngjarnt að þeir íbúar borgar- innar sem þurfa að ganga lengra en t.d. 15 metra að biðstöð strætis- vagna, fái frítt í vagninn. Nú eða þeir sem brjóta upp gul- rauðu litasamsetningu vagnanna með fatnaði í öðrum litum, skuli greiða aukagjald. Nú eða þeir sem synda hægar í sundlaugum borgarinnar, greiði sérstakt aukagjald vegna lengri viðveru í lauginni en sá sem kemst hraðar og fer fyrr upp úr. Nú eða við barasta hættum að flokka draslið, fáum 10 tunnur og borgum lítilfjörlegt skattgjald og allur fyrirmyndarsparnaðurinn er fokinn út í veður og vind. Þetta er jú engin andsk … upphæð eða hvað? Varla neitt til að vera að röfla yfir! Til þess að við getum tekið end- anlega ákvörðun um framhald þessa máls og ekki síst afstöðu í næstu kosningum, er það okkur hér í Dalseli 38, Reykjavík, mik- ilvægt að fá svör við framan- greindum spurningum. Það er niðurlægjandi fyrir okkur sem fullgilda íbúa að vera ekki virt viðlits, þó svo það sé til- finning okkar að þið lítið á bréfin okkar sem eitthvert grín. En það er stór misskilning- ur, við erum ekki að grínast, en trúðum því statt og stöðugt að umhverfis- og samgöngur- áð Reykjavíkur væri að því, þar til okkur barst umrædd tilkynn- ing um að sorphirðugjaldið hefði verið lagt á frá og með 1. ágúst. Við væntum svara fyrr en síðar … þó ekki væri nema af kurteisisástæðum. Virðingarfyllst f.h. hússtjórnar Dalseli 38, Reykjavík Jóhann G. Gunnarsson ritari Segjum að við kjósum svo, að færa tunn- urnar að götunni, hvar í ósköpunum eigum við að tjóðra þær fastar? Ekki megum við raða niður bryggjupollum á göngustígum borgarinnar eða hvað? Opið bréf til umhverfis- og samgöngusviðs Reykjavíkur Sorphirða Jóhann G. Gunnarsson ritari
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.